Deilur innan Viðreisnar vegna ályktunar um að hætta skerðingum og hækka bætur

Á lands­þingi Við­reisnar var sam­þykkt ályktun um að skerð­ingum verði hætt og líf­eyrir hækk­aður. Þunga­vigt­ar­fólk innan flokks­ins gagn­rýnir álykt­un­ina harð­lega og segja hana óábyrga. For­mað­ur­inn segir að það verði að skoða hana í sam­hengi við grunn­stefnu.

Landsþing Viðreisnar fór ffram með rafrænum hætti um síðustu helgi. Þar var samþykkt málefnaskrá og stjórnmálaályktun fyrir komandi kosningar.
Lands­þing Við­reisnar fór ffram með raf­rænum hætti um síð­ustu helgi. Þar var sam­þykkt mál­efna­skrá og stjórn­mála­á­lyktun fyrir kom­andi kosn­ingar. Mynd: Viðreisn

Ályktun sem heil­brigðis- og eft­ir­lits­nefnd Við­reisnar sam­þykkti á nýliðnu lands­þingi flokks­ins, og felur í sér að eng­inn líf­eyr­is­þegi almanna­trygg­inga fái lægri heild­ar­tekjur en sem nemur lág­marks­launum, að líf­eyr­is­kerfi almanna­trygg­inga skal ein­faldað og skerð­ingum hætt, hefur valdið deilum innan flokks­ins.

Þunga­vigt­ar­fólk innan Við­reisnar hefur sagt álykt­un­ina í and­stöðu við grunn­stefnu Við­reisnar um ábyrgð í rík­is­fjár­málum þar sem fullt afnám skerð­inga og hækkun á líf­eyri myndi kosta rík­is­sjóð 100-120 millj­arða króna á ári. Fyrr­ver­andi vara­for­maður Við­reisnar sagði í umræðum í lok­uðum umræðu­hópi flokks­manna að í hans huga liggi „hér trú­verð­ug­leiki flokks­ins undir.“

Orðrétt er álykt­unin eft­ir­far­andi: „Viðreisn leggur áherslu á að fólk eigi gott líf og þau kerfi sem eiga að halda utan um það verði ein­fald­ari og sveigj­an­legri. Enginn líf­eyr­is­þegi almanna­trygg­inga fái lægri heild­ar­tekjur en sem nemur lág­marks­launum. Líf­eyr­is­kerfi almanna­trygg­inga skal ein­faldað og skerð­ingum hætt.“

[adspot]Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, segir í sam­tali við Kjarnann að það eigi ekki að túlka álykt­un­ina þannig að til standi að afnema allar skerð­ingar með til­heyr­andi kostn­aði. „Ég túlka þetta þannig að við erum lýð­ræð­is­legur flokkur sem er að stækka og ýmis sjón­ar­mið og áherslur eru að koma fram. Það er ekki hægt að taka eina ályktun út fyrir sviga heldur verður að lesa aðrar álykt­anir og grunn­stefnu flokks­ins. Það verður ekki í sundur slitið. Það er alveg ljóst að skýr­ustu skila­boð okkar eru þau að við verðum að sýna ábyrgð í rekstri rík­is­sjóðs. Það er stærsta og erf­ið­asta verk­efni næstu rík­is­stjórnar. Það er úti­lokað á minni vakt að við förum fram með kosn­inga­lof­orð án inn­stæðu sem munu til lengri tíma sliga rík­is­sjóðs.“

Hún segir að á hinn bóg­inn megi benda á að Viðreisn hafi farið fram með slag­orðið: hægri hag­stjórn, vinstri vel­ferð, fyrir kosn­ing­arnar 2016 og 2017. Þor­gerður Katrín segir að hún taki þessa ályktun sem sam­þykkt var á lands­þing­inu sem skýr skila­boð til for­ystu flokks­ins um að afnema ein­hverjar skerð­ingar og gera kerfin rétt­lát­ari og ein­fald­ari. „Vissu­lega er þetta skýrt ákall um að það þurfi að taka á skerð­ingum.“

Sagt óhemjudýrt og ranglátt

Miklar umræður hafa spunn­ist um álykt­un­ina um að skerð­ingum verði hætt, sem sam­þykkt var á lands­þingi flokks­ins, á lok­uðu Facebook-umræðu­svæði Við­reisnar. Kjarninn hefur undir höndum ýmis ummæli fólks sem hefur verið áhrifa­mikið í starfi flokks­ins þar sem álykt­unin er harð­lega gagn­rýnd.

Umræðan hófst þegar Haukur Egg­erts­son, með­limur í Viðreisn sem starfar hjá Trygg­inga­stofnun, setti inn­legg inn á lokað vef­svæði Við­reisnar á Facebook á sunnu­dag. Þar sagð­ist hann telja að heil­brigðis- og vel­ferð­ar­nefnd flokks­ins hefði gert mis­tök með lands­fund­ar­á­lykt­un­inni um að hætta skerð­ingum og hækka bætur innan félags­lega kerf­is­ins veu­lega.

Haukur sagði þrennt aðal­lega orka tví­mælis við sam­þykkt­ina: hún væri rang­lát, gengi gegn grunn­stefnu Við­reisnar og væri óhemju­dýr.

Hann sagði að trú­verð­ug­leiki Við­reisnar sem ábyrgs flokks væri í húfi, enda hefði flokk­ur­inn talað fyrir „aðhaldi í rík­is­fjár­málum, gegn þarf­lausri útþenslu bákns­ins og nauð­syn þess að láta hags­muna­sam­tök ekki leika lausum hala á kostnað almenn­ings.“

Einn þetta sem leggur orð í belg er Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, for­sæt­is­ráð­herra og nú áhrifa­maður í Viðreisn. Hann skrif­aði að eitt væri að draga úr skerð­ingum svo þær virki ekki í jafn ríkum mæli sem hem­ill á atvinnu­þátt­töku. „Annað er að afnema allar skerð­ingar og hækka skatta til auka við líf­eyri þeirra sem hafa við­un­andi eft­ir­laun frá líf­eyr­is­sjóðum. Það er hvorki rétt­látt né skyn­sam­legt.“

„Þetta er stórslys“

Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi vara­for­maður og þing­maður Við­reisnar, sagði í inn­leggi sem birt­ist á mánu­dag að nýja stefnan fæli í sér, var­lega áætlað, yfir 100 millj­arða króna kostnað fyrir rík­is­sjóð á ári. „Að bæta stöðu aldr­aðra ein­stak­linga með lágar tekjur er mik­il­vægt enda er þar hópur fólks sem býr við sára fátækt. Það er hins vegar rétt að hafa í huga að í hópi aldr­aðra er einnig að finna mjög vel stætt fólk sem ekki þarf á fram­færslu frá hinu opin­bera að halda. Af 50 þús­und elli­líf­eyr­is­þegum í dag eru aðeins um 1.500 sem aðeins fá greiðslur frá Trygg­inga­stofnun en 35 þús­und með bland­aðar greiðslur og 12.500 aðeins með greiðslur frá líf­eyr­is­sjóðum, þ.e. tekjur þeirra hafa skert opin­beran elli­líf­eyri að fullu. Það sýnir best hvað almenn hækkun fjár­hæða og afnám skerð­inga er ómark­viss og dýr leið til að bæta kjör hinna verst stöddu.“

Þor­steinn spurði hvernig það mætti vera að flokkur sem gagn­rýndi harð­lega aðra flokka fyrir fjórum árum fyrir slíka stefnu og fyrir að greina ekki frá kostn­aði við slíka breyt­ingu, hefði nú tekið slíka stefnu upp á sína arma? Í mínum huga liggur hér trú­verð­ug­leiki flokks­ins undir.“

Síðar segir hann að í til­lög­unni felist grund­vall­ar­breyt­ing á stefnu Við­reisnar og upp­taka á tvö­földu líf­eyr­is­kerfi. „Breyting sem þessi felur í sér gríð­ar­lega aukn­ingu rík­is­út­gjalda. Þetta er stór­slys og flokkur sem hefur ábyrgð í rík­is­fjár­málum að leið­ar­ljósi getur ekki haft slíkt á stefnu­skrá sinni. Hvers vegna ætti ein­stak­lingur með háar tekjur af eigin líf­eyr­is­sparn­aði að fá óskertan líf­eyri frá rík­inu því til við­bótar?“

Nær ekki yfir allt

Guð­brandur Ein­ars­son, odd­viti Við­reisnar í Suð­ur­kjör­dæmi, er sá sem lagði fram breyt­ing­ar­til­lög­una við álykt­un­ina um afnám skerð­inga og hækkun bóta sem var sam­þykkt á lands­þing­inu.

Hann sagði í umræðum um málið á lok­uðu svæði Við­reisnar á Facebook að til­gang­ur­inn hafi fyrst og fremst verið sá að „ná ein­hverri sam­eig­in­legri nið­ur­stöðu um upp­haf­lega text­ann sem fjall­aði um skerð­ingar vegna launa­tekna og síðan til­lögu um veru­lega hækkun á skerð­ing­ar­mörkum vegna greiðslna úr líf­eyr­is­sjóðum. „Komandi úr verka­lýðs­hreyf­ing­unni fagna ég því að nið­ur­staðan hafi orðið þessi þ.e. upp­runi tekna skipti ekki máli.“

Síðar í sama inn­leggi seg­ist Guð­brandur ekki hafa setið í heil­brigðis- og vel­ferð­ar­nefnd og ekki hafa tekið þátt í að móta álykt­un­ina sem slíka. „Ég er hins vegar sáttur við hana en hún nær að sjálf­sögðu ekki yfir allt sem við höfum að segja í heil­brigðis og vel­ferð­ar­málum. Ég hef heldur ekki kostn­að­ar­töl­una á hreinu en vil benda á að við eigum að nota skatt­kerfið til að afla tekna og tekju­jafna en ekki milli­færslu­kerfin. Og ef það er ein­hver vilji til að horfa til fátæku kon­unnar með börnin þá er skatt­kerfið leiðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár