Eygló eini ráðherrann án aðstoðarmanns

Félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra er nú eini ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar án aðstoð­ar­manns eftir að fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður hennar var ráð­inn til for­sæt­is­ráð­herra. Hún hefur ekki ákveðið hvort hún ráði nýjan. Meiri­hluti ráð­herra er með tvo aðstoð­ar­menn.

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, hefur ekki tekið ákvörðun hvort hún ætli að ráða sér nýjan aðstoð­ar­mann. Hún er nú eini ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar sem er án aðstoð­ar­manns eftir að Matthías Imsland, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður hennar, var ráð­inn sem aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar for­sæt­is­ráð­herra á mánu­dag. Hann hafði verið Eygló til aðstoðar frá því í ágúst 2013.

„Ég er bara að velta þessu fyrir mér," segir Eygló í sam­tali við Kjarnann. „Það er mikið af góðu fólki í ráðu­neyt­inu mér til aðstoðar og svo er mjög gott og mikið sam­starf á milli ráð­herra í rík­is­stjórn­inni.”

Hún bendir á að mikil róter­ing hafi verið meðal aðstoð­ar­manna ráð­herra Fram­sóknar á kjör­tíma­bil­inu.

Ágúst Bjarni Garð­ars­son hafði til að mynda unnið bæði fyrir Eygló og Gunnar Braga Sveins­son utan­rík­is­herra áður en hann var ráð­inn aðstoð­ar­maður Sigurðar Inga Jóhans­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Margrét Gísla­dóttir var aðstoð­ar­maður Gunnars Braga en fór síðan til Sig­mundar Davíðs og Ing­veldur Sæmunds­dóttir starf­aði sem aðstoð­ar­maður Sigurðar Inga en fór yfir til Sigrúnar Magn­ús­dóttur umhverf­is­ráð­herra þegar hún tók við emb­ætti.

Stór mál eru framundan hjá Eygló á þing­inu, en hús­næð­is­frum­vörp hennar eru nú til umræðu í þing­nefnd og verða tekin fyrir á næstu vikum. Eygló segir Matthías hafa verið að sinna ákveðnum verk­efnum fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið á meðan hann var hennar aðstoð­ar­maður, meðal ann­ars varð­andi hús­næð­is­málin. En áfram sé mikið af góðu fólki í ráðu­neyt­inu henni til aðstoðar.

„Í stóru ráðu­neyti gerir aldrei neinn eitt­hvað einn. Ég ætla að sjá til og meta vel hvort ég þurfi á aðstoð­ar­manni að halda áður en ég tek ákvörðun,“ segir hún.

Alls starfa 14 form­legir aðstoð­ar­menn fyrir hina níu ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar.

Bjarni Bene­dikts­son, efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, Ólöf Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð og Sigurður Ingi eru öll með tvö aðstoð­ar­menn hvert.

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra, Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, Gunnar Bragi og Sigrún eru með einn aðstoð­ar­mann hvert.

Allir for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fjög­urra eru líka með einn aðstoð­ar­mann hvert á sínum snærum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár