„Atlaga“ að kjörum lífeyrisþega stöðvuð en þensluaðgerðir á húsnæðismarkaði enn inni

Í frum­varpi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um líf­eyr­is­s­greiðslur er gert ráð fyrir að nýr hópur, sá sem hefur ekki átt fast­eign í fimm ár, megi nota sér­eign­ar­sparnað skatt­frjálst til að kaupa sér hús­næði.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Í síð­ustu viku var frum­varpi Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um líf­eyr­is­greiðslur og til­greinda sér­eign dreift á þingi. Frum­varpið er að uppi­stöðu til þess gert að efna lof­orð sem stjórn­völd gáfu í tengslum við gerð lífs­kjara­samn­ing­anna vorið 2019, en hafa enn ekki efnt. Í þeim samn­ingi skuld­bundu stjórn­völd sig meðal ann­ars að hækka lág­marks­ið­gjald til líf­eyr­is­sjóða úr 12 í 15,5 pró­sent og að ráð­stafa mætti sér­eign­ar­sparn­aði til hús­næð­is­kaupa eða til lækk­unar hús­næð­is­lána.

Bjarni lagði frum­varpið fyrst fram fyrir rúmu ári síðan. Í því voru mun fleiri breyt­ingar en þær sem minnst er á hér að ofan og fyrir vikið sætti það umtals­verðri gagn­rýni, meðal ann­ars fyrir ónægt sam­ráð við hag­að­ila. Fyrir vikið náði frum­varpið ekki fram að ganga. Því var vísað aftur til rík­is­stjórn­ar­innar til frek­ari umfjöll­unar og und­ir­bún­ings.

Efn­is­lega gagn­rýnin var margs­konar. Sú sem hæst fór sner­ist um að sam­kvæmt frum­varp­inu áttu verð­lags­upp­færslur líf­eyr­is­greiðslna að eiga sér stað einu sinni á ári í stað mán­að­ar­lega eins og nú er. Þetta köll­uðu reynslu­mikið fólk úr líf­eyr­is­sjóða­heim­inum atlögu að kjörum líf­eyr­is­þega sem myndi skerða kaup­þátt líf­eyr­is­þegar umtals­vert. Þótt fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra seg­ist í grein­ar­gerð ekki geta tekið undir allar athuga­semdir um þetta atriði sem settar hafa verið fram „var talið rétt að svo stöddu að leggja ekki til breyt­ingar á útreikn­ingnum.“

Annað atriði sem hefur verið gagn­rýnt er að heim­ilt verður að nota svo­kall­aða til­greina sér­eign skatt­frjálst upp í fyrstu fast­eigna­kaupin sín. Það er þenslu­hvetj­andi aðgerð, sem er ekki það sem upp­seldur hús­næð­is­mark­aður þar sem fram­boð er langt frá því að svara eft­ir­spurn þarf á að halda.

Varhugaverðar breytingar með stuttum fyrirvara

Upp­haf­lega frum­varpið var lagt fram fyrir rúmu ári. Á meðal þeirra sem gagn­rýndu það harka­lega var Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ). Hún sagði í sam­tali við Kjarnann að stjórn­völd væru að reyna að „smygla“ óræddum breyt­ingum inn í frum­varpið og gerði aðal­lega athuga­semdir við þrennt. Í fyrsta lagi með að það ætti að hækka þann aldur þegar rétt­inda­á­vinnsla til elli­líf­eyris hefst frá 16 ára aldri og upp í 18 ára ald­ur. Það myndi þýða að 16 og 17 ára ung­menni greiði ekki í líf­eyr­is­sjóð eins og í dag og atvinnu­rek­endur greiði þar af leið­andi heldur ekki mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóði þeirra vegna.

[adspot]Í annan stað hafi verið stefnt að því að breyta upp­færslu á vísi­tölu líf­eyr­is, þannig að líf­eyrir yrði ein­ungis verð­bættur einu sinni á ári, 1. jan­ú­ar, en ekki í hverjum ein­asta mán­uði. Í þriðja lagi sagði Drífa að ASÍ væri ekki hrifið af und­an­þágu sem sé tíma­bundið veitt frá hækkun lág­marks­ið­gjalda í líf­eyr­is­sjóði, sem ann­ars er verið að lög­festa með frum­varp­inu að fari úr 12 pró­sentum upp í 15,5 pró­sent. Und­an­þágan er veitt til bráða­birgða fyrir þá sem eru með samn­inga um 12 pró­sent iðgjöld, en þetta á fyrst og fremst á við sjó­menn. Þessa und­an­þágu vildu ASÍ ekki hafa inni.

Í nefnd­ar­á­liti efna­hags- og við­skipta­nefndar sagði meðal ann­ars að gagn­rýnin sem sett hafði verið fram við umfjöllun nefnd­ar­innar um málið hafi til að mynda snú­ist um að ónægt sam­ráð hefði verið haft við líf­eyr­is­sjóði og aðra hags­muna­að­ila við und­ir­bún­ing þess. Þá sagði þar að „var­huga­vert væri að viða­miklar breyt­ingar á líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu væru lagðar fram með svo stuttum fyr­ir­vara.“

Nefndin lagði því til að mál­inu yrði vísað til rík­is­stjórn­ar­innar, það yrði rýnt með til­lit til ábend­inga í umsögnum og sam­ráð haft við hag­að­ila um breyt­ingar. Að því loknu væri hægt að leggja frum­varpið fram að nýju á yfir­stand­andi þingi.

Breytt frumvarp en margt gamalt inni í því

Drög að nýju frum­varpi voru kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda fyrr á þessu ári. Hluti af því sem áður hafði verið gagn­rýnt var farið út og nú áttu að fel­ast fimm meg­in­breyt­ingar í frum­varp­inu. Í fyrsta lagi átti að lög­binda hækkun mót­fram­lags launa­greið­enda á almennum vinnu­mark­aði til líf­eyr­is­sjóðs úr átta pró­sentum í 11,5 pró­sent, en 77-100 pró­sent atvinnu­rek­enda greiða nú þegar 11,5 pró­sent í líf­eyr­is­sjóð með hverjum starfs­manni sam­kvæmt því sem fram kemur í árs­reikn­ingum líf­eyr­is­sjóð­anna. Þar með myndi lág­marks­ið­gjald hækka upp í 15,5 pró­sent.

Í öðru lagi var lagt til að sjóð­fé­lagar gætu ráð­stafað hækkun mót­fram­lags­ins til þess er mun kall­ast til­greind sér­eign, í stað þess að ráð­stafa hækk­un­inni í sam­trygg­ing­ar­deildir líf­eyr­is­sjóða. Í þriðja lagi voru settar fram til­lögur að auknum heim­ildum til þess að nýta úrræði líf­eyr­is­sparn­aðar til fyrstu kaupa á fast­eign.

Í fjórða lagi var lagt til að til­greindur yrði á skýran hátt sá hluti líf­eyr­is­sparn­aðar sem kemur ekki til lækk­unar við ákvörðun um elli­líf­eyri, tekju­trygg­ingu og ráð­stöf­un­arfé sam­kvæmt lögum um almanna­trygg­inga.

Í fimmta lagi var svo, áfram sem áður, lagt til að verð­lags­upp­færslur líf­eyr­is­greiðslna ættu sér stað einu sinni á ári í stað mán­að­ar­lega eins og nú er.

Þensluhvetjandi aðgerð

Fjöl­margt í nýjum frum­varps­drögum Bjarna var gagn­rýnt. Þar er til að mynda lög­fest heim­ild sjóðs­fé­laga líf­eyr­is­sjóða til að geta ráð­stafað hluta af því fram­lagi sem þeir greiða til líf­eyr­is­sjóða í svo­kall­aða til­greinda sér­eign. Þessa til­greindu sér­eign munu sjóð­fé­lagar svo geta nýtt sér skatt­frjálst upp í fyrstu fast­eigna­kaupin sín.

Þessi aðgerð yrði án efa þenslu­hvetj­andi á hús­næð­is­mark­aði þar sem verð er þegar búið að hækka mun hraðar en ráð­stöf­un­ar­tekjur á skömmum tíma og fram­boð er langt frá því að anna eft­ir­spurn. Segja má að íslenskum hús­næð­is­mark­aður sé í raun upp­seldur.

Í nýjasta hefti Fjár­mála­stöð­ug­leika sagði Seðla­bank­inn að margir þættir hafi ýtt undir eft­ir­spurn eftir að kór­ónu­veiru­far­sóttin náði til lands­ins snemma árs 2020, t.a.m. auk­inn sparn­aður vegna tak­mark­aðra neyslu­mögu­leika, mikil kaup­mátt­ar­aukn­ing heim­ila og vaxta­lækk­anir Seðla­bank­ans.

Bank­inn sagði að ójafn­vægið sem ríkir á hús­næð­is­mark­aðnum bendi til þess að áhætta á bólu­myndun sé að aukast tölu­vert þessi miss­er­in. Hins vegar von­aðist hann til þess að vaxta­hækk­anir und­an­far­inna mán­aða og þrengri skil­yrði fyrir lán­töku myndi minnka þetta ójafn­vægi með því að draga úr eft­ir­spurn.

Auknar heim­ildir til skatt­frjálsrar ráð­stöf­unar á sér­eign­ar­sparn­aði í fyrstu fast­eign, líkt og lagt er til í frum­varpi Bjarna, hefðu þver­öfug áhrif og auka eft­ir­spurn á hús­næð­is­mark­aði, þar sem þær auka aðgengi heim­ila að fjár­magni til hús­næð­is­kaupa. Ef slíkum eft­ir­spurn­ar­kippi er ekki mætt með sam­svar­andi aukn­ingu fram­boðs mun hús­næð­is­verð hækka enn frek­ar. Því er um þenslu­að­gerð að ræða.

Áhrif aðgerð­ar­innar á eft­ir­spurn á fast­eigna­mark­aðnum eru ekki metin í frum­varps­drög­unum.

Kölluðu frumvarpið atlögu að kjörum lífeyrisþega

Önnur skörp gagn­rýni á drögin kom frá Hrafni Magn­ús­syni, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða til 36 ára, og Þor­geiri Eyj­ólfs­syni, sem var fram­kvæmda­stjóri Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna í ald­ar­fjórð­ung. Þeir eru tveir af reynslu­mestu stjórn­endum íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins frá því að það var sett á fót.

Í grein sem Hrafn og Þorgeir skrif­uðu saman í Morg­un­blaðið og birt­ist 4. apríl sagði m.a.: „Í far­vatn­inu er aðför að kjörum líf­eyr­is­þega líf­eyr­is­sjóð­anna. Atlagan að kjörum líf­eyr­is­þega er hluti fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á ýmsum lögum vegna lög­fest­ingar hækk­unar lág­marks­ið­gjalds til líf­eyr­is­sjóða. Skerð­ingin á kjörum líf­eyr­is­þeg­anna er með öllu óskyld og óvið­kom­andi lög­fest­ingu lág­marks­ið­gjalds­ins.“

Atlagan sem þeir töldu vera í far­vatn­inu snéri að því að frum­varps­drögin gerðu áfram ráð fyrir að verð­lags­upp­færslur líf­eyr­is­greiðslna ættu sér stað einu sinni á ári í stað mán­að­ar­lega eins og nú er. Þetta sögðu Hrafn og Þorgeir að myndi skerða lífs­kjör líf­eyr­is­þega. Nei­kvæðar afleið­ingar hinna fyr­ir­hug­uðu breyt­inga mættu sjá með því að horfa á hver áhrifin yrðu á yfir­stand­andi ári ef laga­breyt­ingin hefði tekið gildi í upp­hafi árs 2022. Miðað við þá 6,7 pró­sent verð­bólgu sem mæld­ist þegar greinin var skrifuð myndi kaup­mátt­ar­skerð­ing líf­eyr­is­þega verða um það bil þrjú pró­sent ef breyt­ingin hefði þegar tekið gild­i. Hún yrði meiri í dag þar sem verð­bólgan er komin upp í 7,6 pró­sent og spár grein­ing­ar­að­ila gera ráð fyrir að hún fari yfir átta pró­sent fyrir sum­ar­lok.

Hrafn og Þor­geir sögðu í lok grein­ar­innar að ólík­legt sé að líf­eyr­is­þegar telji fyr­ir­hug­aða breyt­ingu á verð­trygg­ingu líf­eyris sér til hags­bóta þegar hún upp­söfnuð yfir fimm ára tíma­bil sam­svarar sam­an­lagt allt frá einni til tveggja mán­aða líf­eyr­is­greiðslna yfir tíma­bilið sem þá vantar til að standa straum af brýn­ustu nauð­synj­um. „Ekki eins og líf­eyr­is­þegar lands­ins hafi verið ofaldir af stjórn­völd­um. En það er efni í aðra og mun sorg­legri grein.“

Felldi út breytt fyrirkomulag við útreikning á verðbótum

Gagn­rýnin sem sett hefur verið fram á frum­varpið á síð­ustu tveimur árum hefur skilað umtals­verðum árangri, þótt fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hafi ekki tekið til­lit til hennar allrar.

[links]Í frum­varp­inu sem dreift var mánu­dag í síð­ustu viku, og til stóð að taka til fyrstu umræðu á þing­inu í gær, eru lagðar til fjórar meg­in­breyt­ingar. Sú stærsta er áfram sem áður að hækka lág­marks­ið­gjald úr 12 í 15,5 pró­sent. Felld hefur verið á brott til­laga um að skylda líf­eyr­is­sjóði til að bjóða sjóð­fé­lögum ráð­stöfun á hluta iðgjalds­stofns til til­greindrar sér­eignar. Í stað þess er lagt til að líf­eyr­is­sjóðum verði heim­ilt að kveða á um slíkra ráð­stöfun í sam­þykktum sínum.

Tillögur að auknum heim­ildum til þess að nýta úrræði líf­eyr­is­sparn­aðar til fyrstu kaupa á fast­eign eru áfram inni, með til­heyr­andi þenslu­á­hrifum.

Loks er lagt til að til­greindur verði skýr­lega sá hluti líf­eyr­is­sparn­aðar sem kemur ekki til lækk­unar við ákvörðun um elli­líf­eyri, tekju­trygg­ingu og ráð­stöf­un­arfé sam­kvæmt lögum um almanna­trygg­ingar.

Ýmislegt hefur verið fellt á brott. Þar ber hæst það sem Hrafn og Þorgeir gagn­rýndu harð­lega í grein sinni í Morg­un­blað­inu í apríl, breytt fyr­ir­komu­lag við útreikn­ing á verð­bótum líf­eyr­is­greiðslna. Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varpi Bjarna segir að þrátt fyrir að „ekki sé unnt að taka undir allar athuga­semdir um þetta atriði sem fram komu í umsögnum var talið rétt að svo stöddu að leggja ekki til breyt­ingar á útreikn­ingnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár