Erindi vegna Kolbeins barst til fagráðs Vinstri grænna í lok mars

Mál þing­manns­ins Kolbeins Ótt­ars­sonar Proppé er það fyrsta sem komið hefur inn á borð fagráðs Vinstri grænna gegn kyn­bundnu ofbeldi og ein­elti frá því fagráðið tók til starfa. Málið var komið í ferli áður en for­val í Suð­ur­kjör­dæmi fór fram.

Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna.
Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé þing­maður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Erindi vegna „ámæl­is­verðrar hegð­unar“ Kolbeins Ótt­ars­sonar Proppé þing­manns Vinstri grænna barst fagráði gegn kyn­bundnu ofbeldi og ein­elti innan hreyf­ing­ar­innar í lok mars­mán­aðar, sam­kvæmt svörum flokks­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Þetta er fyrsta málið sem kemur inn á borð fagráðs­ins, sem tók til starfa árið 2019. Áður hafði verið starf­rækt trún­að­ar­ráð hjá flokknum og til þess bár­ust í heild­ina tvö mál, sam­kvæmt svörum frá flokknum. Hvorugt þeirra varð­aði Kolbein.[links]

„Við með­ferð máls­ins var farið eftir verk­lags­reglum sem til­greindar eru í aðgerða­á­ætlun VG gegn ein­elti og kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi. Í verk­lags­reglum er gert ráð fyrir að ef grunur sé um refsi­vert athæfi sé máli vísað til lög­reglu, sem ekki átti við í þessu máli,“ segir í svari flokks­ins, sem barst frá fram­kvæmda­stjór­anum Björgu Evu Erlends­dóttur.

Kolbeinn til­kynnti í gær­kvöldi að hann ætl­aði að draga fram­boð sitt í for­vali flokks­ins í Reykja­vík til baka vegna máls­ins, en hann hafði sóst eftir að vera í öðru sæti á lista í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu.

Yfir­lýs­ing Kolbeins um þetta fór inn á Facebook örskömmu áður en fyrsti opni kynn­ing­ar­fundur fram­bjóð­enda í Reykja­vík fór fram í gegnum Zoom.

Málið var komið í ferli fyrir forvalið í Suðurkjördæmi

Áður en Kolbeinn boð­aði fram­boð í Reykja­vík hafði hann sóst eftir að leiða lista Vinstri grænna í Suð­ur­kjör­dæmi en náði ekki þeim árangri sem hann sótt­ist eftir þar, heldur end­aði í fjórða sæti í for­val­inu á eftir þremur konum.

Það for­val fór fram helg­ina 10.-12. apríl, eða um tveimur vikum eftir að erindi barst til fagráðs­ins, en ráðið á að kalla saman innan sjö daga frá því að erindi er mót­tekið og fundar fyrst með þeim sem sendi erindið inn, en síðan flokks­fé­lag­anum sjálfum sem erindið til fagráðs­ins laut að.

Ekki liggur fyrir hvort Kolbeinn var búinn að heyra frá fagráð­inu áður en það for­val fór fram, en þing­mað­ur­inn sagði þó í yfir­lýs­ingu sinni í gær að hann hefði vitað af erind­inu barst fagráð­inu hans vegna áður en hann tók ákvörðun um að bjóða sig fram í for­vali flokks­ins í Reykja­vík. Það fram­boð til­kynnti hann um 24. apríl.

[adspot]

„Ég ákvað engu að síður að gefa kost á mér í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík,“ skrif­aði Kolbeinn og bætti við að umræða und­an­far­inna daga, þar sem hund­ruð kvenna hafa vakið máls á kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi sem við­gengst í sam­fé­lag­inu, hefði haft áhrif á ákvörðun hans um að hætta við fram­boð.

„Ég er hluti af valda­kerf­inu og ég er hluti af fem­inískum flokki sem á alltaf að standa með konum. Ég held að ég geti ekki staðið bæði með mér og kon­unum sem líður illa mín vegna á meðan ég er í fram­boði fyrir VG. Og Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð, eða nokkur þar innan borðs, á ekki að þurfa að svara fyrir mína hegðun,“ skrif­aði Kolbeinn.

Hvernig starfar þetta fagráð?

Fagráðið gegn kyn­bundnu og ein­elti innan VG hefur það hlut­verk að taka við umkvört­unum um ótil­hlýði­lega hátt­semi félaga í VG. Því er ætlað að setja kvart­anir í form­legan far­veg og veita við­eig­andi stuðn­ing við úrvinnslu mála í sam­ráði við þann sem til­kynnir málið inn. Fagráðið hefur heim­ild til að leita sér fræðslu og fag­legrar ráð­gjafar við úrvinnslu mála á hvaða stigi sem er og skal VG fjár­magna hana. Fagráðið er bundið trún­aði gagn­vart máls­að­ilum.

Stjórn flokks­ins skipar þrjá félags­menn í fagráð til tveggja ára á fyrsta stjórn­ar­fundi eftir lands­fund eða flokks­ráðs­fund. Tekið fram í aðgerða­á­ætlun flokks­ins gegn ein­elti, kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni og ofbeldi að stjórn­ar­menn VG og starfs­fólk VG skulu ekki sitja í fagráði. Núver­andi fagráð gegn kyn­bundnu ofbeldi og ein­elti innan VG skipa þau Guðrún Ágústs­dóttir, Guðrún Ágústa Guð­munds­dóttir og Bjarki Þór Grön­feldt.

Verklag fagráðs­ins er með þeim hætti að það skal kallað saman innan sjö daga frá því að erindi er mót­tekið. Ef grunur leikur á að um refsi­vert athæfi sé að ræða þá leið­beinir fagráðið máls­hefj­anda um kæru til lög­reglu og ef málið fer í þann far­veg, á fagráðið að halda að sér höndum þar til skýrslu­tökum er lokið.

Ákveði máls­hefj­andi hins vegar að kæra ekki til lög­reglu en óskar eftir umfjöllun fagráðs skal það gert án tafar. Þá er fagráðið kallað saman með máls­hefj­anda og síðan fundar það með meintum ger­anda. Fagráð tekur síðan ákvörðun um far­veg erindis að teknu til­liti til máls­hefj­anda.

Athuga­semd rit­stjórnar: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar sagði að ekk­ert mál hefði borist til trún­að­ar­ráðs VG, sem starf­aði áður en fagráð gegn kyn­bundnu ofbeldi og ein­elti tók til starfa árið 2019. Hið rétta er að slík mál voru tvö tals­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár