Hefði farið öðruvísi ef fórnarlömbin í París hefðu mátt vera vopnuð

Donald Trump, sem sæk­ist eftir því að verða for­seta­fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins, sagði í gær að ef fórn­ar­lömb hryðju­verka­árásanna sem framin voru í París á föstu­dags­kvöld hefði verið leyft að bera vopn þá hefði nið­ur­staða ástands­ins orðið allt önnur. „Þegar þú horfir á París, strang­asta byssu­lög­gjöf í heimi, París, engin var með byssur nema vondu karl­arnir. Enginn var með byssur. Enginn. Þeir skutu þau bara eitt af öðru og svo brut­ust þeir inn [örygg­is­sveitir frönsku lög­regl­unnar] og það varð mik­ill skot­bar­dagi og á end­anum drápu þeir hryðju­verka­menn­ina.“ Ummælin lét Trump falla á kosn­ing­ar­fundi í Beaumont Texas í gær. Hann nýtur sem stendur mest stuðn­ings allra fram­bjóð­enda repúblik­ana til að hljóta útnefn­ingu sem for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins þótt að hratt hafi dregið úr for­skoti Trump und­an­farnar vikur. Forysta hans á Ben Carson mælist nú innan skekkju­marka.

Þar sagði hann einnig: „Þú getur sagt það sem þú vilt, en ef þau hefðu haft byssur, ef okkar fólk hefði haft byssur, ef þau mættu bera þær[...]þá hefðu þetta verið allt aðrar aðstæður.“ Greint er frá þessu á vef Business Insider.

129 manns látnir og á fjórða hundrað særðir

Alls lét­ust 129 manns í árás­unum á París á föstu­dags­kvöld. 352 eru slas­aðir, þar af 99 alvar­lega slas­aðir. Fórn­ar­lömb árásanna eru frá að minnsta kosti 15 mis­mun­andi löndum. Sjö hryðju­verka­menn liggja í valnum, sex eftir að hafa sprengt sig í loft upp. Íslamska ríkið (ISIS) hefur lýst yfir ábyrgð á árás­unum sem voru fram­kvæmdar af þremur hópum sem skipu­lögðu þær utan Frakk­lands.

Ráðist var á fólkið með hríð­skota­byssum og sprengjum við þjóð­ar­leik­vang Frakka, á börum, veit­inga­stöðum og í tón­leika­sal í París. Allir stað­irnir áttu það sam­eig­in­legt að vera staðir þar sem fólk fer til að skemmta sér. Til að horfa á fót­bolta, drekka, borða, hlusta á tón­list. Og sam­kvæmt fregnum flestra miðla heims var árás­unum ekki beint gegn neinum sér­stökum ein­stak­lingum. Árás­ar­menn­irnir voru að reyna að myrða sem flesta.

Einn árás­armann­anna hefur verið nafn­greindur, hann hét Omar Ismail Mostefai og var 29 ára gam­all Frakki.Nokkur fjöldi mögu­legra vit­orðs­manna hefur verið hand­tek­inn í Belgíu og yfir­völd í Frakk­landi, Belgíu, Grikk­landi og Þýska­landi vinna nú saman að því að kort­leggja hverjir hinir árás­ar­menn­irnir voru og hvert tengsla­net þeirra var. Grísk stjórn­völd hafa stað­fest við The Guardian að fréttir um að einn árás­armann­anna hafi komið til Evrópu frá Sýrlandi í gegnum Grikk­land séu ekki réttar.

Segir galið að taka við sýrlenskum flóttamönnum

Á fundi sínum í gær­kvöldi gagn­rýni Trump líka Barack Obama Banda­ríkja­for­seta harð­lega og sagði að leið­togi lands­ins vissi ekk­ert hvað hann væri að gera. Þar vís­aði hann sér­stak­lega í ákvörðun Obama um að taka við flótta­mönnum frá Sýrlandi.„Við erum öll með hjarta og við viljum öll að séð sé um fólk, en vegna þeirra vand­ræða sem landið okkar er í, að taka við 250.000, sem sumir hverjir munu eiga í vand­ræðum, miklum vand­ræðum, er bara galið. Við hlytum að vera galin. Hræði­legt.“

Samkvæmt CNN liggur ekki fyrir hvaðan Trump fékk þá hug­mynd að Banda­ríkin ætli að taka við 250.000 flótta­mönnum. Í sept­em­ber var til­kynnt að Banda­ríkin ætl­uðu að taka við að minnsta kosti tíu þús­und flótta­mönnum á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár