Vildu kanna orðróm um að Íranskeisari fengi hæli á Íslandi

Átti Íranskeis­ari að fá hér póli­tískt hæli? Í bréfi sem birt hefur verið á vef Wikileaks kemur það til tals.

Í gögnum sem WikiLeaks hefur birt á vef sínum kemur fram að íslensk stjórn­völd hafi íhugað að veita Íranskeis­ara hæli hér á landi árið 1979. Stuttu áður var keis­ar­inn, Mohammad Reza Pahlavi, hrak­inn frá völdum í Írans­bylt­ing­unni svoköll­uðu.

Bréfið, sem birt hefur verið á vef Wikileaks, er frá utan­rík­is­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna til sendi­ráðs Banda­ríkj­anna í Reykja­vík. Bréfið er frá 4. des­em­ber 1979 og kemur skýr­lega fram í því að efni þess sé trún­að­ar­mál.

Í bréf­inu segir að heim­ilda­maður, sem sé náinn for­seta Íslands - sem þá var Kristján Eldjárn - full­yrði að íslensk stjórn­völd íhugi að veita Íranskeis­ara hæli Íslandi.

Farið er fram á að þessi orðrómur sé kann­aður.

Benedikt Gröndal var for­sæt­is­ráð­herra og utan­rík­is­ráð­herra á þessum tíma. Sig­hvatur Björg­vins­son var fjár­mála­ráð­herra í stjórn­inni.

Í sam­tali við RÚV segir hann að þetta mál hafi ekki komið til tals innan rík­is­stjórn­ar­innar en geti ekki úti­lokað að það hafi verið kannað óform­lega. Sjálfur hafi hann ekki heyrt af því fyrr en nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár