Myndi kosta 1,9 milljarða að bæta sauðfjárbændum tapið

Offram­leiðsla er á lamba­kjöti á Íslandi. Engin eft­ir­spurn er sem stendur eftir kjöt­inu á erlendum mörk­uðum og því sitja bændur uppi með tap vegna hennar. Það tap vilja þeir að ríkið bæti þeim.

Það myndi kosta íslensk stjórn­völd tæp­lega 1,9 millj­arða króna að bæta sauð­fjár­bændum upp tap þeirra vegna fram­leiðslu árs­ins 2017. Þetta kemur fram í bréfi sem for­maður Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda, Oddný Steina Vals­dóttir, sendi alþing­is­mönnum í gær og Kjarninn hefur undir höndum.

Þar segir Oddný Steina að þriðj­ungs­lækkun á afurða­verði til sauð­fjár­bænda í haust þýði að fram­legð á með­al­kind lækki um 4.130 krónur frá árinu 2016. Í útreikn­ingum sam­bands­ins, sem unnar voru af Ráð­gjafa­mið­stöð land­bún­að­ar­ins upp úr skýrslu­halds­gögnum um 1.200 sauð­fjár­búa og rekstr­ar­gögnum 44 búa, er miðað við að kind­urnar séu 450 þús­und tals­ins, og því sé tap íslenskra sauð­fjár­bænda milli ára 1.859 millj­ónir króna. „Þessi staða er grafal­var­leg eins og bændur hafa ítrekað bent á. Margra mán­aða við­ræður við stjórn­völd hafa hins vegar litlu skilað. Lands­sam­tök sauð­fjár­bænda telja því ein­sýnt að bændur og Alþingi taki höndum saman og bregð­ist við þessum bráða­vanda án tafar.“

Samkvæmt fjár­lögum árs­ins 2017 munu greiðslur vegna sauð­fjár­fram­leiðslu, án alls við­bót­ar­kostn­aðar, nema um fimm millj­örðum króna í ár.

Launalækkun upp á 56 prósent

Útreikn­ing­arnir sýna einnig að afkoma fyrir afskriftir, fjár­magnsliði og skatta (EBITDA) fyrir sauð­fjár­rækt í heild verði 1.994 millj­ónum krónum minni í ár en hún var í fyrra, þegar afkoman var jákvæð um 531 milljón króna.

[adspot]Í bréfi Oddnýjar Steinu segir að þessi staða muni að óbreyttu þýða launa­lækkun upp á 56 pró­sent fyrir sauð­fjár­bændur. Raun­veru­leg launa­lækkun til sauð­fjár­bænda muni þó verða mun meiri því EBITDA verði 0 krónur eftir 56 pró­sent lækkun. „Bændur eiga þá eftir að greiða greiða vexti, verð­bætur, afskriftir og skatta. Það er því ljóst að laun íslenskra sauð­fjár­bænda munu lækka enn meira og stórir hópar fá engin laun fyrir vinnu­fram­lag sitt til sauð­fjár­ræktar árið 2017 ef fer sem horfir og afurða­verð lækkar um 35 pró­sent í haust.“

Hiti á fundi atvinnuveganefndar

Ástæðan fyrir þess­ari stöðu er sú að sauð­fjár­bændur geta ekki flutt úr landi þann hluta fram­leiðsl­unnar sem ætl­aður var til útflutn­ings. Helstu ástæður séu ann­ars vegar við­skipta­bann Rússa á íslenskar afurðir vegna stuðn­ings Íslend­inga við efna­hags­þving­anir Evr­ópu­sam­bandið á landið út af stöð­unni á Krím­skaga, og hins vegar lokun Nor­egs­mark­aðar. Þar er ein­fald­lega ekki lengur eft­ir­spurn eftir inn­fluttu lamba­kjöti. Þá hjálpar mikil styrk­ing krón­unnar ekki til.

Viðræður hafa staðið yfir milli sauð­fjár­bænda og stjórn­valda um aðgerðir vegna þess­arar stöðu um nokk­urt skeið, en án nið­ur­stöðu. Fjallað var um málið á fundi atvinnu­vega­nefndar í vik­unni. Páll Magn­ús­son, for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í kjöl­farið við Morg­un­blaðið að við­bót­ar­fjár­magn þyrfti að koma til frá hinu opin­bera. Hugs­an­lega þyrfti að flýta greiðslum úr núver­andi búvöru­samn­ingi.

Heim­ildir Kjarnans herma að sú hug­mynd að ríkið kaupi upp offram­leiðslu sauð­fjár­bænda fari mjög illa í ráð­herra Við­reisnar, sem stýra land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­inu og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Sömu sögu sé að segja um hug­myndir um að útflutn­ings­skylda verði tekin aftur upp. Hún var afnumin fyrir um ára­tug síðan vegna þess að hún þótti úrelt. Í útflutn­ings­skyldu fólst að bændur skuld­bundu sig til að selja hluta af fram­leiðslu sinni á erlenda mark­aði.

Mikill hiti var á fundi atvinnu­vega­nefndar í vik­unni þegar hluti nefnd­ar­manna, m.a. frá Sjálf­stæð­is­flokknum, töl­uðu fyrir annað hvort upp­töku útflutn­ings­skyldu eða upp­kaupum rík­is­ins á umfram­fram­leiðslu.

Slíkt kemur ekki til greina hjá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­inu nema að á móti komi vilji hjá Bænda­sam­tök­unum til að breyta kerf­inu þannig að svona staða, þar sem miklu meira af kjöti er fram­leitt en eft­ir­spurn sé eftir, komi ekki upp aftur. Þá kvarta margir við­mæl­endur Kjarnans yfir því að sára­lítið sé til af almenni­legum hag­tölum sem sýni raun­veru­lega stöð­una á sauð­fjár­mark­aðnum. Það þurfi að bæta veru­lega áður en að hægt sé að rétt­læta stór­kost­legar greiðslur úr rík­is­sjóði til að mæta þeirri erf­iðu stöðu sem sauð­fjár­bændur eru í.

Markaðsátak skilaði ekki aukinni eftirspurn

Rík­is­sjóður hefur þegar greitt tölu­verða fjár­muni vegna fyr­ir­sjá­an­legra erf­ið­leika íslenskra sauð­fjár­bænda við sölu á afurðum sínum erlendis. Um var að ræða sér­stakt mark­aðsá­tak fyrir sauð­fjár­af­urðir á erlendum mörk­uðum. Mark­aðsátakið þótti nauð­syn­legt vegna fyr­ir­sjá­an­legrar birgða­aukn­ingar sem gæti valdið verð­lækkun inn­an­lands.

Þegar fjár­auka­lög voru afgreidd 22. des­em­ber 2016 var sam­þykkt að veita 100 millj­ónum króna úr rík­is­sjóði til að koma í veg fyrir verð­lækkun á lamba­kjöti hér­lendis. Þegar frum­varp um fjár­auka­lög var kynnt vakti við­bót­ar­greiðslan tölu­verða athygli og var meðal ann­ars harð­lega gagn­rýnd af þáver­andi for­manni Neyt­enda­sam­tak­anna, Ólafi Arn­ar­syni. Hann sagð­ist gátt­aður á mál­inu og sagði að stjórn­völd væru að verja pen­ingum til að halda uppi verð­lagi á Íslandi.

Gunnar Bragi Sveins­son, þáver­andi starf­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, mót­mælti því harð­lega og sagði í sam­tali við RÚV að málið sner­ist „um það fyrst og fremst að bændur geti haldið áfram að fram­leiða lamba­kjöt og þá um leið bjóða neyt­endum sem Ólafur Arnarson er að vinna fyrir upp á ódýra, heil­næma og góða vöru og gott kjöt.“

Mark­aðsátakið virð­ist ekki hafa skilað miklu miðað við stöð­una eins og henni er lýst í bréfi Lands­sam­taka sauð­fjár­bænda. Þar segir að þriðj­ungur af fram­leiðslu þeirra sé vana­lega fluttur úr landi og seldur á erlendum mörk­uðum. „Sú sala hefur ekki gengið sem skyldi að und­an­förnu og útlit fyrir að birgðir við upp­haf slát­ur­tíðar verði 700 til 1.000 tonnum meiri en æski­legt væri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár