Lagt til að 25 prósent tekna erlendra sérfræðinga verði skattfrjálsar í þrjú ár

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp með ýmis­konar breyt­ingum til að styðja við fjár­mögnun og rekstur nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja. Hann vill veita erlendum sér­fræð­ingum ákveðið skatt­frelsi og auka end­ur­greiðslur vegna rann­sóknar og þró­unar.

Bjarni Benediktsson leggur fram frumvarpið.
Bjarni Bene­dikts­son leggur fram frum­varpið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Erlendir sér­fræð­ingar sem ráðnir verða til starfa hér á landi munu ein­ungis þurfa að greiða skatta af 75 pró­sent af tekjum sínum í þrjú ár verði nýtt frum­varp Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um breyt­ingar á ýmsum lögum til að styðja við fjár­mögnun og rekstur nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja og smærri fyr­ir­tækja í vexti að lögum. Fjórð­ungur tekna þeirra verður því skatt­frjálsar og und­an­þegnar stað­greiðslu skatta í umrædd þrjú ár. Í frum­varp­inu er einnig lagt til að núgild­andi skattaí­viln­anir til nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar verði hækk­aðar veru­lega. Hámark slíks kostn­aðar til almennrar við­mið­unar á frá­drætti á að hækka úr 100 millj­ónum króna í 300 millj­ónir króna og úr 150 í 450 millj­ónir króna þegar um aðkeypta rann­sóknar- og þró­un­ar­þjón­ustu er að ræða frá ótengdu fyr­ir­tæki, háskóla eða rann­sókna­stofnun.

Auk þess gerir frum­varpið ráð fyrir að breyt­ingu á skatta­legri með­ferð tekna vegna kaupa manns á hluta­bréfum sam­kvæmt kaup­rétti sem hann hefur öðl­ast vegna starfa fyrir anna aðila með þeim hætti að tekj­urnar verða skatt­lagðar við sölu bréf­anna í stað afhend­ing­ar­dags eins og nú er. Þá er lagt til að hagn­aður eig­enda breyti­legra skulda­bréfa, sem breytt er í hluta­bréf á lægra verði en gildir almennt á mark­aði, verði skatt­lagður við sölu skulda­bréf­anna í stað nýt­ingar breytirétt­ar­ins, að ein­stak­lingar sem kaupa hluta­bréf í fyr­ir­tækjum sem falla undir frum­varpið geti fengið skatta­af­slátt vegna þeirra kaupa og að veltu­við­mið við skil­grein­ingu lít­illa fyr­ir­tækja verði leið­rétt með til­vísun til­vísun í nýja reglu­gerð í lögum um stuðn­ing við nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki og lögum um íviln­anir til nýfjár­fest­inga á Íslandi.

Frum­varp­inu var dreift 4. apríl síð­ast­lið­inn, dag­inn eftir frægan Kast­ljós­þátt sem opin­ber­aði aflands­fé­laga­tengsl íslenskra ráða­manna. Það vakti því litla athygli þegar því var dreift. Fyrsta umræða um frum­varpið fer fram á Alþingi í dag.

Á að laða erlenda sérfræðinga til landsins

Sú breyt­ing að veita erlendum sér­fræð­ingum sem ráða sig til starfa á Íslandi skatta­af­slátt er í sam­ræmi við það sem gert hefur verið víða í lönd­unum í kringum okkur til að tryggja aukna sam­keppn­is­hæfni. Í frum­varp­inu segir: „ Með þeirri breyt­ingu sem hér er lögð til er stefnt að því að greiða fyrir og laða að land­inu erlenda sér­fræð­inga til starfa hér á landi, ekki hvað síst í íslenskum tækni- og rann­sókn­ar­fyr­ir­tækjum og háskóla­sam­fé­lag­inu. Margir telja að á Íslandi vanti fólk með sér­fræði­þekk­ingu á vissum sviðum, svo sem tækni­menntað starfs­fólk, starfs­fólk með hug­bún­að­ar­þekk­ingu og þekk­ingu á mark­aðs­setn­ingu á stórum erlendum mörk­uðum auk sér­fræð­inga til kennslu í háskóla­sam­fé­lag­inu. Ákvæðinu er þar með ekki ætlað að taka til íþrótta­manna eða þjálf­ara sem ekki eru beinir þátt­tak­endur í atvinnu­líf­inu.“

Tillagan er að mestu að sænskri fyr­ir­mynd og hvetur fyr­ir­tæki til að koma á fót hágæða­starf­semi innan lands sem geri þeim auð­veld­ara fyrir að fá til sín aðila sem búa yfir nauð­syn­legri þekk­ingu og hæfni svo að ekki þurfi að fara með við­kom­andi starf­semi úr landi. „Mikil verð­mæti geta verið fólgin í því að fá sér­fræði­þekk­ingu til lands­ins þar sem þekk­ing er af skornum skammti. Vegna þessa hafa lönd eins og t.d. Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Finnland, Holland og Kanada sett reglur um skatta­lega hvata til að laða til sín erlenda sér­fræð­inga og eru þær mik­il­vægur liður í að tryggja sam­keppn­is­hæfni í við­skipta­um­hverfi við­kom­andi landa. Ísland er eina Norð­ur­landa­þjóðin sem ekki hefur lög­fest ákvæði sem ætlað er að bæta um­hverfi erlendra sér­fræð­inga, svo sem sér­fræð­inga í rann­sóknum og þróun, fram­leiðslu, stjórnun, skipu­lagn­ingu, mark­aðs­setn­ingu, verk­fræði, fjár­málum, upp­lýs­inga­tækni, sam­skipta­tækni og kennslu, svo eitt­hvað sé nefnt.“

Kallaði eftir breytingum

Kjarninn birti við­tal við Pétur Már Hall­dórs­son, fram­kvæmda­stjóra nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Nox Medical í lok síð­asta mán­aðar, örfáum dögum áður en frum­varp­inu var dreift. Þar sagði hann meðal ann­ars að Ísland væri ekki sam­keppn­is­hæft eins og er þeg­ar kemur að upp­bygg­ingu fyr­ir­tækja eins og Nox Med­ical. Hvat­arnir og tæki­færin séu ein­fald­lega meiri ann­ars stað­ar. Það þurfi þó ekki að vera þannig. Ákvörð­un­in sé ein­fald­lega póli­tísk og snú­ist um vilja.
Pétur sagði að hækka þyrfti þakið á end­ur­greiðslum rík­is­ins vegna fjár­fest­ingar í rann­sóknum og þróun, sem er í dag þannig að ríkið greiðir 20 pró­sent til baka fyrir allt að 100 millj­ónum króna sem settar eru í slíkt. Hann benti á að Nox Medical væri til að mynda ða fjár­festa fyrir 300 millj­ónir króna á ári í rann­sóknum og þróun og væri því komið langt umfram end­ur­greiðslu­há­markið í þeirri við­leitni sinni að þróa nýjar vörur og stækka umfang rekst­urs síns. Ef Nox Med­ical væri stað­sett til dæmis í Ástr­al­íu, þar sem helsti sam­keppn­is­að­ili fyr­ir­tæk­is­ins er með heim­il­is­festi, væri end­ur­greiðslan 45 pró­sent af öllu sem eytt væri í rann­sóknir og þróun og hámarks­greiðslur eru bundnar við tekj­ur, ekki fasta upp­hæð.„Hvar er þá skyn­sam­legt fyrir okkur að fara í upp­bygg­ing­u? Því miður er svarið ekk­ert flókið og reikn­ings­dæmið ekki held­ur, það er ekki á Ís­landi. Við viljum vera hérna en það er mun skyn­sam­ara og hag­kvæmara fyr­ir­ okkur að byggja þennan hluta starf­sem­inn­ar, rann­sóknir og þró­un, upp í til­ ­dæmis Ástr­al­íu,“ sagði Pétur.

Í við­tal­inu sagði hann einnig frá þv´iað erfitt væri að manna fyr­ir­tæki á borð við Nox Medical á meðan að það væri með starf­semi sína hér­lendis. „ Ef Nox Med­ical væri stað­sett til dæmis í Ástr­al­íu, þar sem helsti sam­keppn­is­að­ili fyr­ir­tæk­is­ins er með heim­il­is­festi, væri end­ur­greiðslan 45 pró­sent af öllu sem eytt væri í rann­sóknir og þróun og hámarks­greiðslur eru bundnar við tekj­ur, ekki fasta upp­hæð.

„Hvar er þá skyn­sam­legt fyrir okkur að fara í upp­bygg­ing­u? Því miður er svarið ekk­ert flókið og reikn­ings­dæmið ekki held­ur, það er ekki á Ís­landi. Við viljum vera hérna en það er mun skyn­sam­ara og hag­kvæmara fyr­ir­ okkur að byggja þennan hluta starf­sem­inn­ar, rann­sóknir og þró­un, upp í til­ ­dæmis Ástr­al­íu.“

Frum­varpið sem rætt verður um í dag gerir ráð fyrir að þetta breyt­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár