Fleiri kjósendur Viðreisnar ánægðir með stjórn sem flokkurinn er ekki í en óánægðir

Eftir því sem fólk er eldra og er með hærri tekjur, því ánægð­ari er það með nýskip­aða rík­is­stjórn. Stuðn­ings­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna eru allir mun ánægð­ari en ekki. Einungis fjögur pró­sent Sjálf­stæð­is­manna eru ósáttir.

Annað ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur.
Annað ráðu­neyti Katrínar Jak­obs­dóttur. Mynd: Stjórnarráðið

Því eldra sem fólk er og því hærri sem tekjur þess eru, því ánægð­ari er það með áfram­hald rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur, sem sam­anstendur af Vinstri grænum, Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki.

Kjós­endur allra flokk­anna eru mun ánægð­ari með ráða­hag­inn en óánægðir. Alls segj­ast 92 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks vera ánægðir með nýskip­aða rík­is­stjórn og 84 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks eru sama sinnis. Einungis fjögur pró­sent Sjálf­stæð­is­manna og sex pró­sent Fram­sókn­ar­manna eru óánægðir með stjórn­ina.

Alls 71 pró­sent stuðn­ings­manna Vinstri grænna eru ánægðir með nýskip­aða rík­is­stjórn og ein­ungis átta pró­sent þeirra eru óánægðir.

Þetta kemur fram í nýbirtum þjóð­ar­púlsi Gallup. Heilt yfir er helm­ingur lands­manna ánægður með nýskip­aða rík­is­stjórn en tæp­lega þriðj­ungur óánægður. Þá telja flestir, næstum þrír af hverjum fjórum, að stjórn­ar­sam­starfið muni halda út kjör­tíma­bilið. Einungis 17 pró­sent telja það ólík­legt. Alls eru 42 pró­sent lands­manna ánægðir með val á ráð­herrum í rík­is­stjórn­ina en 36 pró­sent óánægðir.

Afstaða kjós­enda­hóps Vinstri grænna til veru Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks í rík­is­stjórn hefur breyst mikið á síð­ustu árum. Í aðdrag­anda kosn­inga 2017 vildu ein­ungis þrjú pró­sent kjós­enda flokks­ins sjá Sjálf­stæð­is­flokk­inn í rík­is­stjórn og tólf pró­sent Fram­sókn­ar­flokk­inn, sam­kvæmt könnun sem Gallup gerði þá.

Nið­ur­staðan er heldur ekki í takti við könnun Prósents sem birt var í Frétta­blað­inu í vik­unni. Samkvæmt henni voru 53 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna ánægðir með ráða­hag­inn sem flokk­ur­inn valdi sér.

Kjósendur Viðreisnar nokkuð sáttir

Athygli vekur að fleiri kjós­endur Við­reisnar, sem á ekki aðild að rík­is­stjórn­inni, eru ánægðir með nýskip­aða rík­is­stjórn en þeir sem eru ánægðir. Alls 41 pró­sent stuðn­ings­manna Við­reisnar til­heyra fyrri hópnum en 39 pró­sent þeim síð­ari.

Hjá öðrum stjórn­ar­and­stöðu­flokkum er yfir­gnæf­andi and­staða við stjórn­ar­sam­starfið og hún er mest hjá kjós­endum Sam­fylk­ing­ar­innar, en sex pró­sent þeirra segj­ast ánægðir með sam­starfið á meðan að 77 pró­sent þeirra eru á móti.

[adspot]Væntir kjós­endur Sós­í­alista­flokks Íslands, sem náði ekki inn á þing í síð­ustu kosn­ingum, eru á svip­uðum slóðum og ein­ungis fimm pró­sent þeirra eru ánægðir með nýtil­kynnta rík­is­stjórn en 86 pró­sent eru á móti henni.

Í lægstu tekju­hóp­unum er afger­andi meiri óánægja með rík­is­stjórn­ina en ánægja en ánægjan eykst eftir því sem meira er í vesk­inu hver mán­aða­mót, og er mest hjá þeim sem eru með 1.250 þús­und krónur eða meira á mán­uði í fjöl­skyldu­tekjur. Innan þess hóps segj­ast 58 pró­sent vera ánægðir en 26 pró­sent eru óánægðir.

And­staðan við rík­is­stjórn­ina er mest hjá lands­mönnum undir þrí­tugu, þar sem 39 pró­sent eru ánægðir með hana en 45 pró­sent óánægðir.

Elstu tveir ald­urs­hóp­arnir, sem inni­halda lands­menn yfir fimm­tugu, eru að sama skapi sátt­astir. Ánægja með rík­is­stjórn­ina þar mælist 56 til 58 pró­sent en óánægja 24 til 27 pró­sent.

Könnunin var gerð 1. til 12. des­em­ber. Heild­ar­úr­taks­stærð var 1.619 og svar­hlut­fall 52,5 pró­sent.

Mjög svipuð staða og í kosn­ing­unum

Í síð­ustu könnun sem Gallup gerði á fylgi flokka, sem birt var 2. des­em­ber síð­ast­lið­inn kom fram að litlar breyt­ingar voru á fylgi ­flokka milli mán­aða

Þar bar helst til tíð­inda að fylgi Sam­­fylk­ing­­ar­innar jókst um 0,9 pró­­sent­u­­stig og mæld­ist 10,7 pró­­sent en fylgi Pírata dróst saman um 0,8 pró­­sent­u­­stig og mæld­ist slétt ell­efu pró­­sent.

Fylgi ann­­arra flokka var nán­­ast það sama og það var í lok októ­ber. Stjórn­­­ar­­flokk­­arnir þrír eru þeir flokkar sem njóta mest stuðn­­ings. Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn mæld­ist áfram sem áður stærsti flokkur lands­ins með 22,7 pró­­sent fylgi og Fram­­sókn sá næst stærsti með 17 pró­­sent fylgi. Vinstri græn fylgdu þar á eftir með 13 pró­­sent fylgi. Sam­eig­in­­legt fylgi rík­­is­­stjórn­­­ar­­flokk­anna var því 52,7 pró­­sent, sem er 0,7 pró­­sent­u­­stigum minna en mán­uði áður og 1,6 pró­­sent­u­­stigum minna en flokk­­arnir þrír fengu sam­an­lagt í kosn­­ing­unum í sept­­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár