Katrín: Góður árangur í baráttu við veiruna getur orðið styrkleiki ferðaþjónustu

For­sæt­is­ráð­herra segir að hag­ræn rök hnigi að því að herða beri aðgerðir á landa­mærum til þess að tryggja að inn­an­lands­hag­kerfið verði ekki fyrir of miklu raski af hörðum sótt­varna­ráð­stöf­unum. Óvíða í Evrópu hafi frelsi manna verið tak­markað minna en hér.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að ákvörðun rík­is­stjórnar Íslands um að herða aðgerðir á landa­mærum, eð því að taka þar upp tvö­falda skimun með fjög­urra til fimm daga sótt­kví á milli sem val­kosti við 14 daga sótt­kví, hafi verið byggð á nokkrum þáttum.

Þróun far­ald­urs­ins hér heima og erlendis, þar sem smitum er að fjölga, hafi skipt þar mestu svo hægt yrði að verja líf og heilsu fólks og tryggja að sam­fé­lagið geti gengið áfram með sem eðli­leg­ustum hætti.

Hún skilji umræðu um hag­ræna þætti ákvörð­un­ar­innar og þá gagn­rýni sem sett hefur verið fram um skerð­ingu á borg­ara­legum rétt­indum sem henni fylgi.

Þetta kemur fram í grein sem for­sæt­is­ráð­herra birtir í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar fjallar Katrín líka um hag­ræna grein­ingu sem rík­is­stjórnin lét vinna í aðdrag­anda þess að farið var að skima á landa­mærum. Þar vísar hún vænt­an­lega í minn­is­blað fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sem lagt var fram í rík­is­stjórn sama dag og ákvörð­unin var til­kynnt, þann 14. ágúst, og Kjarninn greindi frá síðar það kvöld. Þar sagði meðal ann­ars að „efna­hags­legir hags­munir af því að kom­ast hjá hörðum sótt­varna­að­gerðum geta hlaupið á hund­ruðum millj­arða króna“.

Flókið að meta áhrif á efnahagslífið

Í grein Katrínar segir að margt áhuga­vert hafi komið fram í þeirri grein­ingu, meðal ann­ars að hag­ræn rök hnigi að því að herða beri aðgerðir á landa­mærum til þess að tryggja að inn­an­lands­hag­kerfið verði ekki fyrir of miklu raski af hörðum sótt­varna­ráð­stöf­unum. Þ„ar er enn fremur bent á að ferða­tak­mark­anir sem ákveðnar eru hér á landi eru ekki það eina sem ræður fjölda ferða­manna, þar skipta ferða­tak­mark­anir ann­arra ríkja líka máli en einnig almennur ferða­vilji sem gera má ráð fyrir að minnki þegar far­ald­ur­inn er í miklum vexti.“

[adspot]]Hún segir að mat á áhrifum sótt­varn­ar­að­gerða á efna­hags­lífið sé þó flókið og að ólíkar atvinnu­greinar verði fyrir mis­mun­andi áhrifum. Augljóst sé að harðar aðgerðir á landa­mærum hafa einkum nei­kvæð áhrif á ferða­þjón­ustu en harðar sótt­varna­ráð­staf­anir inn­an­lands hafa einnig víð­tæk áhrif á allar atvinnu­greinar, líka ferða­þjón­ustu. „Þrátt fyrir erf­iða stöðu erum við svo lánsöm að íslensk nátt­úra og fag­leg ferða­þjón­usta munu halda áfram að laða hingað gesti hvaðanæva úr heim­inum. Ef Íslandi mun takast vel upp í bar­átt­unni við veiruna getur það orðið styrk­leiki ferða­þjón­ust­unnar til lengri tíma.“

Katrín fer yfir mis­mun­andi áhrif aðgerða á sam­drátt í ýmsum nágranna­löndum okkar í grein­inni, og vitnar þar í gögn frá Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Á öðrum árs­fjórð­ungi þessa árs hafi þýska hag­kerfið til að mynda dreg­ist saman um tíu pró­sent og það breska um 20 pró­sent, en þar hafi þurft að ráð­ast í gríð­ar­lega harðar sótt­varna­að­gerðir inn­an­lands. „Áhuga­vert er að sjá að sam­dráttur í Danmörku (-7,4 pró­sent) og Finn­landi (-3,2 pró­sent) á þessum sama árs­fjórð­ungi er minni en í Svíþjóð (-8,6 pró­sent) sem þó beitti væg­ari sótt­varna­ráð­stöf­unum. Þarna spilar margt inn í en segir okkur samt að ekki er hægt að draga þá ein­földu ályktun að harðar sótt­varna­ráð­staf­anir skili sjálf­krafa meiri sam­drætti.“

Segir umræðu um borgaraleg réttindi mikilvæga

For­sæt­is­ráð­herra fjallar líka um umræð­una um borg­ara­leg rétt­indi, en ýmsir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem situr í rík­is­stjórn hennar, hafa verið sér­stak­lega dug­legir við að gagn­rýna áhrif sótt­varn­ar­að­gerða á þau rétt­indi.

[links]Katrín segir að um mik­il­væga umræðu sé að ræða og furðar sig á því að hún hafi ekki vaknað fyrr. „Vissu­lega hafa sótt­varna­ráð­staf­anir haft áhrif á rétt­indi lands­manna þó að óvíða í Evrópu hafi frelsi manna verið tak­markað minna en hér á landi sein­ustu sex mán­uði. Það hversu hratt fólk kemst yfir landa­mæri Íslands er ekki það eina sem máli skiptir, líta þarf til sam­fé­lags­ins alls. Það þarf að líta til skóla­starfs, menn­ingar- og íþrótta­starfs og vega og meta þær umtals­verðu hömlur sem settar hafa verið á atvinnu­rétt­indi þús­unda manna. Mestu tak­mark­an­irnar hafa snú­ist um hjúkr­un­ar­heim­ili sem hafa verið vernduð hér á landi, tug­þús­undir eldri borg­ara og þeir sem haldnir eru alvar­legum sjúk­dómum hafa mátt búa við veru­lega félags­lega ein­angrun.“

Mat rík­is­stjórn­ar­innar sé að fimm daga ferða­tími yfir landa­mærin væri væg­ari skerð­ing rétt­inda en ýmsar þær hömlur sem gripið var til í vor og yfir­vof­andi væru ef það tæk­ist ekki að halda veirunni í skefjum. „Bar­átt­unni við veiruna er hvergi nærri lokið. En þegar henni lýkur er okkar mark­mið að hægt verði að segja að saman hafi okkur tek­ist að vernda heilsu, efna­hag og frelsi okkar þannig að þjóð­lífið allt verði fyrir sem minnstum skaða og þjóð­inni tak­ist að vinna hratt til baka það sem tap­ast hefur í þessum far­aldri. Í opnu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi er mik­il­vægt að fram fari umræða um ólíka þætti þess­arar bar­áttu og eðli­legt að það sé rætt með gagn­rýnum hætti hvernig gripið er inn í dag­legt líf fólks og hvernig efna­hags­lífi þjóð­ar­innar verði sem best borgið. Stefna íslenskra stjórn­valda hefur frá upp­hafi verið skýr; að verja líf og heilsu fólks og tryggja sem eðli­leg­astan gang alls sam­fé­lags­ins. Allar aðgerðir okkar end­ur­spegla þessi leið­ar­ljós og miða að því að tryggja hag almenn­ings á Íslandi sem allra best.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár