Vilja að þeir sem misstu fasteign í bankahruninu fái ríkisstuðning

Fjórir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja að lög um fyrstu fast­eign, og sá stuðn­ingur sem veittur er í gegnum þau til fast­eigna­kaupa, nái einnig til ein­stak­linga sem „misst hefðu fast­eign við nauð­ung­ar­sölu vegna banka­hruns­ins.“

Fyrsti minni­hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar, sem inni­heldur fjóra þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vilja að lög um stuðn­ing til kaupa á fyrstu íbúð verði látin „ná til kaupa ein­stak­linga, sem misst hefðu fast­eign við nauð­ung­ar­sölu vegna banka­hruns­ins, á nýrri fast­eign.“ Þing­menn­irnir fjórir vilja Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, taki þessa hug­mynd til nán­ari skoð­unar og leggi frum­varp þess efnis fram fyrir Alþingi fyrir árs­lok 2017. Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti fyrsta minni­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar um frum­varp til laga um stuðn­ing til kaupa á fyrstu íbúð og lögum um opin­ber fjár­mál. [links]

Undir álitið rita Óli Björn Kárason (for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar) Vil­hjálmur Bjarna­son, Njáll Trausti Frið­berts­son og Brynjar Níelsson. Í álit­inu kemur fram að Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi verið fjar­ver­andi við afgreiðslu máls­ins en að full­trúi Við­reisnar í nefnd­inni sé sam­þykkur álit­inu.

Lítið notað úrræði

Kjarninn greindi frá því í byrjun maí að 3.514 ein­stak­lingar hafi nýtt sér heim­ild til að nota sér­eign­ar­sparnað sinn sem útborgun fyrir íbúð frá miðju ári 2014 og fram til loka mars 2017. Sam­tals hefur þessi hópur nýtt 1,1 millj­arð króna til að afla sér hús­næð­is. Um er að ræða bæði þá sem höfðu átt hús­næði áður og þá sem voru að kaupa sér sína fyrstu fast­eign. Þetta kom fram í svari fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið.

Um er að ræða sam­blöndu tveggja úrræða. Ann­ars vegar heim­ild sem allir Íslend­ingar fengu, sem hluta af Leið­rétt­ing­unni, til að nota sér­eign­ar­sparn­að­inn sinn skatt­frjálst sem útborgun vegna hús­næð­is­kaupa. Sú heim­ild gildir frá miðju ári 2014 og fram til júníloka 2019. Hins vegar er um að ræða úrræði stjórn­valda fyrir fyrstu fast­eign­ar­kaup­end­ur, sem kall­ast „Fyrsta fast­eign“. Það snýst um að leyfa þeim sem eru að kaupa fyrstu fast­­eign að nýta sér­­­eign­­ar­­sparnað sinn skatt­frjálst til að greiða niður lán, nota sem útborgun eða lækka afborg­­anir í tíu ár.

Ljóst er að nýt­ing á ofan­greindum úrræðum er langt frá því sem lagt var upp með þegar þau voru kynnt.

„Fyrsta fast­eign“ átti að skila 15 millj­arða skattafslætti

Fyrra úrræði, sem heim­il­aði notkun á sér­eign­ar­sparn­aði sem útborgun vegna hús­næð­is­kaupa frá miðju ári 2014 til júníloka 2019, hefur ekki nýst mörgum lands­mönn­um. Kjarn­inn greindi frá því í fyrra að þegar tvö ár voru liðin af þeim tíma sem heim­ild til slíkra nota voru liðin höfðu lands­menn nýtt 520 millj­ónir króna í þeim til­gangi.

[adspot]

15. ágúst í fyrra, rúmum tveimur mán­uðum fyrir kosn­ing­ar, kynntu Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son for­­sæt­is­ráð­herra síðan áætlun rík­­is­­stjórnar sinnar fyrir fyrstu fast­­eigna­­kaup­end­ur, sem kölluð var „Fyrsta fast­eign“. Í áætl­un­inni fólst að rík­is­sjóður myndi gefa fyrstu fast­eign­ar­kaup­endum 15 millj­arða króna skatta­af­slátt á tíu ára tíma­bili, ef þeir myndu kjósa að nota sér­eign­ar­sparnað til að kaupa hús­næði. Fyrstu fast­eign­ar­kaup­endum yrði auk þess gert kleift að nota sér­­­eign­­ar­­sparnað til að lækka mán­að­­ar­­legar afborg­­anir lána sinn til við­­bótar við að greiða hann beint inn á höf­uð­stól þeirra. Heild­ar­á­hrif aðgerð­anna, þ.e. sam­tala sér­eign­ar­sparn­aðar sem not­aður yrði sem útborgun og þess skatta­af­sláttar sem ríkið ætl­aði að gefa, átti að vera 50 millj­arðar króna.

Ef skatt­afslátt­ur­inn átti að ná að verða 15 millj­arðar króna þurftu 14 þús­und manns að nýta sér úrræðið strax á árinu 2017 og svo þyrftu um tvö þús­und manns að bæt­ast við á hverju ári.

Kjarn­inn kall­aði eftir tölum frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu um hversu margir væru að nýta sér úrræðin tvö. Sam­kvæmt þeim tölum er nýt­ingin mun minni en reiknað var með í kynn­ingum stjórn­mála­mann­anna. Sam­tals hafa 3.514 ein­stak­lingar nýtt sér úrræðin tvö og þeir hafa sam­tals notað 1,1 millj­arð króna sem útborgun fyrir hús­næði. Sam­kvæmt því má ætla að veittur skatt­afsláttur rík­is­ins vegna úrræð­anna tveggja sé nú um 400 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár