Katrín látin vita af ámælisverðri hegðun Kolbeins Proppé fyrir um ári síðan

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna hvorki játar því né neitar, sem heim­ildir Kjarnans herma, að hún hafi verið upp­lýst um ámæl­is­verða hátt­semi þing­manns­ins Kolbeins Ó. Proppé gagn­vart konu fyrir um það bil ári síðan.

Forsætisráðherra segir að ef mögulegur þolandi myndi leita til sín vegna einhverra mála, teldi hún sig bundna trúnaði um þau samskipti.
For­sæt­is­ráð­herra segir að ef mögu­legur þol­andi myndi leita til sín vegna ein­hverra mála, teldi hún sig bundna trún­aði um þau sam­skipti. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna upp­lýst um ámæl­is­verða hegðun þing­manns­ins Kolbeins Ótt­ars­sonar Proppé í garð konu fyrir um ári síðan.

Þá hafa reynslu­sögur fleiri kvenna af Kolbeini verið á vit­orði margra innan og utan Vinstri grænna um nokk­urt skeið, en sem kunn­ugt er til­kynnti þing­mað­ur­inn fyrir réttum mán­uði síðan að hann myndi kveðja stjórn­málin vegna þess­ara mála.

Í skrif­legu svari, sem for­sæt­is­ráð­herra veitti Kjarn­anum eftir að fyr­ir­spurn blaða­manns hafði verið ítrekuð nokkrum sinnum, hvorki játar Katrín því né neitar að hafa fengið ábend­ingu um ámæl­is­verða hátt­semi Kolbeins fyrir um það bil ári síðan. Í svari hennar segir einnig að ef þol­andi myndi leita til sín vegna ein­hvers máls myndi hún telja sig bundna trún­aði um slík sam­skipti.

Formleg kvörtun um hegðun Kolbeins, sem barst fagráði Vinstri grænna í lok mars, kom upp á yfir­borðið þann 11. maí, er þing­mað­ur­inn sjálfur sendi frá sér yfir­lýs­ingu. Í kjöl­farið fékk Kjarninn upp­lýs­ingar um að leitað hefði verið til Katrínar vegna ann­ars máls fyrir um ári síðan.[links]

Vert er að taka fram að málið sem Katrín var upp­lýst um fyrir um það bil ári síðan er ekki hið sama og leiddi til kvört­unar til fagráðs, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Einnig er vert að taka fram að Kjarninn hefur ekki heim­ildir fyrir því að sú ámæl­is­verða hegðun gagn­vart konum sem Kolbeinn hefur orðið upp­vís að falli undir það sem telj­ast mætti sak­næmt athæfi.

Sagði að VG ætti ekki að þurfa að svara fyrir sína hegðun

Kolbeinn ákvað sem áður segir að hætta við þátt­töku í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík vegna þess­ara mála, en þing­mað­ur­inn hafði þó boðið sig fram til áfram­hald­andi þing­setu í Reykja­vík þrátt fyrir að hafa vit­neskju um form­lega kvörtun til fagráðs gagn­vart sér. Katrín sem for­maður flokks­ins hafði einnig fengið vit­neskju um það snemma í apríl að kvartað hefði verið undan þing­mann­inum, sem einnig er vara­for­maður þing­flokks VG, til fagráðs­ins undir lok mars­mán­aðar.

„Ég er hluti af valda­kerf­inu og ég er hluti af fem­inískum flokki sem á alltaf að standa með konum. Ég held að ég geti ekki staðið bæði með mér og kon­unum sem líður illa mín vegna á meðan ég er í fram­boði fyrir VG. Og Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð, eða nokkur þar innan borðs, á ekki að þurfa að svara fyrir mína hegðun,“ sagði þing­mað­ur­inn meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu sinni að kvöldi dags þann 11. maí.

Skjáskot af reynslu kvenna á flakki fyrir framboðsfund

Það sama kvöld stóð til að þing­mað­ur­inn tæki þátt í fyrsta fram­boðs­fund­inum vegna flokksvals Vinstri grænna í Reykja­vík.

Kolbeinn til­kynnti að hann væri hættur við fram­boðið skömmu fyrir þann fund og hefur Kjarninn heyrt að stemn­ingin á þessum fram­boðs­fundi hafi verið lituð af því sem fram kom í yfir­lýs­ingu þing­manns­ins, sem hann setti á Facebook um það leyti sem fund­ur­inn hófst. Hún var ögn „vand­ræða­leg“ eins og einn við­mæl­andi Kjarnans orð­aði það.

[adspot]

Þennan sama dag höfðu konur rætt um reynslu sína af Kolbeini á lok­uðum hópi á sam­fé­lags­miðlum. Kjarninn hefur upp­lýs­ingar um að skjá­skot af því sem fram kom í þeirri umræðu hafi borist til ein­stak­linga innan Vinstri grænna, þar á meðal með­fram­bjóð­enda Kolbeins, í aðdrag­anda fram­boðs­fund­ar­ins.

Sögur kvenna af sam­skiptum þeirra við Kolbein virð­ast þannig hafa verið við það að skjót­ast upp á yfir­borðið, sama dag og þing­mað­ur­inn til­kynnti að hann ætl­aði að draga sig í hlé frá stjórn­mála­þátt­töku.

Katrín upplýst um kvörtun til fagráðs VG í byrjun apríl

Kjarninn beindi fyrst spurn­ingum til for­sæt­is­ráð­herra vegna þess­ara mála allra þann 12. maí. Þá spurði blaða­maður hvenær Katrín hefði fyrst fengið vit­neskju um ein­hverjar ásak­anir í garð þing­manns­ins, hvort hún hefði rætt þessi mál við þing­mann­inn og hvort hún teldi, í ljósi þess sem fram hefði komið, rétt að Kolbeinn héldi áfram þing­störfum út kjör­tíma­bilið.

Skrifleg svör frá Katrínu bár­ust þann 17. maí. Ljóst er af svör­unum að for­sæt­is­ráð­herra tók því sem svo að blaða­maður væri ein­göngu að spyrja um það mál sem hafði verið í hámæli í umfjöllun fjöl­miðla dag­ana á undan og farið í form­legt ferli innan Vinstri grænna.

„Fagráð Vinstri-grænna upp­lýsti mig í byrjun apríl um að ein­stak­lingur hefði leitað til fagráðs­ins vegna þing­manns­ins,“ sagði Katrín í svari sínu. Hún kom því einnig á fram­færi að Kolbeinn hefði í sam­tali við sig útskýrt ákvörðun sína um að gefa ekki kost á sér „með svip­uðum hætti og hann gerði svo opin­ber­lega þennan sama dag“ og að hún teldi ákvörðun hans rétta. Katrín sagð­ist ekki gera athuga­semdir við að Kolbeinn lyki þing­vetr­inum.

For­sæt­is­ráð­herra fékk í fram­hald­inu aðra spurn­ingu frá blaða­manni, þar sem spurt var á skýr­ari hátt og áréttað að ekki væri ein­ungis átt við þá til­teknu kvörtun sem barst inn á borð fagráðs Vinstri grænna.

„Hafðir þú aldrei heyrt um erf­iða reynslu kvenna af Kolbeini eða ásök­unum í hans garð áður en fagráðið upp­lýsti þig um kvörtun vegna hans í byrjun apríl?“ spurði blaða­maður skrif­lega síð­degis 17. maí. Spurn­ingin var svo ítrekuð dag­ana 26. maí og 2. júní, án þess að svör skil­uðu sér.

Kjarninn beindi því annarri spurn­ingu til Katrínar 9. júní um það hvort rétt væri, sem heim­ildir Kjarnans herma, að hún hefði verið per­sónu­lega upp­lýst um ámæl­is­verða hegðun Kolbeins gagn­vart konu fyrir um ári síðan. „Er þetta rétt?“ spurði blaða­maður og svar barst í gær, fimmtu­dag­inn 10. júní.

Í svar­inu hvorki játar Katrín né neitar því sem spurt var um, sem áður segir. En jafn­framt segir hún að fagráð Vinstri grænna sé „sá far­vegur sem rétt er að leita til vegna mögu­legrar áreitni eða ofbeldis sem teng­ist starfi VG.“

„Fagráðið er bundið trún­aði og for­ysta hreyf­ing­ar­innar hefur ekki upp­lýs­ingar um það hverjir leita þangað. Að sama skapi teldi ég mig bundna trún­aði ef mögu­legur þol­andi leit­aði til mín. Hvað varðar mál þing­manns­ins sem spurt er um þá hefur fagráð VG fjallað um það og hann hefur sjálfur ákveðið að draga sig út úr stjórn­mála­starfi,“ segir einnig í svari Katrínar.

[box]

Framsögumaður í lykilmálum Vinstri grænna

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé hefur setið á þingi frá árinu 2016 sem alþing­is­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis suður. Hann hefur á þessu kjör­tíma­bili verið fram­sögu­maður nefnda í nokkrum lyk­il­málum Vinstri grænna.

Hann hefur meðal ann­ars verið fram­sögu­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar vegna stjórn­ar­skrár­frum­varps Katrínar Jak­obs­dóttur, sem enn er óvíst hvað verður um og sömu­leiðis fram­sögu­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar vegna frum­varps Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverfis- og auð­linda­ráð­herra um Hálend­is­þjóð­garð, sem búið er að slá út af borð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár