Rannsaka ætluð brot eiganda Bræðraborgarstígs 1

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er með til skoð­unar ætlað brot fyrrum eig­anda Bræðra­borg­ar­stígs 1 á bygg­ing­ar­reglu­gerð. HMS segir að eig­and­anum hafi borið að tryggja bruna­varnir húss­ins og þær ekki reynst í sam­ræmi við lög.

Rústir hússins að Bræðraborgarstíg 1 standa enn, yfir hálfu ári eftir að það brann.
Rústir húss­ins að Bræðra­borg­ar­stíg 1 standa enn, yfir hálfu ári eftir að það brann. Mynd: Golli

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er með til skoð­unar ætlað brot fyrrum eig­anda Bræðra­borg­ar­stígs 1 á bygg­ing­ar­reglu­gerð. Þetta stað­festir Hulda Elsa Björg­vins­dóttir, sviðs­stjóri ákæru­sviðs lög­regl­unnar, við Kjarnann.

Þrír lét­ust í elds­voða í hús­inu 25. júní síð­asta sumar, allt ungt fólk frá Póllandi. Tveir slös­uð­ust alvar­lega. Húsið var þá í eigu félags­ins HD Verks en í byrjun jan­úar gengu kaup Þorpsins vist­fé­lags á bruna­rúst­unum og á hús­inu við hlið­ina í gegn. Eigandi HD Verks er Kristinn Jón Gíslason.

[adspot]

Samkvæmt rann­sókn bæði lög­reglu og Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar var eldur lík­lega kveiktur í hús­inu á tveimur stöðum. Karl­maður á sjö­tugs­aldri, sem var íbúi í hús­inu, var í haust ákærður fyrir íkveikj­una, þrjú mann­dráp og tíu mann­dráp­stil­raunir. Samkvæmt mati geð­læknis var hann ósak­hæfur á verkn­að­ar­stund en tveir yfir­mats­menn voru fengnir til að fara yfir geð­matið og liggur nið­ur­staða þeirra enn ekki fyrir. Dóm­stjóri Hér­aðs­dóms Reykja­víkur hefur þó þegar ákveðið að þing­haldið verði opið en ekki lokað að hluta eða í heild líkt og verj­andi manns­ins fór fram á.

[links]Rann­sak­endur Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar telja að, óháð því hvort um íkveikju hafi verið að ræða, þá hafi fleiri sam­verk­andi þættir haft áhrif á að elds­voð­inn varð jafn mann­skæður og raun bar vitni. Um var að ræða yfir hund­rað ára gam­alt for­skalað timb­ur­hús sem ekki var vel úr garði gert með til­liti til bruna­varna í upp­hafi.

Í skýrslu stofn­un­ar­innar um brun­ann, sem gefin var út um miðjan des­em­ber, kemur fram að upp­haf­legar teikn­ingar liggi ekki fyrir, en nýj­ustu sam­þykktu teikn­ing­arnar af hús­inu sé frá árinu 2000. „Þær bruna­varnir sem þær teikn­ingar gerðu ráð fyrir voru ekki til staðar þegar brun­inn varð,“ segir í skýrsl­unni. Her­bergja­skipan var líka önnur. Bruna­hólfun að stiga­húsi var ekki til staðar né þau björg­un­arop sem voru á sam­þykktum teikn­ingum. Eins hefur inn­gangi á 2. hæð húss­ins á ein­hverjum tíma­punkti verið lokað með þeim afleið­ingum að í stað tveggja flótta­leiða úr íbúð­inni var bara ein flótta­leið.

Eigandi ber ábyrgð á brunavörnum

Skýrslu­höf­undar harma að loka­út­tekt eft­ir­lits­að­ila sem fram fór á árinu 2000 hafi ein­ungis tekið til 1. hæðar húss­ins þar sem dag­vist­un­ar­heim­ili var rekið á þeim tíma en efri hæðir húss­ins voru ekki skoð­aðar. Var því ekki hægt að full­yrða hvort efri hæðir húss­ins hafi á ein­hverjum tíma verið til sam­ræmis við sam­þykktar teikn­ingar. „Eigandi húss­ins á hverjum tíma bar ábyrgð á ástandi húss­ins, var skylt að sækja um til­skilin leyfi vegna breyt­inga á hús­næð­inu og eins bar honum að tryggja við­un­andi bruna­varnir,“ segir í skýrsl­unni. Í henni kemur fram að notkun húss­ins var önnur en teikn­ingar gerðu ráð fyrir og for­sendur allt aðrar gagn­vart bruna­ör­yggi. Húsið var í raun notað til útleigu á her­bergjum en ekki sem tvær íbúðir. Breytt notkun kall­aði á auknar bruna­varnir og eld­varn­ar­eft­ir­lit.

Í ítar­legri umfjöllun Kjarnans um elds­voð­ann og eft­ir­mál hans, sem birt var í nóv­em­ber, sögð­ust íbúar sem rætt var við ekki hafa heyrt í reyk­skynj­urum er eld­ur­inn kvikn­aði. Þeir hefðu ekki orðið hans varir fyrr en þeir heyrðu öskur sam­býl­inga sinna.

Í skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar kom fram að aðeins einn reyk­skynj­ari hafi fund­ist í rústum húss­ins að Bræðra­borg­ar­stíg. Hann var án raf­hlöðu. Nið­ur­staða stofn­un­ar­innar á rann­sókn brun­ans er m.a. sú að bruna­vörnum í hús­inu hafi verið veru­lega ábóta­vant og ekki í sam­ræmi við lög.

Brot á lögum um mann­virki og reglu­gerðum settum sam­kvæmt þeim varða sektum eða fang­elsi allt að tveimur árum nema þyngri refs­ing liggi við sam­kvæmt öðrum lögum.

Bruninn á Bræðra­borg­ar­stíg er sá mann­skæð­asti sem orðið hefur í höf­uð­borg­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár