Willum Þór sækist eftir oddvitasæti Framsóknar í Kraganum

Willum Þór Þórsson sæk­ist eftir áfram­hald­andi for­ystu á lista Fram­sóknar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir Alþing­is­kosn­ingar í haust. Willum tók fyrst sæti fyrir flokk­inn á þingi árið 2013.

Willum Þór Þórsson, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sæk­ist eftir odd­vita­sæti flokks­ins í kjör­dæm­inu í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Willum Þór.

Willum Þór sett­ist fyrst á þing fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn árið 2013. Síðan þá hefur hann setið nær sleitu­laust á þingi en hann var vara­þing­maður flokks­ins um tíma árið 2017. Á þessu kjör­tíma­bili gegndi Willum for­mennsku í fjár­laga­nefnd auk þess sem hann er þing­flokks­for­maður flokks­ins. Þá hefur Willum setið í efna­hags- og við­skipta­nefnd, alls­herjar- og mennta­mála­nefnd og for­sætis­nefnd.

Í til­kynn­ing­unni segir Willum yfir­stand­andi kjör­tíma­bil hafa verið við­burða­ríkt og krefj­andi. „Næstu miss­eri verða mik­il­væg í við­spyrn­unni og miklar áskor­anir m.a. á sviði efna­hags­mála, rík­is­fjár­mála og atvinnu­mála. Stór mál sem þarf að takast á við af ábyrgð, festu og skyn­semi,“ segir þar einnig.

„Ég trúi því að reynsla mín af þeim ábyrgð­ar­störfum sem mér hefur verið trúað fyrir komi að góðum notum við þær áskor­anir sem framundan eru,“ segir í til­kynn­ingu Willums.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár