„Nýtt virkjanaáhlaup“ á hálendi Austurlands verði stöðvað

Stjórn­völd þurfa að koma í veg fyrir að hálendi Aust­ur­lands verði raskað frekar og standa við fyr­ir­heit sem gefin voru um að þar yrði ekki virkjað meira. Þetta kemur fram í til­lögu að ályktun sem lögð verður fyrir aðal­fund Land­verndar á morgun.

Leirdalur með Leirdalsvatni og Leirdalsá falla í Geitdalsá. Í Leirdal hugsar Arctic Hydro sér upphafslón Geitdalsárrvirkjunar.
Leir­dalur með Leir­dals­vatni og Leir­dalsá falla í Geit­dalsá. Í Leirdal hugsar Arctic Hydro sér upp­haf­slón Geit­dalsárr­virkj­unar. Mynd: Hjörleifur Guttormsson

Fyrir aðal­fundi Land­verndar sem fram fer á morgun liggur ályktun þar sem kallað er eftir því að stjórn­völd komi í veg fyrir að hálendi Aust­ur­lands verði raskað frekar en orðið er með virkj­unum og tengdum fram­kvæmdum. Að minnsta kosti átta virkj­anir eru fyr­ir­hug­aðar á svoköll­uðu Hrauna­svæði. Sú stærsta, Ham­ar­s­virkjun sem Arctic Hydro áformar, er meðal þeirra virkj­ana­hug­mynda sem verk­efn­is­stjórn fjórða áfanga ramma­á­ætl­unar hefur fengið til með­ferðar.

Í til­lögu að ályktun Land­verndar segir að Orku­stofnun hafi úthlutað rann­sókn­ar­leyfum til virkja­na­und­ir­bún­ings á Hrauna­svæð­inu – í lands­hluta þar sem Óbyggða­nefnd hefur enn ekki ráð­ist í lög­boðna grein­ingu á mörkum milli þjóð­lendna og eign­ar­landa.

Í grein­ar­gerð með til­lögu að ályktun Land­verndar er rifjað upp að í aðdrag­anda Kára­hnjúka­virkj­unar og aðliggj­andi Hrauna­veitna austan Snæfells voru gefin fyr­ir­heit um að ekki ætti að virkja meira fyrir austan. „Nú er hins vegar hafið nýtt virkj­ana­á­hlaup undir for­merkjum „smá­virkj­ana“ allt að 9,9 mega­vöttum að afli. Margar slíkra virkj­ana eru stækk­an­legar og hefðu því átt að vera teknar til umfjöll­unar innan ramma­á­ætl­unar. Í þessu sam­bandi virð­ist sem Orku­stofnun hafi van­rækt eft­ir­lits­hlut­verk sitt.“

Nafn­giftin Hraun nær yfir víð­lent hálend­is­svæði frá Eyja­bökkum við Snæfell austur yfir vatna­skil, um inn­an­verðan Geitdal og Háups að fjall­veg­inum yfir Öxi og niður í drög suð­ur­fjarða (Álfta­fjarðar, Ham­ars­fjarðar, Fossár­dals og Beru­fjarðar). Hraunum teng­ist til norð­urs Horn­brynja (961 m) og norðan Horn­brynjuslakka er langur Hraun­garður (1002 m) milli Gils­ár­dals og Geitdals.

Tvær stórar virkj­anir voru á áform­aðar á Hrauna­svæð­inu fyrir nokkrum árum: Hrauna­virkjun til Beru­fjarðar (126 MW) og Hrauna­virkjun til Suð­ur­dals í Fljóts­dals (115 MW), líkt og rifjað var upp í nýlegri frétta­skýr­ingu Kjarnans um málið.

Svo horft sé enn lengra í bak­sýn­is­speg­il­inn voru virkj­anir á Hrauna­svæð­inu fyr­ir­hug­aðar sem hluti af risa­vax­inni Hrauna- og Jök­ulsár­veitu við upp­haf ald­ar­innar. Sú veita tók m.a. til Kára­hnjúka, Eyja­bakka og vatns­falla á Hrauna­svæð­inu.

[links]Hug­mynd­irnar átta sem eru til skoð­unar á svæð­inu nú, í mörgum þeirra áa sem stóru virkj­an­irnar tvær gerðu ráð fyrir, eru nær allar undir 10 MW. Þar af leið­andi þurfa þær ekki lögum sam­kvæmt að fara í gegnum ferli ramma­á­ætl­unar. Orku­stofnun hefur gefið út rann­sókn­ar­leyfi vegna þeirra allra, fimm til Orku­söl­unnar ehf., sem er í eigu Rarik og þar með rík­is­ins, og þrjú til Arctic Hydro, félags sem er í 40% eigu Bene­dikts Ein­ars­sonar.

Í grein­ar­gerð Land­verndar kemur fram að með Hrauna­veitu, sem varð mun minni í sniðum en áformað hafði verið í upp­hafi, hafi vatni verið veitt af vest­asta hluta Hrauna (Sauðár, Keldá) til Kára­hnjúka­virkj­unar. Þá var vatns­yf­ir­borð Ódáða­vatna hækkað með stíflu á sínum tíma og miðlað til Gríms­ár­virkj­unar. „Eftir stendur samt afar víð­lent afrétta­svæði, jarð­fræði­lega sér­stætt og ósnortið nema af beit og nokkrum veg­slóðum.“

Þá er því lýst í grein­ar­gerð­inni að vestan vatna­skila á Hraunum sé afréttin Vill­inga­dalur fram með „óskertri og fossum prýddri Sult­ar­ranaá og Fellsá og í hana fellur Strútsá með tví­þrepa Strúts­fossi sem gefur Hengi­fossi ekki eftir um glæsi­leik“.

Það er mat stjórnar Land­verndar að óraskaðar séu umræddar afréttir á Hraunum „kjör­inn efni­viður“ í sér­stakt nátt­úru­vernd­ar­svæði, en gætu í fram­tíð­inni tengst mið­há­lend­is­þjóð­garði.

„Það vekur furðu að stjórn­völd hafi gefið kost á samn­inga­við­ræðum um orku­nýt­ingu og víð­tæk vatns­rétt­indi á svæðum innan hálendis Aust­ur­lands þar sem enn hefur ekki verið gengið frá mörkum þjóð­lendu og eign­ar­landa,“ segir enn fremur í grein­ar­gerð­inni með álykt­un­ar­til­lög­unni. „Veru­legur hluti þeirra svæða sem nú liggja undir á Hraunum sbr. áform um Geit­dals­virkjun og Ham­ars­ár­virkjun eru á lendum rík­is­ins og í almanna­eigu. Var­huga­vert er, nema brýnir sam­fé­lags­legir hags­munir kalli á, að ráð­stafa nýt­ingu lands og vatna til einka­að­ila, ekki síst áður en úrskurður um þjóð­lendu­mörk liggur fyrir. Ekki verður séð að neinir slíkir hags­munir séu í húfi eystra eða á lands­mæli­kvarða. Næg raf­orka er í land­inu til að mæta eðli­legri eft­ir­spurn og fyr­ir­séð að svo verður áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár