Arion banki að ná markmiðum sínum og ætlar að dæla fé til hluthafa á næstu árum

Umfram eigið fé Arion banka var 41 millj­arður króna í lok mars síð­ast­lið­ins. Bankinn ætlar að greiða hlut­höfum sínum út um 50 millj­arða króna á næstu árum. Hann hefur nú náð mark­miði sínu um arð­semi tvo árs­fjórð­unga í röð.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þegar Benedikt Gíslason tók við sem banka­stjóri Arion banka síðla sum­ars 2019 var sett það mark­mið að bæta getu Arion banka til að greiða út fjár­magn til hlut­hafa. Í því fólst mela ann­ars að breyta fjár­mögnun bank­ans, fækka starfs­fólki veru­lega og ná þar með betra kostn­að­ar­hlut­falli, selja und­ir­liggj­andi eignir og taka til í útlánum.

Á meðal mark­miða sem sett voru var að arð­semi eig­in­fjár yrði yfir tíu pró­sent og að rekstr­ar­kostn­aður yrði undir 50 pró­sent af rekstr­ar­tekjum.

Arion banki hefur nú náð yfir tíu pró­sent arð­semi á eigin fé tvo árs­fjórð­unga í röð. Á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins 2020 var arð­semin 11,8 pró­sent og á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2021 var hún 12,5 pró­sent. Þá er kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans komið niður í 46,2 pró­sent og mark­mið Arion banka er nú að ná því niður fyrir 45 pró­sent.

Sam­an­lagt nemur hagn­aður Arion banka á þessu sex mán­aða tíma­bili 11,8 millj­örðum króna.

Tug milljarða umfram eigið fé

Þegar árs­upp­gjör Arion banka fyrir árið 2020 var kynnt kom fram að hann ætl­aði að greiða út þrjá millj­arða króna í arð vegna síð­asta árs og kaupa eigin bréf fyrir 15 millj­arða króna. Alls yrði því 18 millj­örðum króna komið til hlut­hafa í ár.

[adspot]Á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins var 14,8 millj­örðum króna greiddir út með þessum hætti.

Í fjár­festa­kynn­ingu Arion banka vegna upp­gjörs fyrsta árs­fjórð­ungs kemur fram að umfram eigið fé sé enn 41 millj­arður króna og bank­inn því enn í góðri stöðu til að lækka eigið fé enn meira með útgreiðslu til hlut­hafa, sam­þykki Seðla­banki Íslands það. Slíkt sam­þykki er nauð­syn­legt í ljósi þess að Seðla­bank­inn ákvað að lækka bindi­skyldu niður i núll og aflétta svoköll­uðum sveiflu­jöfn­un­ar­auka sem jók svig­rúm íslensku bank­anna til nýrra útlána, eða eftir atvikum útgreiðslu til hlut­hafa, um sam­an­lagt 350 millj­arða króna. Arion banki fékk leyfi frá Seðla­bank­anum fyrir arð­greiðslu og end­ur­kaupum vegna síð­asta árs.

Í fjár­festa­kynn­ing­unni segir að Arion banki hafi getu til að greiða hlut­höfum sínum út um 50 millj­arða króna á næstu árum og að það sé stefna bank­ans að gera það.

Bónus fyrir arðsemi

Það er til mik­ils að vinna fyrir starfs­menn Arion banka að arð­semi bank­ans verði hærri en vegið með­al­tal arð­semi helstu keppi­nauta bank­ans: Íslands­banka, Lands­banka og Kviku, á þessu ári. Takist það mun allt fast­ráðið starfs­fólk Arion banka geta fengið allt að tíu pró­­­sent af föstum árs­­­launum sínum á árinu 2021 í kaupauka þegar árs­­­reikn­ingur bank­ans fyrir árið 2021 liggur fyr­ir.

Þeir stjórn­­­endur og það starfs­­­fólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bank­ans mun geta fengið allt að 25 pró­­­sent af föstum árs­­­launum í kaupauka­greiðslu, en þá í formi hluta­bréfa í bank­­­anum sem verða ekki laus til ráð­­­stöf­unar fyrr en að þremur árum liðn­­­­­um.

Til við­bótar eru í gildi kaup­rétt­ar­samn­ingar sem gera starfs­mönnum kleift að kaupa í Arion banka fyrir millj­arða króna á lágu gengi.

Erlendu eigendurnir farnir

Eig­enda­hópur Arion banka hefur tekið miklum breyt­ingum á síð­ustu mán­uðum. Vog­un­ar­sjóð­irnir Taconic Capital Advisors og Sculptor Capital Mana­gement, sem hafa verið leið­andi í eig­enda­hópi Arion banka, seldu um þriðj­ungs­hlut sinn í bank­anum á örfáum vikum fyrir um 60 millj­arða króna.

[links]Fleiri erlendir sjóðir hafa líka selt sig hratt niður á skömmum tíma.

Í dag eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir langstærstu eig­endur Arion banka. Þrír stærstu sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna og Gildi líf­eyr­is­sjóður eiga sam­tals 27,53 pró­sent hlut í bank­anum.

Stærsti einka­fjár­festir­inn er Stoðir, sem eiga 4,99 pró­sent hlut. Stoðir eru líka stærsti ein­staki eig­andi ann­ars banka, Kviku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár