Þegar bóluefnið lendir mun enn þurfa að sannfæra marga

Breskir ráða­menn stíga nú fram og segj­ast til­búnir að láta bólu­setja sig í beinni útsend­ingu til að auka til­trú á bólu­efnum. Ný dönsk sam­an­burð­ar­rann­sókn sýnir mis­mik­inn bólu­setn­ing­ar­vilja á milli ríkja og að traust í garð yfir­valda ráði miklu þar um.

Bóluefni Pfizer og BioNTech fer í dreifingu í Bretlandi í næstu viku. Risastór áfangi. En munu nægilega margir vilja láta bólusetja sig?
Bóluefni Pfizer og BioNTech fer í dreif­ingu í Bret­landi í næstu viku. Risastór áfangi. En munu nægi­lega margir vilja láta bólu­setja sig? Mynd: EPA

Þær óvæntu fregnir bár­ust frá Bret­landi í gær að heim­ild hefði verið veitt til þess að byrja að sprauta fyrstu skömmt­unum af bólu­efn­inu frá Pfizer og BioNTech í fólk. Ráðamenn lýstu því yfir að bólu­setn­ingar for­gangs­hópa gætu haf­ist strax í næstu viku.

Bretland verður því að lík­indum fyrsta landið á Vest­ur­löndum sem byrjar að gefa þegnum sínum bólu­efni gegn kór­ónu­veirunni. Lyfja­stofnun Evrópu hefur gefið út að nið­ur­stöðu varð­andi bólu­efni Pfizer sé að vænta fyrir lok árs, en bólu­setn­ingar á Íslandi eru háðar sam­þykki þaðan, enda Ísland í sam­floti með Evr­ópu­sam­band­inu varð­andi kaup og dreif­ingu bólu­efna.[links]

Það virð­ist bjart­ara framundan í glímunni við veiruna vegna þeirra fregna sem hafa borist af bólu­efna­þróun und­an­farnar vikur, en þó gæti van­traust almenn­ings gagn­vart bólu­efnum reynst mikil þraut. Nýlegar rann­sóknir hafa sýnt fram á að þjóðir heims eru afar mis­mót­tæki­legar fyrir því að láta bólu­setja sig gegn COVID-19.

Ný sam­an­burð­ar­rann­sókn sem unnin var við Árósa­há­skóla í Danmörku sýnir að um 79 pró­sent Dana myndu nær örugg­lega eða vafa­laust þiggja bólu­efni gegn COVID-19 yrði þeim boðið það, en sam­an­burður rann­sak­enda við önnur vest­ræn ríki varpar þó ljósi á að vilj­inn er ekki alls staðar svona mik­ill.

[adspot]

Nið­ur­stöður dönsku rann­sókn­ar­innar, sem rétt er að taka fram að eru alveg glæ­nýjar og hafa ekki enn verið rit­rýndar, sýna fram á að hlut­fall þeirra sem segj­ast ekki vilj­ugir til þess að þiggja bólu­setn­ingu er víð­ast hvar yfir 10 pró­sent og sum­staðar tölu­vert hærra.

Ónægur vilji til að hægt væri að ná hjarðónæmi í sumum ríkjum

Spurn­ingin sem lögð var fyrir þátt­tak­endur í þess­ari rann­sókn til þess að mæla vilja þeirra til bólu­setn­ingar var eft­ir­far­andi: „Ef heil­brigð­is­yf­ir­völd ráð­leggja fólki eins og mér að þiggja sam­þykkt bólu­efni gegn kór­ónu­veirunni, mun ég fara að þeirra ráðum.“

Fólk gat svo valið um hvort það væri sam­mála eða ósam­mála þess­ari full­yrð­ingu, á skal­anum 1-5, þar sem 1 þýddi mjög ósam­mála og 5 þýddi mjög sam­mála. 

Í ljós kom að ein­ungis um 38 pró­sent Ungverja gáfu til kynna vilja til þess að láta bólu­setja sig gegn COVID-19, 41 pró­sent Frakka og 48,5 pró­sent Banda­ríkja­manna.

Hlut­fallið slef­aði síðan yfir 50 pró­sent í Svíþjóð og var 54 pró­sent í bæði Þýska­landi og á Ítalíu. Í Bret­landi var hlut­fallið 65 pró­sent, sam­kvæmt dönsku rann­sókn­inni, sem not­að­ist við sam­ræmdar spurn­inga­listak­ann­anir í þessum átta löndum. Kann­an­irnar voru fram­kvæmdar á tíma­bil­inu frá sept­em­ber og fram í nóv­em­ber.

Það verk­efni virð­ist því bíða yfir­valda víða að reyna að auka traust þeirra sem í dag eru með efa­semdir um bólu­efni og fá þau inn í þann hóp sem seg­ist næstum viss eða alveg viss um að vilja láta bólu­setja sig gagn­vart COVID-19, verði mælt með því.

Hlutfall ónæmra þar enda að vera tölu­vert hærra en það hlut­fall sem seg­ist vilja láta bólu­setja sig í þessum löndum til að hjarð­ó­næmi mynd­ist og veiran hætti að valda ama. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur bent á að um 60 pró­sent íbúa á Íslandi þyrftu að vera ónæmir fyrir veirunni til að hjarð­ó­næmi næð­ist. Það að ein­ungis rúm 40 pró­sent Frakka seg­ist vera til­búin að láta bólu­setja sig er því vanda­mál.

Bólusetningar í beinni?

Matt Hancock, heil­brigð­is­ráð­herra Bret­lands, mætti í við­tal í morg­un­þátt­inn Good Morning Britain til þeirra Piers Morgan og Susanne Reid í gær­morgun, skömmu eftir frétt­irnar af sam­þykki Pfizer-bólu­efn­is­ins í Bret­landi höfðu borist fólki til vit­undar.

Í við­tal­inu spurði Piers Morgan, sem er einn þekkt­asti sjón­varps­maður Breta, heil­brigð­is­ráð­herr­ann að því hvort hann væri reiðu­bú­inn að láta bólu­setja sig í beinni útsend­ingu í þætt­inum í næstu viku. Þóttist Morgan þess full­viss að bólu­setn­ing heil­brigð­is­ráð­herr­ans í beinni myndi hafa „mikil áhrif“ og senda rétt skila­boð út í sam­fé­lagið.

„Við þyrftum að fá þetta sam­þykkt, því það er auð­vitað for­gangs­raðað eftir lækn­is­fræði­legri þörf og sem betur fer ert þú sem heil­brigður mið­aldra maður ekki efstur á lista. En ef við fáum þetta sam­þykkt og fólki finnst þetta ásætt­an­legt þá er ég til í þetta. [...] Ef það getur sann­fært ein­hvern annan um að sann­færa ein­hveja um þeir ættu að láta bólu­setja sig þá tel ég það þess virði,“ sagði heil­brigð­is­ráð­herr­ann.

Nicola Sturgeon, fyrsti ráð­herra Skotlands og leið­togi Skoska þjóð­ar­flokks­ins, sagði einnig frá því á blaða­manna­fundi í gær að hún væri til í að láta bólu­setja sig í sjón­varps­út­send­ingu, ef talið væri að það myndi fá fleiri til að und­ir­gang­ast bólu­setn­ingu. Blaða­full­trúi Boris Johnsons for­sæt­is­ráð­herra steig einnig fram í þess­ari umræðu í Bret­landi í gær og lét hafa eftir sér að ekki væri ekki úti­lokað að Boris væri til í að láta bólu­setja sig í sjón­varp­inu.

Það hljómar kannski und­ar­lega að þetta sé í umræð­unni í Bret­landi nú, en spurn­ing er hvort nán­asta fram­tíð hér á landi beri það í skauti sér að lands­þekkt fólk úr fram­lín­unni eins og Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra eða Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir muni mæta til Gísla Marteins eitt­hvert föstu­dags­kvöldið og láta bólu­setja sig í beinni, til þess að auka til­trú þjóð­ar­innar.

Traust er nefni­lega lyk­il­at­riði þegar kemur að því hvort fólk vilji láta bólu­setja sig eður ei.

Nið­ur­stöður dönsku rann­sókn­ar­innar gefa til kynna að hjá þeim sem skorti vilja til þess að láta bólu­setja sig gegn COVID-19 séu þrír þættir helst ein­kenn­andi; lítið traust til yfir­valda, trú á sam­sær­is­kenn­ingar og litlar áhyggjur af sjúk­dómnum sjálfum. Þetta eru meg­in­stefin, þrátt fyrir að ein­hverjar breytur hafi mis­mikið vægi á milli landa.

Hvað með Ísland?

Ísland kemur vel út þegar horft er til þess­ara þriggja þátta sem danska rann­sóknin dregur fram. Hér á landi hefur traust til heil­brigð­is­yf­ir­valda verið í hæstu hæðum nær allt frá því að veiran fór að láta á sér kræla, trú á sam­sær­is­kenn­ingar er lítt útbreidd og ein­ungis lít­ill hluti almenn­ings telur of mikið gert úr heilsu­fars­legum afleið­ingum veirunnar.

Þetta, auk þess að að rann­sóknir und­an­far­innar ára hafa sýnt fram á að nær allir hér á landi hafi trú að bólu­setn­ingar séu áhrifa­ríkar til að koma í veg fyrir sjúk­dóma, sýnir að ef til vill verður lítil þörf á því að ráð­herrar eða læknar láti bólu­setja sig í beinni hjá Gísla Marteini, svo að við hin öðl­umst trú og traust.

Þó kom fram í rann­sókn sem alþjóð­lega fyr­ir­tækið Wellcome Trust lét gera árið 2018 að um 40 pró­sent aðspurðra Íslend­inga væru í ein­hverjum vafa um öryggi bólu­efna. Sótt­varna­læknir sagði við það tæki­færi, í til­kynn­ingu á vef land­læknis, að þörf væri á betri upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings um öryggi bólu­efna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár