Afstaða til Hagavatnsvirkjunar liggur ekki fyrir

Sveit­ar­stjóri Blá­skóga­byggðar segir að afstaða sveit­ar­stjórnar til fyr­ir­hug­aðrar Haga­vatns­virkj­unar verði tekin þegar nið­ur­stöður mats á umhverf­is­á­hrifum liggja fyrir. Áhersla sé lögð á að rann­sakað verði hvaða áhrif sveifla í yfir­borði vatns­ins hefði.

Á fyrstu árum 20. aldar var Hagavatn um 30 ferkílómetrar að stærð en er í dag um 4 km². Árið 1929 brast jökulstífla og mikið hlaup varð í Farinu og Tungufljóti. Tíu árum seinna hljóp Hagavatn aftur og við þetta lækkaði vatnsyfirborðið um 10 metra.
Á fyrstu árum 20. aldar var Hagavatn um 30 fer­kíló­metrar að stærð en er í dag um 4 km². Árið 1929 brast jök­ulstífla og mikið hlaup varð í Farinu og Tungufljóti. Tíu árum seinna hljóp Hagavatn aftur og við þetta lækk­aði vatns­yf­ir­borðið um 10 metra. Mynd: Ellert Grétarsson

Sveit­ar­stjórn Blá­skóga­byggðar hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort fyr­ir­huguð virkjun við Hagavatn sunnan Lang­jök­uls yrði til bóta hvað varðar jarð­vegs­fok og svifryks­mengun og þar með ekki heldur hvort fram­kvæmdin hljóti braut­ar­gengi. Það verður ekki gert fyrr en nið­ur­stöður mats á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmd­ar­innar liggja fyrir.

Þetta kemur fram í skrif­legum svörum Ástu Stef­áns­dóttur, sveit­ar­stjóra Blá­skóga­byggðar, við fyr­ir­spurn Kjarnans. Hún segir að sveit­ar­stjórn hafi lýst yfir ánægju með að hin fyr­ir­hug­aða fram­kvæmd fari í fullt ferli við mat á umhverf­is­á­hrifum og að hún hafi lagt áherslu á að til­teknir þættir yrðu skoð­aðir sér­stak­lega, þar á meðal hvaða áhrif sveifla á vatns­yf­ir­borði kunni að hafa svo og að kannað yrði hver áhrifin yrðu á jarð­vegs­fok og svifryks­mengun. „Það er ekki að ástæðu­lausu að þessir þættir eru dregnir fram en í þurr­viðri þegar er vinda­samt þá leggur gíf­ur­lega mikið af svifryki yfir byggð­ina hér,” segir Ásta.

Fyrstu hug­myndir að Haga­vatns­virkjun gerðu ráð fyrir að hún yrði allt að 35 MW. Í 3. áfanga ramma­á­ætl­unar, sem en hefur ekki verið afgreiddur á Alþingi, er 20 MW Haga­vatns­virkjun enn í bið­flokki. Í rann­sókn­ar­leyfi sem Íslensk vatns­orka ehf. fékk hjá Orku­stofnun og end­ur­nýjað var í fyrra er gert ráð fyrir um 18 MW virkjun. Í til­lögu að mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar var hins vegar miðað við 9,9 MW virkjun, rétt undir þeim mörkum sem kalla á með­ferð verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar. Hvergi kemur fram að um fyrsta áfanga stærri virkj­unar sé að ræða.

Orku­stofnun gerir í umsögn sinni athuga­semdir við þetta og segir að í frum­mats­skýrslu beri að fjalla um hugs­an­lega áfanga­skipt­ingu virkj­unar á síð­ari stigum. Þá vekur stofn­unin athygli á því að til­lög­unni er ekki til­greint hvers vegna til­högun 9,9 MW virkj­unar er lögð fram nú og að ekki er heldur tekið fram að gerður verði sam­an­burður milli mis­mun­andi útfærsla á virkjun sem þegar hafi verið álitnir raun­hæfir.

[links]Spurð hvernig hug­myndin að virkj­un­inni hafi verið kynnt fyrir sveit­ar­stjórn Blá­skóga­byggðar segir Ásta að í kynn­ing­ar­efni Íslenskrar vatns­orku frá því í mars árið 2017 sé talað um 9,9 MW virkjun. Í því sé engar hug­leið­ingar að finna um að sú fram­kvæmd sé hugsuð sem fyrsti áfangi að stærri virkjun. Ásta tók við starfi sveit­ar­stjóra sum­arið 2018.

Sveit­ar­stjórn Blá­skóga­byggðar og áður stjórnar Bisk­ups­tungna­hrepps hafa lengi haft mik­inn áhuga á því að hækka vatns­yf­ir­borð Haga­vatns til að freista þess að stöðva sand­fok og hefta upp­blástur frá svæð­inu sunnan Lang­jök­uls.

Í grein­ar­gerð með nýju aðal­skipu­lagi Blá­skóga­byggðar frá árinu 2017 segir að til að auka hag­kvæmni af end­ur­heimt Haga­vatns, eins og það er orðað, þá sé sveit­ar­stjórn hlynnt því að nýta stækkað Hagavatn til raf­orku­fram­leiðslu. Í grein­ar­gerð­inni er miðað við útfærslu virkj­un­ar­kost­ar­ins sam­kvæmt öðrum áfanga ramma­á­ætl­unar en þar, líkt og nú, var gert ráð fyrir að virkja Farið, útfall Haga­vatns, hækka vatns­borð og nota það sem miðl­un­ar­lón. Uppsett afl virkj­unar var þá áætlað um 20 MW. Fram kemur að „end­ur­heimt Haga­vatns“ sé for­senda þess að hægt sé að ráð­ast í frek­ari land­græðslu­að­gerðir sunnan vatns­ins.

Árni Bragason for­stjóri Land­græðsl­unnar sagði í við­tali við Kjarnann í vetur að allar hug­myndir um fyr­ir­hug­aða Haga­vatns­virkjun sem Íslensk vatns­orka ehf. hefði kynnt und­an­farin ár myndu, ef þær yrðu að veru­leika, auka upp­blástur á svæð­inu en ekki draga úr honum. Öflug land­mót­un­aröfl, skrið og hop jökla, eru að verki sunnan Lang­jök­uls. Sagði Árni að Land­græðslan hefði engin áform um að grípa inn í nátt­úru­lega ferla.

Í til­lögu að mats­á­ætlun 9,9 MW Haga­vatns­virkj­unar stendur að stíflun vatns­ins myndi hefta áfok af svæð­inu og yrði aðgerðin sam­bæri­leg þeirri sem Land­græðslan stóð fyrir við Sandvatn á sínum tíma. „Eini mun­ur­inn er sá að vatns­borði Sand­vatns er haldið stöð­ugu á meðan gert er ráð fyrir að sveifla vatns­borði Haga­vatns um 5 m“.

Órökstudd fullyrðing

Í umsögn Land­græðsl­unnar um til­lög­una er þessi full­yrð­ing gagn­rýnd. „Land­græðslan telur þessa full­yrð­ingu úr lausu lofti gripna og órök­studda með öllu,“ segir í umsögn­inni. Stofn­unin gerði sam­bæri­lega athuga­semd er drög til­lög­unnar voru kynnt síð­asta haust en full­yrð­ingin er engu að síður látin standa í end­an­legu til­lög­unni sem kynnt var og aug­lýst á vef Skipu­lags­stofn­unar.

„Áhrif hækk­unar vatns­yf­ir­borðs Sand­vatns eru fyrst og fremst vegna þess að vatns­hæðin er jöfn yfir árið og þannig dregur vissu­lega úr upp­foki af svæð­inu, þ.e. upp­blást­urs­svæðum er var­an­lega sökkt,“ segir í umsögn Land­græðsl­unnar. „Í til­felli Haga­vatns­virkj­unar yrði sand­svæðum ekki var­an­lega sökkt að öllu leyti heldur leiðir mun­ur­inn á vatns­hæð­inni til þess að reikna má með að allt að 600 [hekt­arar] séu með stöð­ugu raski vegna breyti­legs vatns­yf­ir­borðs og fyr­ir­séð að frá því svæði verði veru­legt upp­fok t.d. í þurrka­tíð líkt og sum­arið 2019.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár