Ánægja með ríkisstjórnina ekki mælst minni á árinu

Sitjandi rík­is­stjórn mæld­ist með góðan stuðn­ing lands­manna í könn­unum allra fyr­ir­tækja sem mæla hann í apríl síð­ast­liðnum. Síðan þá hefur stuðn­ing­ur­inn dreg­ist skarpt saman og er nú sá minnsti sem mælst hefur á árinu.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur setið að völdum síðan seint á árinu 2017.
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur setið að völdum síðan seint á árinu 2017. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ánægja með störf rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur hefur ekki mælst minni en hún mælist nú á árinu 2021. Þetta er nið­ur­staða nýrrar könn­unar Maskínu sem birt var í gær, en fyr­ir­tækið hefur frá ára­mótum spurt um ánægju fólks með bæði stjórn og stjórn­ar­and­stöðu.

Í byrjun sept­em­ber sögð­ust alls 37 pró­sent aðspurðra vera ánægðir með störf rík­is­stjórn­ar­innar. Í jan­úar mæld­ist ánægja með störf hennar 39,2 pró­sent og þegar best lét á þessu ári, í apríl, mæld­ist ánægjan 48,2 pró­sent. Síðan þá hefur ánægjan með rík­is­stjórn­ina hríð­fallið um næstum fjórð­ung.

Ánægja með störf stjórn­ar­and­stöðu hefur að sama skapi líka dreg­ist saman. Í upp­hafi árs mæld­ist hún 14,6 pró­sent og í júlí var hún 15,8 pró­sent. Í ágúst datt ánægja með stjórn­ar­and­stöð­una skarpt niður í 10,4 pró­sent og í nýj­ustu könnun Maskínu mæld­ist hún 10,9 pró­sent.

[adspot]Gallup mælir einnig stuðn­ing við rík­is­stjórn­ina. Í upp­hafi árs mæld­ist hann 59,1 pró­sent og í apríl hafði hann risið upp í 60,9 pró­sent. Síðan þá hefur stuðn­ing­ur­inn fallið skarpt og mæld­ist 54,9 pró­sent í lok ágúst. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hafði ekki mælst minni í könn­unum Gallup frá því í mars 2020, eða áður en að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á af fullum krafti.

MMR mælir sömu­leiðis stuðn­ing rík­is­stjórnar á hverjum tíma. Í byrjun árs var hann 50,9 pró­sent hjá því fyr­ir­tæki og reis hæst í 56,2 pró­sent í apríl.

Líkt og hjá hinum könn­un­ar­fyr­ir­tækj­unum þá sýna nið­ur­stöður MMR að stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina hefur verið að dala. Í lok síð­ustu viku mæld­ist hann 47,7 pró­sent. Hann hefur ekki mælst minni í könn­unum MMR síðan í febr­úar í fyrra.

Með meiri stuðning á lokametrunum en síðustu ríkisstjórnir

Þótt vin­sældir rík­is­stjórn­ar­innar hafi dalað þá nýtur hún samt sem áður meiri stuðn­ings en fimm síð­ustu rík­is­stjórnin gerðu á loka­spretti til­veru sinnar. Þegar rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks var að renna sitt skeið í aðdrag­anda kosn­inga 2007 sögð­ust 52 pró­sent kjós­enda styðja hana sam­kvæmt könnun Gallup.

[links]Næsta rík­is­stjórn, sem sam­an­stóð af Sjálf­stæð­is­flokki og Sam­fylk­ingu og með Geir H. Haarde sem for­sæt­is­ráð­herra, end­aði sína til­veru með ein­ungis 26 pró­sent stuðn­ing, en hún féll skömmu eftir banka­hrunið. Við tók rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, sem Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir leiddi, sem varð fljótt ansi óvin­sæl og síð­asta könnun Gallup á stuðn­ingi við hana fyrir kosn­ing­arnar 2013 sýndi að 34 pró­sent lands­manna studdu hana.

Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, undir for­sæti Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, var næst til að setj­ast í kringum rík­is­stjórn­ar­borðið. Opin­berun Panama­skjal­anna gerði það að verkum að hún þurfti að boða til kosn­inga áður en kjör­tíma­bil­inu lauk. Í síð­ustu könnun sem gerð var á stuðn­ingi við hana fyrir haust­kosn­ing­arnar 2016 sögð­ust 37,3 pró­sent styðja hana.

Þá var komið að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, sem sam­an­stóð af Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn og Bjartri fram­tíð sem sat frá jan­úar 2017 og fram í miðjan sept­em­ber sama ár. Í síð­ustu könnun Gallup á stuðn­ingi við hana mæld­ist hann 30,9 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár