Fylgisaukning ríkisstjórnarinnar að mestu gengin til baka

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir mæl­ast nú sam­eig­in­lega með 40,5 pró­sent fylgi. Það er nán­ast sama fylgi og Píratar, Sam­fylk­ing og Viðreisn mæl­ast sam­eig­in­lega með. Mestu munar um lít­inn stuðn­ing við Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Hluti ríkisstjórnar Íslands.
Hluti rík­is­stjórnar Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Sú umtals­verða fylg­is­aukn­ing sem stjórn­ar­flokk­arnir þrír fengu í könn­unum MMR eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn skall á Íslandi hefur að mestu gengið til baka. Á milli febr­úar og mars kann­ana fyr­ir­tæk­is­ins fór sam­eig­in­legt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks úr 38,6 pró­sentum í 45,3 pró­sent, og jókst því um 6,7 pró­sentu­stig. Það þýðir að stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þrjá jókst um rúm­lega 17 pró­sent milli mán­aða.

Mest mun­aði um mikla fylg­is­aukn­ingu Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem bætti við sig 6,1 pró­sentu­stigi og mæld­ist með 27,4 pró­sent í mars. Það var mesta fylgi sem flokk­ur­inn hafði mælst með frá sumr­inu 2017, eða frá því fyrir síð­ustu kosn­ingar.

Fylg­is­aukn­ing rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hélt sér að uppi­stöðu í könnun MMR sem birt var 7. apríl, þegar sam­eig­in­legur stuðn­ingur mæld­ist 44,6 pró­sent. Tíu dögum síðar birt­ist önnur könnun sem sýndi 42,9 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi og í könnun MMR sem birt­ist 8. maí hafði það auk­ist á ný í 43,2 pró­sent.

Í könnun MMR sem birt var í gær var sam­eig­in­legt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks hins vegar komið niður í 40,5 pró­sent. Þar kom líka fram að stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina er aftur dott­inn undir 50 pró­sent, í fyrsta skipti frá því að far­ald­ur­inn hófst, og mælist nú 47,5 pró­sent.

[adspot]Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur misst þorra þess við­bót­ar­fylgis sem hann náði í eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn skall á en mælist enn með 2,2 pró­sentu­stiga meira fylgi en hann var með í febr­úar, eða 23,5 pró­sent. Vinstri græn eru komin niður í sama fylgi og þau voru með fyrir far­aldur, eða 10,6 pró­sent, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með minnsta fylgi sem hann hefur mælst með á kjör­tíma­bil­inu, eða 6,4 pró­sent. Fara þarf aftur til októ­ber­mán­aðar 2017 til að finna könnun MMR sem sýnir jafn lít­inn stuðn­ing við Fram­sókn­ar­flokk­inn. Ef kosið yrði í dag myndi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verða minnsti flokk­ur­inn á Alþingi, og Vinstri græn sá næst minnsti.

Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast 12,3 pró­sentu­stigum undir því sam­eig­in­lega kjör­fylgi sem þeir fengu haustið 2017 og ólík­legt sem stendur að þeir gætu myndað rík­is­stjórn miðað við nið­ur­stöður könn­unar MMR. Það færi þó eftir því hversu stór hluti atkvæða myndi falla niður dauður.

Mælast saman með 11,2 prósentustigum meira en 2017

Frjáls­lynda miðju­blokkin í stjórn­ar­and­stöðu: Píratar, Sam­fylk­ing og Viðreisn, er nú sam­eig­in­lega með næstum sama sam­eig­in­lega fylgi og stjórn­ar­flokk­arnir, eða 39,2 pró­sent. Í fyrstu könnun MMR eftir að COVID-19 far­ald­ur­inn skall á mæld­ust þeir með 34,6 pró­sent. Því hefur sam­eig­in­legt fylgi þeirra auk­ist um 13 pró­sent, eða um 4,6 pró­sentu­stig, frá 20. mars.

Píratar eru nú stærsti flokk­ur­inn í þeirri blokk með 14,6 pró­senta fylgi, sem er næst mesta fylgi sem þeir hafa mælst með á kjör­tíma­bil­inu. Alls hefur flokk­ur­inn bætt við sig 4,4 pró­sentu­stigum frá 20. mars og því ljóst að þorri fylg­is­aukn­ingar til ofan­greindra þriggja flokka, sem vinna náið saman að flestum málum í stjórn­ar­and­stöðu, hefur lent hjá Pírötum. Sam­fylk­ingin bætir við sig fylgi milli mán­aða en er samt sem áður við lægri mörk þess sem hún hefur mælst með á kjör­tíma­bil­inu með 13,3 pró­sent fylgi. Viðreisn mælist síðan með 11,3 pró­sent.

Allir þrír flokk­arnir mæl­ast vel yfir kjör­fylgi í síð­ustu kosn­ingum og sam­eig­in­lega myndu þeir bæta við sig 11,2 pró­sentu­stigum ef kosið yrði í dag, miðað við nið­ur­stöðu könn­unar MMR.

Liggur ekki fyrir hvenær verður kosið

Mið­flokk­ur­inn var á miklu flugi fyrir far­ald­ur­inn og mæld­ist meðal ann­ars með 16,8 pró­sent fylgi í nóv­em­ber­lok og 15,1 pró­sent í jan­úar. Í síð­ustu könn­unum hefur fylgið að mestu verið sitt hvoru megin við tíu pró­sentu­stigin og nú er flokk­ur­inn nán­ast í kjör­fylgi með 10,8 pró­sent mældan stuðn­ing.

Flokkur fólks­ins, sem í dag er minnstur þeirra átta flokka sem eiga full­trúa á Alþingi, er ansi langt frá því að ná inn að óbreyttu og mælist með 3,6 pró­sent fylgi. Fylgi hans er rúm­lega helm­ingur þess sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Sós­í­alista­flokk­ur­inn mælist svo með 4,1 pró­sent sem er mjög svipað og í síð­ustu könnun en hann hefur aldrei boðið fram í Alþing­is­kosn­ingum og mun því gera það í fyrsta sinn þegar kosið verður á næsta ári.

Í nýlegu við­tali við Kjarnann sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra að hún væri ekki farin að hugsa um það hvenær næstu þing­kosn­ingar eigi að fara fram, en þær verða að gera það í síð­asta lagi í lok októ­ber 2021.

Hún var áður búin að gefa það út að sam­tal myndi eiga sér stað um það á vett­vangi Alþingis í sumar hvort þær verði aftur að hausti, sem er óvenju­legt í Íslands­sög­unni, eða hvort þær verði til að mynda haldnar að vori líkt og hefð er fyr­ir. Við það ætlar hún að standa þannig að allir stjórn­mála­flokkar verði með skýra hug­mynd um hvenær næst verði kosið þegar næsti þing­vetur hefst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár