Lægstu verðtryggðu vextirnir nálægt þremur prósentum

Breyti­legir verð­tryggðir vextir á lánum hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna eru nú 3,06 pró­sent. Sjóð­ur­inn setti nýverið upp auknar hindr­anir gagn­vart lán­töku. Bank­arnir bjóða best 3,65 pró­sent.

Vextir á breyti­legum íbúða­lánum hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna eru nú 3,06 pró­sent. Vext­irnir á lán­unum sem sjóð­ur­inn býður upp á taka breyt­ingum 15. hvers mán­aðar og ákvarð­ast þannig að þeir eru 0,75 pró­sent hærri en með­al­á­vöxtun síð­asta mán­aðar á ákveðnum flokki íbúða­bréfa, sem skráður er í kaup­höll Nasdaq OMX. Lækkun meg­in­vaxta Seðla­banka Íslands skilar sér því nær alltaf beint í lækkun breyti­legra vaxta í sjóð­fé­lags­lánum hans, en slíkir vextir voru lækk­aðir um 0,25 pró­sent í gær. Þeir vextir sem Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er að bjóða sínum sjóðs­fé­lögum eru lægstu vexti sem hægt er að fá á verð­tryggðum íbúða­lánum á Íslandi í dag.

Ýmsir aðrir líf­eyr­is­sjóðir bjóða líka upp á mjög sam­keppn­is­hæfa vexti. Þannig eru breyti­legir vextir lána hjá Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR) t.d. nú 3,26 pró­sent og hjá Gildi eru þeir 3,35 pró­sent. Vert er að taka fram að sjóð­irnir bjóða upp á mis­mun­andi veð­hlut­fall. LSR býður upp á allt að 75 pró­sent veð­hlut­fall en Gildi upp að 65 pró­sent. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna bauð upp á 75 pró­sent veð­hlut­fall þar til í síð­asta mán­uði þegar það var lækkað niður í 70 pró­sent, vegna mik­illa hækk­ana á hús­næð­is­mark­aði. Samhliða til­kynnti sjóð­ur­inn að hann miði ekki lengur við mats­verð fast­eigna við útreikn­inga útlána heldur ein­ungis við mark­aðs­verð sam­kvæmt kaup­samn­ingi eða fast­eigna­mat. Það gerir það að verkum að erf­ið­ara verður fyrir ýmsa, sér­stak­lega þá sem eru að kaupa fyrstu fast­eign, að taka lán hjá sjóðnum.

Íslensku við­skipta­bank­arnir geta ekki boðið upp á sam­bæri­leg kjör og líf­eyr­is­sjóð­irnir. Á „stóru“ lánum þeirra, sem veitt eru á skap­legri vöxtum upp að 70 pró­sent veð­hlut­falli, eru lægstu breyti­legu vextir 3,65 pró­sent hjá Lands­bank­anum og Arion banka. Íslands­banki býður ekki upp á breyti­lega vexti en þar er hægt að fá fasta verð­tryggða vexti til fimm ára á 3,95 pró­sent kjörum.

Segja bankaskatt rýra eignir ríkisins

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa verið að taka til sín sífellt stærri hluta af íbúða­lána­mark­aðnum á und­an­förnum mán­uðum og árum. Um það verður fjallað sér­stak­lega á Kjarn­anum á morgun. Það hafa þeir m.a. gert með því að hækka veð­hlut­fallið sitt og bjóða upp á mun betri kjör á bæði verð­tryggðum og óverð­tryggðum lánum en við­skipta­bank­arnir hafa getað boðið upp á. Þeir hafa haldið því fram að banka­skattur, og önnur sér­tæk skatt­lagn­ing sem við­skipta­bönkum er gert að greiða en aðrir lán­veit­endur á borð við líf­eyr­is­sjóði þurfa ekki að greiða, skipti þar sköpum. Í umsögn sem Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja sendu efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingis í maí í fyrra beindu sam­tökin því til Alþingis að líf­eyr­is­sjóðum ætti að vera óheim­ilt að lána til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja og köll­uðu beinar lán­veit­ingar sjóð­anna „skugga­banka­starf­semi“.

Katrín Júl­í­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, sagði í sjón­varps­þætti Kjarnans fyrir rúmum mán­uði síðan að við­skipta­bank­arnir standi ekki jafn­fætis líf­eyr­is­sjóðum þegar kemur að útlánum vegna þess að banka­skatt­ur­inn er bara lagður á banka. Það sama eigi við gagn­vart erlendum lán­veit­end­um, sem séu aftur orðnir mjög sterkir hjá stóru fyr­ir­tækj­unum á Íslandi.

„Þannig að sam­keppn­is­staða bank­anna hefur skekkst mjög mikið og þetta getur til lengri tíma haft mjög alvar­leg áhrif á eigna­söfn þess­ara banka og við skulum þá ekki gleyma því að bank­arnir eru í eigu rík­is­ins og skatt­borgar­anna að tveimur þriðju hluta til. Þannig að virði eigna skatt­borgar­anna í þessu til­viki eru og geta rýrnað þegar til lengri tíma lætur ef þessi skattur heldur áfram vegna þess að sam­keppn­is­staðan er ekki sú sama,“ sagði Katrín. Þetta muni hafa áhrif á arð­greiðslur og á virði þess­ara eigna sem séu í eigna rík­is­ins í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár