Einstakri náttúru við Hagavatn verði ekki fórnað fyrir „hagnaðarvon einkaaðila“

Haga­vatns­virkjun myndi auka upp­fok en ekki minnka, að mati Sveins Run­ólfs­sonar fyrr­ver­andi land­græðslu­stjóra. Hann leggst alfarið gegn því að nátt­úru verði fórnað fyrir „hagn­að­ar­von eink­að­ila sem mun hafa bein, áhrif á stóran hluta almenn­ings í land­inu“.

Foss í Farinu, útrennsli Hagavatns.
Foss í Farinu, útrennsli Haga­vatns. Mynd: Ellert Grétarsson

Haga­vatns­virkjun gæti haft í för með sér alvar­lega svifryks­mengun á stórum byggða­svæðum. Kæmi til stækk­unar hinnar fyr­ir­hug­uðu virkj­unar síðar meir yrði upp­fokið enn meira.

Þetta segir Sveinn Run­ólfs­son, fyrr­ver­andi land­græðslu­stjóri, í athuga­semd sinni við til­lögu að mats­á­ætlun 9,9 MW Haga­vatns­virkj­unar sem Íslensk vatns­orka ehf. áformar sunnan Lang­jök­uls. Við miðlun í Haga­vatni, eins og hún er kynnt í til­lög­unni, myndi um 600 hekt­arar af jök­ul­leir­bornum vatns­botni verða þurr langt fram á sumar, „vænt­an­lega fram í ágúst og mun það að feng­inni reynslu frá Hálslóni og Blöndu­lóni leiða til mik­ils upp­foks og ein­hvers áfoks úr lóns­stæð­inu,“ skrifar Sveinn. Komi til virkj­unar muni sá gróður sem náð hefur að festa rætur á um 1.800 hekt­ara svæði eyð­ast með öllu.

Hug­myndir að virkjun Haga­vatns hafa verið uppi í nokkra ára­tugi. Fyrst var talað um 35 MW virkjun en í nýj­ustu til­lögu er hún orðin 9,9 MW, rétt undir þeim mörkum sem krefj­ast með­ferðar í ramma­á­ætlun en þar er til­laga um 20 MW virkjun í Haga­vatni í bið­flokki.

Þó að megawöttin séu færri er umfang fram­kvæmd­ar­innar sjálfrar hins vegar nokkuð sam­bæri­legt á milli til­lagna. Stíflur eru jafn margar, jafn háar og svipað langar og miðl­un­ar­lónið sem yrði til með stíflun Haga­vatns yrði jafn stórt.

Árni Bragason land­græðslu­stjóri sagði í við­tali við Kjarnann í vetur að allar hug­myndir um fyr­ir­hug­aða Haga­vatns­virkjun sem Íslensk vatns­orka ehf. hefði kynnt und­an­farin ár myndu, ef þær yrðu að veru­leika, auka upp­blástur á svæð­inu en ekki draga úr honum. Öflug land­mót­un­aröfl, skrið og hop jökla, eru að verki sunnan Lang­jök­uls. Sagði Árni að Land­græðslan hefði engin áform um að grípa inn í nátt­úru­lega ferla.

Sveinn, for­veri Árna hjá Land­græðsl­unni, gerir að eigin sögn „meiri­háttar athuga­semdir“ við ýmsar full­yrð­ingar sem settar eru fram í til­lögum að mats­á­ætlun Haga­vatns­virkj­unar. Hafa verði í huga að landið sunnan Haga­fellsjöklanna og Haga­fells sé óheppi­legt fyrir miðl­un­ar­lón vegna þess hversu flatt það er og að lónið yrði því á stórum svæðum mjög grunnt. Það er ástæða þess að gert er ráð fyrir að með virkjun myndi vatns­borðið sveifl­ast um fimm metra eftir árs­tíma.

Enn­fremur segir Sveinn að í til­lög­unni sé því rang­lega haldið fram að gerð miðl­un­ar­lóns í Haga­vatni yrði sam­bæri­leg þeirri fram­kvæmd er Land­græðsla rík­is­ins stóð fyrir árið 1986 þegar vatns­borð Sand­vatns á Hauka­dals­heiði var hækkað með stíflum. „Það yrði grund­vall­ar­munur á þessum tveimur aðgerðum, því eins og segir í inn­gang­inum í til­lögu að mats­á­ætlun er leit­ast við að halda vatns­borði Sands­vatns stöð­ugu, einmitt til þess að koma í veg fyrir að stór flæmi botns jök­ul­lóns verði þurr á vorin og fram á sum­arið.“

Skerðir sérkenni og náttúrugæði

Hann telur að yrði virkj­unin leyfð myndi það ganga þvert gegn mark­miðum lands­skipu­lags­stefnu. „Það hlýtur að vera alveg ljóst að umrædd fyr­ir­huguð virkjun, ekki síst miðl­un­ar­lónið með breyti­legri vatns­yf­ir­borðs­stöðu og til­heyr­andi upp- og áfoki, skerðir sér­kenni og nátt­úru­gæði mið­há­lend­is­ins og skerðir víð­erni þess með óaft­ur­kræfum hætti. Uppfok frá þurrum lóns­botni á vorin og langt fram á sumar verður miklu meira en nú er á fyr­ir­huguð lóns­stæði með til­heyr­andi skertum loft­gæðum og getur leitt til svifryks­meng­unar í aðliggj­andi byggðum langt yfir heilsu­fars­mörkum.“

[links]Æskilegt er að mati Sveins að hækka vatns­yf­ir­borð Haga­vatns með var­an­legum hætti „þó að það geti alls ekki talist brýn þörf við núver­andi aðstæður.“

Hann bætir svo við: „Það er hins vegar full­kom­lega ósam­rým­an­legt að nýta stækkað Hagavatn sem miðl­un­ar­lón til raf­orku­fram­leiðslu.“

Í athuga­semdum sínum rifjar Sveinn upp að Land­græðslan hafði á tíunda ára­tug síð­ustu aldar hug á því að stækka Hagavatn með stíflu. Mat á umhverf­is­á­hrifum þeirrar fram­kvæmdar var ekki sam­þykkt af umhverf­is­ráðu­neyt­inu og í kjöl­farið mættu hug­mynd­irnar mik­illi and­stöðu meðal fjölda umhverf­is­verndar- og ferða­þjón­ustu­að­ila. Þau fyr­ir­tæki sem ætl­uðu að styrkja og kosta fram­kvæmd­ina hættu við stuðn­ing sinn og Land­græðslan taldi sér ekki fært „að fara gegn slíkri and­stöðu“.

Í grein­ar­gerð með nýlegu aðal­skipu­lagi Blá­skóga­byggðar er talað um „end­ur­heimt Haga­vatns“ og vísað til þess að þó að stækkun vatns­ins myndi vissu­lega breyta ásýnd lands­ins á þessu svæði „þá ber að líta á það að Hagavatn náði yfir umrætt svæði allt þar til hjóp úr því árið 1939“.

Þessi full­yrð­ing um stærð Haga­vatns stenst ekki að sögn Sveins. „Það kann að vera að syðri strand­lína vatns­ins hafi verið nær því sem fyr­ir­hugað lón verði. En þá náðu Haga­fellsjökl­arnir miklu lengra til suð­urs en nú er. Miðl­un­ar­lón yrði því miklu stærra að flat­ar­máli en Hagavatn um 1900.“

Aukin þekking og reynsla af uppgræðslu

Í sömu grein­ar­gerð, sem ítrekað er vitnað til í til­lögu að mats­á­ætlun Haga­vatns­virkj­unar, stendur einnig að „end­ur­heimt Haga­vatns“ sé for­senda þess að hægt sé að ráð­ast í frek­ari land­græðslu­að­gerðir sunnan vatns­ins. Sveinn segir þessa full­yrð­ingu ekki heldur stand­ast með til­liti til auk­innar þekk­ingar og reynslu í upp­græðslu, „enda hefur all nokkuð verið unnið að land­græðslu sunnan og suð­vestan við vatnið á síð­ast­liðnum árum með ágætum árangri“.

Sveinn minnir á að þegar Land­græðslan áform­aði að stækka Hagavatn í lok síð­ustu aldar hafi aðilar í ferða­þjón­ustu mót­mælt því harka­lega. „Það að spilla þess­ari stór­kost­legu nátt­úru við Hagavatn með virkj­un­ar­fram­kvæmdum, mann­virkjum og stóru mann­gerðu jök­ul­lóni með til­heyr­andi upp­foki frá ströndum er ekki til þess fallið að gleðja augu ferða­manna.“

Í athuga­semdum sínum leggur Sveinn ríka áherslu á að hann búi á áhrifa­svæði „óhjá­kvæmi­legs upp­foks“ frá fyr­ir­hug­uðu miðl­un­ar­lóni og sem borg­ari þessa lands þá legg­ist hann „alfarið gegn því að þess­ari ein­stöku og fágætu nátt­úru við Hagavatn verði fórnað fyrir hagn­að­ar­von einka­að­ila sem mun hafa bein, nei­kvæð áhrif á stóran hluta almenn­ings í land­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár