Að minnsta kosti 12 þingmenn ætla að hætta

Flestir þing­menn sem ætla að hætta eftir þetta kjör­tíma­bil eru í Fram­sókn­ar­flokknum. Aðeins einn þing­maður innan VG ætlar að hætta. Sjálf­stæð­is­flokkur missir reynslu­mikla þing­menn frá borði.

Brynhildur (A), Einar K. (D), Frosti (B), Hanna Birna (D), Helgi Hrafn (Þ), Katrín (S), Kristján (S), Páll Jóhann (B), Róbert (A), Sigrún (B), Vigdís (B) og Ögmundur (V) ætla öll að hætta á Alþingi.
Bryn­hildur (A), Einar K. (D), Frosti (B), Hanna Birna (D), Helgi Hrafn (Þ), Katrín (S), Kristján (S), Páll Jóhann (B), Róbert (A), Sigrún (B), Vigdís (B) og Ögmundur (V) ætla öll að hætta á Alþingi.

Að minnsta kosti 12 sitj­andi þing­menn ætla ekki að gefa kost á sér í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Þar af eru flestir í Fram­sókn­ar­flokknum, þrír þing­menn og einn ráð­herra. Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, gaf það út í dag að hún ætli ekki að gefa kost á sér í odd­vita­sæti í Reykja­vík og ætli þar með að láta af þing­mennsku. Ekki er ólík­legt að með þessu sé hún að veita Lilju Alfreðs­dóttur utan­rík­is­ráð­herra rými til reyna við odd­vita­sætið. Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverfis- og auð­lind­ar­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, ætlar líka að hætta, sem og Frosti Sig­ur­jóns­son, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, og Páll Jóhann Pálsson þing­maður.

Fæstir hætta hjá VG

Í þing­manna­liði Sam­fylk­ingar ætla þau Katrín Júl­í­us­dóttir vara­for­maður og Kristján Möller, fyrr­ver­andi ráð­herra, að segja skilið við þingið. Hjá Bjartri fram­tíð eru það þau Bryn­hildur Pét­urs­dóttir og Róbert Marshall sem ætla að hætta. Ögmundur Jónasson, fyrr­ver­andi ráð­herra, er sá eini hjá VG sem ætlar að hætta eftir kjör­tíma­bilið.

Fer fylgið með Helga?

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­flokks­for­maður Pírata, til­kynnti óvænt um helg­ina að hann ætl­aði ekki að halda áfram á þingi og beita sér heldur í gras­rót­ar­starfi flokks­ins. Það verður áhuga­vert að sjá hvort sú ákvörðun muni hafa áhrif á gengi Pírata í skoð­ana­könn­unum, en þeir hafa mælst með mesta fylgið und­an­farna mán­uði. Helgi hafði áður sagst ætla að halda áfram á þingi, en í við­tali við Kjarnann í vor við­ur­kenndi hann þó að hann vildi hvorki halda áfram að vera þing­maður né verða ráð­herra. Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, gaf út í dag að hún vilji leiða list­ann í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu. Hún tók sæti á Alþingi þegar Jón Þór Ólafsson hætti eftir tveggja ára þing­setu.

Endurnýjun í Sjálfstæðisflokknum

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missir þrjá reynslu­mikla stjórn­mála­menn úr sínum röðum í haust. Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra og vara­for­maður flokks­ins, og Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir þing­flokks­for­maður ætla ekki að bjóða sig fram á ný. Ragn­heiður hefur að vísu ekki úti­lokað að bjóða sig fram fyrir Viðreisn þegar hún hefur verið innt eftir því.

Maður kemur þó í manns stað, en þær Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, aðstoð­ar­maður Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra, hafa báðar til­kynnt að þær ætli að bjóða sig fram til Alþingis í kom­andi kosn­ingum fyrir flokk­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár