Sjálfboðaliðar keyra út matvæli og nauðsynjavörur til fólks sem á þarf að halda

Hópur sjálf­boða­liða hefur komið sér saman og í sam­vinnu við Fjöl­skyldu­hjálp Íslands hefur hann ákveðið að koma mat­vælum og nauð­synjum til fjöl­skyldna og ein­stak­linga sem reiða sig á mat­ar­út­hlut­anir í hverjum mán­uði.

Hópur sjálf­boða­liða og Fjöl­skyldu­hjálp Íslands hafa tekið höndum saman til að koma mat­vælum og nauð­synjum til fjöl­skyldna og ein­stak­linga sem reiða sig á mat­ar­út­hlut­anir í hverjum mán­uði, en vegna sam­komu­banns sem tekur gildi á morgun er ekki lengur hægt að við­hafa hefð­bundnar leiðir til úthlut­unar.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sjálf­boða­liða­hópnum.

Ákveðið hefur verið að setja af stað vinnu við skrán­ing­ar­síðu, að fengnu leyfi frá Almanna­vörnum og með vit­und emb­ættis sótt­varn­ar­læknis. Þar verður hægt að senda inn beiðnir um úthlutun og á morgun verður opnað síma­ver þar sem hægt er að hringja inn í síma­núm­erið 551-3360. Síma­verið verður mannað fólki sem talar íslensku, pólsku, spænsku og arab­ísku og er ætlað þeim sem ekki hafa aðgang að net­inu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá hópnum.

Gripið til allra nauðsynlegra varúðarráðstafana við afhendingu

Þá kemur fram í til­kynn­ingu að allt að 500 heim­ili á höf­uð­borg­ar­svæð­inu reiði sig á úthlut­anir af þessu tagi og því komi sam­komu­bannið afar illa við þetta fólk. Með því að sýna sam­stöðu og reiða sig á góð­vild ann­arra hafi hins vegar tek­ist með sam­stilltu átaki að fá fjölda fólks, stofn­ana, fyr­ir­tækja, sam­taka og ann­arra til að sjá til þess að úthlut­anir fari fram.

Farið verður í sam­vinnu við Slysa­varna­fé­lagið Lands­björgu með úthlut­anir til þeirra sem treysta á þær og mun það vænt­an­lega hefj­ast um miðja viku. Gripið er til allra nauð­syn­legra var­úð­ar­ráð­staf­ana við afhend­ingu í sam­ræmi við opin­ber til­mæli og aðgerðir, að því er fram kemur í til­kynn­ing­unni.

Átakið fengið gríðarlega góðar undirtektir

Stein­grímur Sævarr Ólafsson, for­svars­maður hóps­ins, segir í sam­tali við Kjarnann að átakið hafi fengið gríð­ar­lega góðar mót­tökur og und­ir­tektir.

Hann segir enn fremur að allir átti sig á að þessir við­kvæmu hópar – á borð við inn­flytj­endur, aldr­aða, hæl­is­leit­endur og fleiri – þurfi á frek­ari aðstoð að halda.

Þegar Stein­grímur er spurður út í það hvernig þetta verk­efni hafi byrjað þá segir hann að gæða­hjónin Rósa Braga­dóttir og Ásgeir Ásgeirs­son, sem ekk­ert aumt megi sjá, hafi fengið þessa hug­mynd og fengið fólk sem hugsar á sömu nótum til að taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár