Landsbankinn hagnaðist um 7,6 milljarða króna á þremur mánuðum

Hlut­deild Lands­banka Íslands á íbúða­lána­mark­aði hefur stór­auk­ist milli ára og er nú 26,8 pró­sent. Hún hefur aldrei verið hærri. Eigið fé bank­ans er nú 261,4 millj­arðar króna.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans. Mynd: Landsbankinn

Lands­bank­inn, sem er í rík­i­s­eigu, hagn­að­ist um 7,6 millj­arða króna á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2021. Arðsemi eig­in­fjár hans var 11,7 pró­sent. Um 2,5 millj­arðar króna af hagn­að­inum er vegna jákvæðrar virð­is­breyt­inga á útlánum sem eru til­komnar vegna þess að spár um efna­hags­bata og ítar­legt mat á útlána­safni þótti gefa til­efni til þess. Kostn­að­ar­hlut­fall bank­ans – hlut­fall rekstr­ar­kostn­aðar af rekstr­ar­tekjum – var 45,8 pró­sent sem er það lægsta á meðal þriggja stærstu banka lands­ins.

Þetta kemur fram í upp­gjöri Lands­bank­ans fyrir fyrstu þrjá mán­uði árs­ins sem birt var í dag.

[adspot]Hagn­að­ur­inn var rúm­lega tvisvar sinnum meiri en á fyrsta árs­fjórð­ungi síð­asta árs, þegar Lands­bank­inn hagn­að­ist um 3,6 millj­arða króna.

Heild­ar­eignir Lands­bank­ans juk­ust um 36,8 millj­arða króna á tíma­bil­inu og námu 1.601 millj­arði króna í lok fyrsta árs­fjórð­ungs. Útlán juk­ust um 14 millj­arða króna en útlána­aukn­ingin á fjórð­ungnum má rekja til aukn­ingar á lánum ein­stak­linga. Þar er að uppi­stöðu um að ræða hús­næð­is­lán en hlut­deild Lands­bank­ans á íbúða­lána­mark­aði er nú 26,8 pró­sent og hefur aldrei verið hærri. Til sam­an­burðar var sú hlut­deild 22 pró­sent í lok mars í fyrra.

[links]Eigið fé Lands­bank­ans var 261,4 millj­arðar króna í lok mars síð­ast­lið­ins og eig­in­fjár­hlut­fallið var 24,9 pró­sent. Á aðal­fundi bank­ans, sem hald­inn var þann 24. mars 2021, var sam­þykkt til­laga banka­ráðs um að greiða arð til hlut­hafa vegna rekstr­ar­árs­ins 2020 að fjár­hæð 4.489 millj­ónir króna og hefur arð­ur­inn verið greiddur út. Hann rennur á langstærstu leyti í rík­is­sjóð.

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands vegna upp­gjörs­ins að það beri hæst í upp­gjör­inu að þjón­ustu­tekjur hafi auk­ist og sér í lagi tekjur vegna auk­inna umsvifa í mark­aðsvið­skiptum, ekki síst vegna góðs árang­urs bank­ans í eigna­stýr­ingu. „Góð afkoma er af verð­bréfum í eigu bank­ans og vaxta­tekjur eru traustar. Vaxta­munur fer þó enn lækk­andi en þar munar mestu um áherslu bank­ans á að bjóða mjög sam­keppn­is­hæfa vexti á hús­næð­is­lánum. Vel hefur gengið að halda rekstr­ar­gjöldum í skefjum og hag­kvæmni í rekstri bank­ans heldur áfram að aukast. Hlutfall rekstr­ar­kostn­aðar af með­al­stöðu heild­ar­eigna er 1,5 pró­sent og hefur lækkað jafnt og þétt und­an­farin ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár