Ellefu virk smit og 379 í sóttkví

Ellefu ein­stak­lingar hér á landi eru nú greindir með virk smit af kór­ónu­veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Í sótt­kví eru 379 og mögu­lega mun fjölga í þeim hópi í dag vegna stað­festrar sýk­ingar hjá leik­manni Stjörn­unnar.

Virkum smitum hefur fjölgað töluvert síðustu sólarhringa og eru nú orðin ellefu.
Virkum smitum hefur fjölgað tölu­vert síð­ustu sól­ar­hringa og eru nú orðin ell­efu. Mynd: EPA

Tæplega 10.140 sýni höfðu í gær verið tekin í skimunum vegna kór­ónu­veirunnar á landa­mærum Íslands. Á vef­síð­unni Covid.is, sem upp­færð er dag­lega kl. 13, má sjá að ell­efu virk smit eru nú hér á landi sem þýðir að fólkið sem greinst hefur með þau getur smitað aðra. 379 eru nú í sótt­kví en í fyrra­dag var fjöld­inn 180.

Í gær greindust tveir með veiruna í landamæra­skimun og tveir til við­bótar hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans. Frá því skimun við landa­mærin hófst 15. júní hafa tutt­ugu greinst með smit en aðeins fjórir með virk smit.

[adspot]

Fyrr í vik­unni var greint frá því að leik­maður Breiða­bliks hefði greinst með kór­ónu­veiruna. Sá hafði komið til lands­ins frá Banda­ríkj­unum 17. Júní en fengið nei­kvæða nið­ur­stöðu út úr sýna­tök­unni þá. Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra, stað­festi við RÚV í morgun að smit leik­manns Stjörn­unnar megi rekja til leik­manns Breiða­bliks.

[links]Ævar Pálmi Pálmason, yfir­maður smitrakn­ing­arteym­is­ins og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn, sagði í sam­tali við Kjarnann í morgun að ekki væri með óhyggj­andi hætti hægt að full­yrða að leik­maður Breiða­bliks hefði smit­ast erlendis. Hann kann að hafa smit­ast hér á landi. „Hver smitar hvern“ sé ekki alltaf á hreinu.

Í leið­bein­ingum yfir­valda varð­andi landamæra­skimun kemur fram að ef fólk mælist ekki með veiruna á próf­inu sé samt „æski­legt“ að fara var­lega fyrstu fjórtán dag­ana „því nið­ur­stöður prófs­ins eru ekki alveg óyggj­andi“.

Einnig segir: „Allir ferða­menn eru hvattir til að gera var­úð­ar­ráð­staf­anir til að vernda sjálfa sig og aðra, s.s. tíðan hand­þvott, notkun sótt­hreinsi­efna, tveggja metra nánd­ar­regl­una og að virða þær heil­brigðis- og örygg­is­reglur sem í gildi eru.“

Eftir því hefur verið tekið síð­ustu daga að á fót­bolta­leikjum eru leik­menn liða að fagna mörkum með faðm­lögum. „Ég held að eina fólkið sem ekki tekur þátt í því [inni á vell­inum] séu dóm­ar­arnir, þeir passa sig,“ segir Ævar.

Klara Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, sagði við Kjarnann í morgun að leið­bein­ingar um hvernig aðild­ar­fé­lög skuli bera sig að vegna COVID-19 hafi verið vel kynntar en í þeim segir til dæmis að ekki eigi að fagna mörkum með snert­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár