Keyptu hús og rústir á Bræðraborgarstíg á 270 milljónir og sækja um niðurrif eftir helgi

Loks hillir undir að bruna­rúst­irnar á Bræðra­borg­ar­stíg 1 verði rifnar. Nýir eig­endur, sem gengið hafa frá kaup­samn­ingi, vilja gera eitt­hvað gott og fal­legt á staðnum í kjöl­far harm­leiks­ins sem kost­aði þrjár ungar mann­eskjur lífið síð­asta sumar.

Bræðraborgarstígur 1 brann í sumar. Þorpið hefur keypt rústirnar og húsið við hliðina, Bræðraborgarstíg 3.
Bræðra­borg­ar­stígur 1 brann í sumar. Þorpið hefur keypt rúst­irnar og húsið við hlið­ina, Bræðra­borg­ar­stíg 3. Mynd: Þorpið Vistfélag

Gengið hefur verið frá kaupum Þorpsins vist­fé­lags á Bræðra­borg­ar­stíg 1 og 3 af HD Verki. Kaup­verðið er 270 millj­ónir króna. „Þetta er krefj­andi verk­efni,“ segir Runólfur Ágústs­son, verk­efna­stjóri Þorpsins, um upp­bygg­ing­una framundan, „og við ætlum okkur tölu­vert langan tíma í hönnun og skipu­lag.“

Engu að síður er stefnt að því að verk­efn­inu verði lokið innan tveggja og hálfs árs. Þá munu, ef allt gengur eftir, á þriðja tug kvenna á besta aldri flytja í jafn margar smá­í­búðir nýrra og upp­gerðra húsa og deila þvotta­húsi, vinnu­að­stöðu, jóga­sal og risa­stórum bak­garði með heitum potti, saunu og gróð­ur­húsi – og jafn­vel bíl. Femínistar yfir sex­tugt vilja vera í nábýli hver við annan og sækja sér þannig stuðn­ing og félags­skap.

[adspot]

Hugmynd að kjarna­sam­fé­lagi sem þessu kann að hljóma útópísk, að minnsta kosti á Íslandi. Er til dæmis nóg af ein­hleypum, eldri kven­kyns femínistum á Íslandi til að fylla 26 íbúðir sem til stendur að gera? Og eru þeir virki­lega til­búnir að deila einum bíl?

[links]Svarið við báðum þessum spurn­ingum er já. Frum­kvæðið að fyr­ir­komu­lag­inu kom frá félag­inu Femínistar 60+ og eftir að málið komst í fréttir hafa margar konur til við­bótar lýst áhuga sínum á að vera með. Þær vilja búa saman, jafn­vel elda saman. Spjalla svo saman. Og alveg örugg­lega hlæja saman.

Frá 25. júní er horn­húsið að Bræðra­borg­ar­stíg 1 brann og þrír íbúar þess lét­ust bjó djúpur harmur þar um sig. Þar sem fjöldi fólks hafði búið í litlum leigu­her­bergjum þessa áður mikla fjöl­skyldu­húss standa nú brunnar rústir undir gráu neti. Allir vilja þær burt. Helst í gær. En þarna standa þær enn og bjóða hætt­unni heim. Eru slysa­gildra í hjarta borg­ar­innar.

Nýir eig­endur segja ekki eftir neinu að bíða. Stefnt er að því að sækja um leyfi til nið­ur­rifs strax eftir helgi. Einhver bið verður þó á því þar sem heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur þarf fyrst að aug­lýsa starfs­leyfi verk­tak­ans sem tekur nið­ur­rifið að sér í fjórar vikur. „Auðvitað myndum við helst vilja hefj­ast handa við að hreinsa strax,“ segir Runólfur. En svona eru regl­urnar og eftir þeim verður að fara.

Þorpið vist­fé­lag fer ekki hefð­bundnar leiðir þegar kemur að upp­bygg­ingu hús­næðis. Í Gufunesi, fyrsta verk­efni félags­ins, er nú hafin bygg­ing ann­ars áfanga í hverfi þar sem sam­fé­lags­leg og umhverf­is­leg gildi verða í for­grunni. Þar verður boðið upp á vel skipu­lagðar og ódýrar íbúðir. Þær hafa reynst svo vin­sælar að þrír hafa sótt um hverja þeirra. Íbúð­irnar, sem verða 140 tals­ins, eru seldar á föstu verði en ekki hæst­bjóð­anda og hefur því þurft að draga úr nöfnum áhuga­samra kaup­enda. Í Gufunesi er verið að byggja fyrir unga fólkið. Á Bræðra­borg­ar­stíg er upp­bygg­ingin hugsuð fyrir eldri konur.

„Það sem okkur langar að gera er að búa til eitt­hvað gott og fal­legt á þessum stað eftir þennan hræði­lega atburð,“ segir Runólfur um Bræðra­borg­ar­stíg­inn. Því hafi Þorpið heill­ast af hug­myndum kvenna­hóps­ins. Að auki telur hann að hug­mynda­fræði kvenn­anna, sem kall­ast baba yaga, rými vel við hug­mynda­fræði Þorpsins vist­fé­lags.

Baba yaga-systra­húsin eru alþjóð­leg hreyf­ing sem upp­runin er í Frakk­landi. Fyrsta húsið var byggt í París árið 1992 að frum­kvæði franska femínist­ans og aðgerða­sinnanns Thérèse Clerc (1927-2016). Slík hús hafa síðan verið byggð víða um hinn vest­ræna heim.

Hug­mynda­fræði Baba yaga er sú að eldri konur taki sig saman og byggi sitt sam­eig­in­lega hús „til að fá að eld­ast innan eigin veggja, þar sem lögð er áhersla á femín­isma, gagn­kvæma umönnun og sam­bæri­leg lífs­við­horf,“ segir í sam­an­tekt Þorpsins og félags­ins Femínistar 60+. „Per­sónu­legir hags­munir og einka­líf hverrar konu eru að fullu virt en um leið skuld­binda þær sig til að veita hver annarri styrk og stuðn­ing í lífs­ins ólgu sjó.“

Mark­miðið með upp­bygg­ing­unni verður einnig að sögn Runólfs að hefja reit­inn til vegs og virð­ingar á ný. Gera hann að þeim segli og þeirri mið­stöð sem hann var áður í Vest­ur­bænum. Því er stefnt að því að á jarð­hæð horn­húss­ins verði kaffi­hús og jafn­vel hand­verks­hús. Að sá hluti þess verði aftur sam­of­inn nær­sam­fé­lag­inu sem og íbúum húss­ins. Á efri hæð­unum yrðu svo litlar íbúðir, um 45 fer­metrar. „Okkar mark­mið er að ná ákveðnum fjölda íbúða til að það geti borið þessa miklu sam­eign,“ bendir Runólfur á. „Annars verða íbúð­irnar of dýrar fyrir kon­urnar.“

Bræðra­borg­ar­stígur 1 var byggður árið 1906 og nokkrum árum síðar keyptu hjónin Sveinn Hjart­ar­son og Steinunn Sig­urð­ar­dóttir það. Þau stofn­uðu og ráku þar bak­arí sem Vest­ur­bæ­ingar lögðu leið sína í í ára­tugi. Kaffi- og hand­verks­hús yrði því einnig fram­hald af sögu húss­ins, segir Runólfur. Sam­komu­staður nágranna.

En það eru einnig per­sónu­legar ástæður fyrir því að hug­mynd kvenna­hóps­ins hreif Runólf. Þegar Sveinn og Steinunn áttu húsið var ekki búið að finna upp hug­takið „sam­fé­lags­leg ábyrgð“ en hana skorti ekki hjá þeim hjónum. Þau gáfu af sér og sínu, tóku að sér börn tveggja systra Stein­unnar sem lét­ust úr spönsku veik­inni og réttu fjöl­mörgum vanda­lausum einnig hjálp­ar­hönd.

Amma og nafna Áslaugar Guð­rún­ar­dóttur, konu Runólfs, naut góðs af gæsku hjón­anna því hún hóf sinn búskap að Bræðra­borg­ar­stíg 1. Sveinn og Steinunn leyfðu unga fólk­inu að búa þar án end­ur­gjalds í fjögur ár. Faðir Áslaugar fædd­ist svo í hús­inu. Samkennd, sam­vinna og hjálp­semi voru þættir í fari einna fyrstu íbú­anna og við­eig­andi að þeir verði það nú aftur.

Áhersla verður að sögn Runólfs lögð á að vinna að skipu­lagi lóð­anna og hönnun hús­anna í góðu sam­starfi við skipu­lags­yf­ir­völd og nágranna. Þorpið leggur til að lóð­irnar verði sam­ein­aðar, að húsið að Bræðra­borg­ar­stíg 3 verði end­ur­byggt í anda síns tíma, að nýtt bak­hús verði byggt sem og nýtt horn­hús að Bræðra­borg­ar­stíg 1.

Þar sem hörmu­legir atburðir áttu sér þarna stað er fólki ekki sama hvað tekur við. Yfir umgengni og við­haldi hús­anna að Bræðra­borg­ar­stíg 1 og 3 hafði oft verið kvartað til yfir­valda í gegnum árin. Það voru svo nágrannar sem komu með þeim fyrstu á vett­vang elds­voð­ans síð­asta sumar og hafa þurft að ganga fram hjá bruna­rúst­unum mán­uðum saman. Sumir þeirra hafa lýst erf­iðum til­finn­ingum vegna elds­voð­ans í sam­tali við Kjarnann sem vann ítar­legar frétta­skýr­ingar um harm­leik­inn, orsakir hans og afleið­ingar, og birti í nóv­em­ber.

Runólfur segir að var­lega þurfi að stíga til jarðar í allri hönnun hús­anna og skipu­lagi, m.a. vegna þess að um gamla götu­mynd er að ræða sem að hluta til nýtur sér­stakrar verndar. Því verður að engu óðs­lega farið í því ferli sem framundan er og mun lík­lega standa næsta árið. Sá hluti verk­efn­is­ins er þegar að fullu fjár­magn­aður. Þorpið stofn­aði sér­stakt dótt­ur­fé­lag um Bræðra­borg­ar­stígs­verk­efnið, líkt og það hefur gert fyrir alla fjóra bygg­ing­ar­á­fang­anna í Gufunesi. Í stjórn hins nýja dótt­ur­fé­lags sitja þrjár konur: Anna Margrét Jóns­dóttir, Lilja Ein­ars­dóttir og Áslaug Guð­rún­ar­dóttir.

Gengið var end­an­lega frá kaup­samn­ingi við HD Verk fyrr í vik­unni. Þorpið tekur yfir tölu­vert af áhvílandi lánum og mun svo fá greiddar út trygg­inga­bætur vegna brun­ans þegar sam­komu­lag næst við trygg­inga­fé­lagið. „Við gerum ráð fyrir að ljúka því máli mjög fljót­lega,“ segir Runólfur. Hann hefur enga trú á því að dóm­stóla­leiðin verði farin eins og fyrri eig­endur ætl­uðu sér. „Það er ekki okkar stíll.“

Spennandi úrlausnarverkefni

Nágrannar og skipu­lags­yf­ir­völd hafa tekið hug­myndum Þorpsins og kvenna­hóps­ins vel þó að ákveðin atriði eins bygg­ing­ar­magn í hverju hús­anna fyrir sig og stað­setn­ingar á lóð­inni þurfi að ræða betur. „Við munum fara bil beggja,“ segir Runólfur og ítrekar enn og aftur að reynt verði að vinna áfram að verk­efn­inu í sam­vinnu og sátt við sem flesta. Viðbrögð Minja­stofn­unar við frum­til­lögum voru mjög jákvæð og Runólfur segir umsögn skipu­lags­full­trúa einnig hafa verið jákvæða að mörgu leyti þó að yfir­völd vilji fara aðeins aðrar leiðir en Þorpið lagði upp­haf­lega til. En þetta er ekki vanda­mál í huga Runólfs. „Við lögum okkur ein­fald­lega að þessu.“

Þannig er t.d. lík­legt að hluti bygg­ing­anna verði lækk­aður um eina hæð frá fyrstu til­lögum. Þá vilja skipu­lags­yf­ir­völd að götu­horn­inu verði haldið í sem næst þeirri mynd sem það var í og á því seg­ist Runólfur hafa skiln­ing. „Ég lít bara á þetta sem spenn­andi úrlausn­ar­efni og sam­starfs­verk­efni okkar, borg­ar­innar og Minja­stofn­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bræðraborgarstígur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár