Plain Vanilla segir upp 14 starfsmönnum

Plain Vanilla segir upp 14 starfs­mönnum í kjöl­far end­ur­skipu­lagn­ingar fyr­ir­tæk­is­ins vegna kaupa Glu Mobile á stórum hlut í fyr­ir­tæk­inu. Fyr­ir­tækin verða sam­einuð og á Plain Vanilla að skila hagn­aði innan 6 mán­aða sam­kvæmt nýrri stefnu.

Íslenska tölvu­leikja­fyr­ir­tækið Plain Vanilla hefur sagt upp 14 starfs­mönnum í vegna end­ur­skipu­lagn­ingar fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta er gert í kjöl­far kaupa banda­ríska leikj­aris­ans Glu Mobile á stórum hlut í fyr­ir­tæk­inu. Stefnt er að sam­ein­ingu Plain Vanilla og Glu Mobile á næstu 15 mán­uðum, er fram kemur í til­kynn­ingu. Starfs­menn Plain Vanilla hér á landi hafa verið á bil­inu 70-80. Meg­in­þróun QuizUp verður áfram hér á landi.

Verður að skila hagnaði

Glu og Plain Vanilla ætla í sam­ein­ingu að ein­blína á þróun QuizUp spurn­inga­þátt­ar­ins, en frum­sýn­ing hans verður í Banda­ríkj­unum og Bret­landi næsta haust og talið er að spil­urum leiks­ins muni enn fjölga í kjöl­farið. Hingað til hefur áhersla fyr­ir­tæk­is­ins verið á að fjölga not­endum óháð tekjum og var tekin með­vituð ákvörðun um að forð­ast beinar aug­lýs­ingar innan leiks­ins. Þeirri stefnu hefur nú verið breytt og áhersla er lögð á að fyr­ir­tækið skili hagn­aði í aðdrag­anda vænt­an­legrar sam­ein­ingar Plain Vanilla við Glu Mobile, innan sex mán­aða.

Þátturinn sýndur á besta tíma

Fram kemur í til­kynn­ing­unni að til umræðu sé hjá sjón­varps­stöð­inni NBC að þátt­ur­inn verði á dag­skrá beint á eftir „Sunday Night Football“, einu vin­sælasta sjón­varps­efni í Banda­ríkj­unum með allt að 40 milljón áhorf­endur.

Haft er eftir Þor­steini B. Frið­riks­syni, for­stjóra Plain Vanilla, í til­kynn­ing­unni að Glu Mobile búi yfir mik­illi þekk­ingu á öflun tekna af vin­sælum net­leikjum.

„Fyr­ir­tækið fram­leiðir fjöl­marga slíka, þ.á.m. þekktan leik sem byggir á lífi raun­veru­leika­stjörn­unnar Kim Kar­dashian. Við höfum nú þegar byrjað að prófa að birta aug­lýs­ingar gagn­vart smærri hópi QuizUp not­enda og við­brögðin hafa verið jákvæð sem gefur okkur til­efni til að ætla að það tak­ist að Plain Vanilla skili hagn­aði í ár. Þessi er stefnu­breyt­ing er hluti af sam­starfi okkar við Glu Mobile og ef allt gengur vel munu fyr­ir­tækin tvö hugs­an­lega sam­ein­ast. Ég tel að sam­ein­ingin, ef af yrði, væri mjög jákvæð, bæði fyrir fram­tíð­ar­þróun Plain Vanilla en einnig fyrir þá mörgu fjár­festa sem lagt hafa okkur til fé í þessa upp­bygg­ingu. Það eru ríf­lega 4 millj­arðar króna sem komið hafa frá fjár­festum frá stofnun fyr­ir­tæk­is­ins og sem nýttir hafa verið til að ráða margt hæf­asta tækni­fólk á Íslandi. Þetta er öfl­ugt fólk sem öðl­ast hefur mikla reynslu á skömmum tíma. Til lengri tíma litið styrkjum við hins vegar stöðu fyr­ir­tæk­is­ins, og áfram­hald­andi veru þess hér á landi, með því að leggja áherslu á þau svið þar sem við stöndum Glu Mobile framar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár