Vigdís Hauksdóttir hættir á þingi

Vigdís Hauks­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ætlar að hætta á þingi eftir þetta kjör­tíma­bil. Þetta segir Vigdís í frétta­til­kynn­ingu.

Þar segir hún: „Í sam­ráði við mína nán­ustu hef ég ákveðið að sækj­ast ekki eftir odd­vita­sæti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík og læt ég þar með af þing­mennsku fyrir flokk­inn eftir næstu alþing­is­kosn­ingar. Hætta skal hverjum leik þá hæst hann stendur – ég er stolt af verkum mínum á Alþingi – þar sem ég hef lagt allt undir fyrir land og þjóð. Má þar nefna Icesave og bar­átt­una gegn ESB umsókn­inni, aðför­ina að stjórn­ar­skránni, bar­átt­una við kröfu­haf­ana sem leiddu loks til skulda­nið­ur­fell­ingar fyrir heim­ilin í land­inu svo eitt­hvað sé nefnt.

Nú er fram­tíðin björt fyrir land og þjóð – það var ekki svo þegar ég hóf störf sem þing­maður. Á ára­bil­inu 2009 – 2013 var þjóð­inni sundrað með sífelldum átaka­málum í stað sam­heldni. Síðasta stóra verk­efnið mitt áður en ég læt af þing­mennsku er að leiða fram stað­reyndir um afhend­ingu tveggja stóru bank­anna til kröfu­haf­anna og upp­lýsa um vinnu­brögð kringum Lands­bank­ann og Icesave. Öll gögn liggja nú fyrir og verður upp­lýst um þessi mál í sum­ar­lok.

Lífið hefur alltaf verið mér gott og fært mér nýjar og spenn­andi áskor­anir, tæki­færi og úrlausn­ar­efni þegar ég hef ákveðið breyta um vett­vang og trúi ég að svo verði einnig nú.

Ég þakka fram­sókn­ar­mönnum í Reykja­vík og kjós­endum mínum í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður fyrir stuðn­ing­inn. Einnig þakka ég mik­inn og áþreif­an­legan stuðn­ing í starfi mínu frá fólki hvaðanæva af land­inu og Íslend­ingum búsettum erlendis langt, langt út fyrir flokksraðir. Sá stuðn­ingur er ómet­an­legur og hefur drifið mig áfram í bar­átt­unni fyrir land og þjóð.

Megi Ísland verða frjálst, sjálf­stætt og full­valda ríki um ókomin ár“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár