Hætta á áfallastreitu í kjölfar faraldursins

Kór­ónu­veiran er ekki það eina sem ógnar heilsu heil­brigð­is­starfs­fólks. Víða er ofbeldi gegn því að aukast og sömu­leiðis álag sem veldur kulnun og örmögnun.

Hjúkrunarfræðingar á sjúkrahúsi í Belgíu hugga hvor annan eftir að einn sjúklingurinn á COVID-deild lést.
Hjúkr­un­ar­fræð­ingar á sjúkra­húsi í Belgíu hugga hvor annan eftir að einn sjúk­ling­ur­inn á COVID-deild lést. Mynd: EPA

Í des­em­ber tók lækn­ir­inn Li Wenliang eftir því að inn á sjúkra­húsið sem hann starf­aði leit­uðu sífellt fleiri með ein­kenni sem ollu honum hug­ar­angri. Þetta voru svipuð ein­kenni og fólk hafði glímt við í SARS-far­aldr­inum árið 2003 og því ákvað hann að vara kollega sína við. Síðasta dag des­em­ber­mán­aðar sendi hann skila­boð inn í spjall­hópa lækna á net­inu og sagði þeim að klæð­ast varn­ar­bún­aði. Svæsin veiru­sýk­ing var farin að breið­ast út í borg­inni sem hann bjó og starf­aði í: Wuhan.

Li var tek­inn á teppið af yfir­völdum fyrir að „breiða út fals­aðar upp­lýs­ingar“. Skömmu síðar var hann beð­inn afsök­unar. Öllum var orðið ljóst að ný veira væri að valda alvar­legum sjúk­dómi sem síðar átti eftir að fá nafnið COVID-19.

Þann 10. jan­úar byrj­aði Li að hósta. Næsta dag fékk hann hita og tveimur dögum síðar var hann sjálfur lagður inn á sjúkra­hús. Í lok mán­að­ar­ins var hann greindur með nýju kór­ónu­veiruna og nokkrum dögum síðar lést hann.

Við þekkjum öll fram­haldið: Heims­far­aldur kór­ónu­veiru hefur haft áhrif um allan heim á heilsu og efna­hag. Þeir sem staðið hafa í fram­lín­unni, heil­brigð­is­starfs­fólk, kenn­arar, lög­reglu­menn og fleiri, hafa borið hit­ann og þungan af ástand­inu.

[adspot]

Um allan heim hafa yfir­völd orðið að grípa til gríð­ar­legra var­úð­ar­ráð­staf­ana til að tryggja öryggi heil­brigð­is­starfs­fólks og vernda það fyrir því að sýkj­ast af veirunni. Það hefur ekki alltaf tek­ist – oft vegna þess að hlífð­ar­fatn­aður er ekki til staðar.

For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands greindi frá því nýverið að í það minnsta 275 heil­brigð­is­starfs­menn hefðu dáið vegna COVID-19. Talið er að um van­mat sé að ræða. Fólk sem starfar í félags­þjón­ustu er í enn meiri hættu. Í Banda­ríkj­unum hefur þessum tölum ekki verið haldið saman mið­lægt en um miðjan apríl var það mat Sótt­varna­stofn­unar lands­ins að um 9.300 heil­brigð­is­starfs­menn hefðu sýkst af COVID-19 og að 27 hefðu lát­ist. Meiri­hlut­inn taldi sig hafa smit­ast við störf sín. Í fátæk­ari löndum er staðan verri. En þaðan er oft ekki áreið­an­legar upp­lýs­ingar um fjölda smit­aðra að fá.

En veiran skæða er ekki það eina sem ógnar heil­brigði fram­línu­fólks­ins. Ofbeldi gegn heil­brigð­is­starfs­mönnum hefur til að mynda auk­ist síð­ustu ár og sömu­leiðis örmögnun – kulnun. Slíkt skips­brot má rekja til ofur­á­lags sem aftur má rekja til mann­eklu.

Í grein Economist er farið yfir helstu vanda­mál og hættur sem steðja að heil­brigð­is­starfs­fólki. Þar er bent á að þessi hópur hefur und­an­farna mán­uði verið sýni­legri og að sama skapi ber­skjald­aðri en lík­lega nokkru sinni fyrr. Um tíma höfðu útgöngu- og sam­komu­bönn áhrif á um þriðj­ung jarð­ar­búa sam­tímis og fólk sem vann við að sinna sjúkum var meðal þeirra fáu sem voru á ferli. Fólkið í fram­lín­unni varð að mæta í vinn­una á meðan aðrir gátu leitað skjóls á heim­ilum sínum.

Yfir þriðjungur orðið fyrir ofbeldi

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin telur að um 38 pró­sent heil­brigð­is­starfs­manna um víða ver­öld hafi orðið fyrir lík­am­legu ofbeldi við störf sín ein­hvern tím­ann á starfsæv­inni. Á mörgum svæðum er hlut­fallið mun hærra. Í fyrra sagð­ist einn af hverjum sjö starfs­mönnum breska heil­brigð­is­kerf­is­ins hafa orðið fyrir lík­ams­árás í starfi. Ýmist eru það sjúk­lingar eða almennir borg­arar sem hafa ráð­ist á þá. Einn af hverjum þremur læknum í Ástralíu hefur orðið fyrir ofbeldi í vinn­unni. Um 75 pró­sent ind­verskra lækna hefur verið hótað ofbeldi. Dæmin eru miklu fleiri og frá öllum heims­hornum.

Merki eru um að ótti við að smit­ast af COVID-19, sem magn­ast upp vegna vill­andi upp­lýs­inga um sjúk­dóm­inn, hafi ýtt undir frekara ofbeldi í far­aldr­inum, segir í grein Economist. Í stað lík­am­legs ofbeldis eru árás­irnar gerðar með fúk­yrða­flaumi. Hafa læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar m.a. verið sak­aðir um að breiða veiruna vís­vit­andi út. Óþol­in­mæði og pirr­ingur er einnig lát­inn bitna á heil­brigð­is­starfs­fólki. Starfs­fólk á sjúkra­húsi einu í Ástralíu sagði að fólk sem væri að bíða eftir að kom­ast í sýna­töku hefði vilj­andi hóstað og hrækt á það.

Virðing og traust dvínað

Virðing fyrir heil­brigð­is­starfs­fólki er heldur ekki upp á marga fiska í sumum löndum. Frá því á tíunda ára­tug síð­ustu aldar hefur einka­reknum sjúkra­húsum í Kína fjölgað og á sama tíma hefur traust almenn­ings til þeirra sem á þeim starfa dvínað. Fólk grunar lækna um að hugsa fyrst og fremst um pen­inga en ekki heilsu sjúk­linga sinna. Svipað hefur gerst á Indlandi.

Bráða- og slysa­deildir í nútíma heil­brigð­is­kerfum eru oft­ast opnar öllum. Þangað eiga flestir greiða leið inn. Og þar eru heil­brigð­is­starfs­menn hvað ber­skjald­að­astir. Til að draga úr ofbeldi gegn þeim hefur verið gripið til alls konar ráð­staf­ana. Á banda­rískum sjúkra­húsum hafa sum staðar verið sett upp málm­leit­ar­hlið. Starfs­menn kín­verskra sjúkra­húsa fá kennslu í sjálfs­vörn og nú í apríl var ind­verskum lögum breytt þannig að þeir sem grun­aðir eru um árásir á heil­brigð­is­starfs­fólk geta ekki losnað úr gæslu­varð­haldi gegn trygg­ingu. Í Ástralíu hafa stjórn­endur sjúkra­húsa beðið starfs­fólk að vera ekki í sjúkra­hús­fatn­aði á almanna­færi. Þannig geti það lág­markað hætt­una á því að verða fyrir árás.

Heil­brigð­is­starfs­menn vinna oft langa vinnu­daga. Utan vinnu eru þeir svo margir hverjir til taks allan sól­ar­hring­inn ef á þarf að halda. Í far­aldri COVID-19 hafa margir heil­brigð­is­starfs­menn, m.a. hér á landi, verið nán­ast í sótt­kví þegar þeir eru ekki að vinna. Hafa ekki hitt ást­vini og vini vikum saman, allt til að vernda sjúk­ling­ana.

Kulnun í starfi er því útbreidd meðal þess­ara starfs­stétta, jafn­vel í ástandi sem getur talist „eðli­legt“. Um 70 pró­sent kín­verskra heil­brigð­is­starfs­manna sem sinntu COVID-sjúk­lingum þegar far­ald­ur­inn var sem verstur upp­lifðu van­líðan. Læknum og hjúkr­un­ar­fræð­ingum hefur einnig verið hótað af stjórn­völdum í sumum löndum eftir að hafa gagn­rýnt opin­ber­lega við­brögð við far­aldr­inum. Þrír rúss­neskir læknar féllu út um glugga á sjúkra­húsi nýverið. Tveir þeirra lét­ust. Allir höfðu þeir tjáð skoð­anir sínar á við­brögðum stjórn­valda. Fjöl­miðlar í land­inu segja að annað hvort hafi verið um slys að ræða eða að lækn­arnir hafi stytt sér aldur.

Á Ítalíu, svo dæmi sé tekið, voru læknar settir í þá stöðu að þurfa að velja hverjir fengju að fara í önd­un­ar­vélar og hverjir ekki. Þannig voru þeir í raun látnir velja hvaða sjúk­lingar ættu von um að lifa og hverjir myndu deyja. Og víða um heim voru heim­sóknir á sjúkra­hús bönnuð í far­aldr­inum og heil­brigð­is­starfs­fólk horfði upp á sjúk­linga liggja bana­leg­una og deyja án þess að geta haft ást­vini sína hjá sér.

[adspot]

Við slíkar sál­rænar raunir skap­ast hætta á því sem kall­ast áfallastreita en fylgi­fiskar hennar eru m.a. ofsa­kvíði og þung­lyndi, segir í grein Economist.

Til að koma í veg fyrir þetta er nauð­syn­legt að starfs­fólk úr eld­lín­unni far­ald­urs­ins fái per­sónu­lega aðstoð og að hún bjóð­ist yfir langt tíma­bil. Bresku lækna­sam­tökin ótt­ast að efna­hag­skreppan sem fylgt hefur far­aldr­inum verði til þess að þjón­usta sem þessi verði skorin niður.

Þegar mesta hættan af veiru­sýk­ingu verður liðin hjá þarf að huga vand­lega að líðan fram­línu­fólks­ins.

Í við­tali við Lækna­blaðiðí apríl sagð­ist Alma Möller land­læknir hafa áhyggjur af álagi á heil­brigð­is­starfs­fólki í far­aldr­inum. Embætti land­læknis hefði kallað eftir upp­lýs­ingum frá heil­brigð­is­stofn­unum um allt land svo að huga mætti að heilsu starfs­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár