Fjórðungur nýbakaðra feðra taka ekki fæðingarorlof

Á árinu 2014 tóku 76 pró­sent karla sem eign­uð­ust barn fæð­ing­ar­or­lof eða fengu greiddan fæð­ing­ar­styrk. Á árinu 2009 var hlut­fall þeirra 85 pró­sent. Þeim körlum sem taka fæð­ing­ar­or­lof eða þiggja fæð­ing­ar­styrk hefur því fækkað um tæp ell­efu pró­sent á fimm árum. Hlutfall kvenna sem eign­ast barn og taka fæð­ing­ar­or­lof eða þiggja fæð­ing­ar­styrk hefur einnig dreg­ist saman, en mun minna. Árið 2009 tóku 99 pró­sent þeirra orlof en 97 pró­sent í fyrra. Þetta kemur fram í svari Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn frá Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur, þing­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, um greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi.

Hámarksgreiðslur hrundu eftir hrunið

Í svar­inu segir að „und­an­farin ár hefur mæðrum fjölgað sem hvorki fá greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði né greiddan fæð­ing­ar­styrk. Árið 2011 var um að ræða 84 mæður, árið 2012 voru þær 119, árið 2013 voru þær 130 og árið 2014 voru 138 mæður sem hvorki fengu greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði né greiddan fæð­ing­ar­styrk.

Fæð­ing­ar­or­lof for­eldra er sam­an­lagt níu mán­uðir. Hvort for­eldri fyrir sig fær þrjá mán­uði og hinum þremur er síðan hægt að ráð­stafa eftir hent­ug­leika. Á fyrstu árunum eftir að fæð­ing­ar­or­lofs­greiðslur til feðra hófust var ekk­ert þak á hámarks­greiðslum. Því var breytt árið 2008 en þakið var það hátt að fáir rák­ust í það. Hámarks­greiðslan þá var 535 þús­und krónur á mán­uði.

Hámarks­greiðslur í fæð­ing­ar­or­lofi hafa hins vegar tekið nokkrum breyt­ingum á und­an­förnum árum. Í jan­úar 2009 var hámarks­greiðsla lækkuð í 400 þús­und krónur og nokkrum mán­uðum síðar í 350 þús­und krónur. Í jan­úar 2010 var það svo lækkað niður í 300 þús­und krónur. Þakið var hækkað aftur upp í 350 þús­und krónur árið 2013 og upp í 370 þús­und krónur 2014. Það á hins vegar langt í land með að ná því sem það var árið 2008.

Mun fleiri karlar fengu hámarksgreiðslu

Í svari Eyglóar segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði var hlut­fall for­eldra sem fékk hámarks­greiðslu úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði árið 2010 um 31 pró­set allra for­eldra sem fengu greitt fæð­ing­ar­or­lof. Þá var hlut­fall mæðra sem fékk hámarks­greiðslu úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði um 18 pró­sent en hlut­fall feðra um 50 pró­sent. Árið 2013 var hlut­fall for­eldra sem fékk hámarks­greiðslu úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði um 30 pró­sent, hlut­fall mæðra sem fékk hámarks­greiðslu var um 19 pró­sent en hlut­fall feðra um 43 pró­ent.

Árið 2014, eftir að hámarks­greiðsla til for­eldra úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði hækk­aði í 370.000 krónur á mán­uði var hlut­fall for­eldra sem fékk um 28,4 pró­sent. Þá var hlut­fall mæðra sem fékk hámarks­greiðslur úr Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði um 17 pró­sent en hlut­fall feðra um 41 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár