Skjótt skipast veður í lofti

Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn er í vanda vegna Evr­ópu­sam­bands­styrkja sem not­aðir hafa verið í þágu flokks­ins, en eitt meg­in­stef hans er að vera gagn­rýn­inn á Evr­ópu­sam­bandið. Styrkirnir hafa nú verið end­ur­greiddir.

Í kosningunum til Evrópuþingsins árið 2014 fékk fulltrúi Danska Þjóðarflokksins Morten Messerschmidt tæplega fimm hundruð þúsund atkvæði.
Í kosn­ing­unum til Evr­ópu­þings­ins árið 2014 fékk full­trúi Danska Þjóð­ar­flokks­ins Morten Messerschmidt tæp­lega fimm hund­ruð þús­und atkvæði.

Oft er haft á orði að vika sé langur tími í póli­tík. Þetta orða­til­tæki á sann­ar­lega við um allt það fjaðrafok sem þyrl­ast hefur upp í kringum Danska Þjóð­ar­flokk­inn að und­an­förnu. Þótt lengri tími en ein vika sé liðin síðan fyrstu blikur sáust á lofti varð­andi mál­efni tengd flokknum eru ein­ungis nokkrir dagar síðan mold­viðrið skall á, ef svo má að orði kom­ast. Mold­viðrið teng­ist fjár­málum, einkum með­ferð Evr­ópu­þing­manna flokks­ins á fjár­munum sem þeir hafa sótt í sjóði Evr­ópu­sam­bands­ins.

Árið 1995 sögðu fjórir þing­menn Fram­fara­flokks­ins (sem kenndur var við Mogens Glistrup) sig úr flokknum, þar sem allt log­aði í ill­deilum, og stofn­uðu nýjan flokk, Danska Þjóð­ar­flokk­inn. Meðal þess­ara þing­manna voru Pia Kjærs­gaard, sem varð for­maður hins nýja flokks, og Kristian Thulesen Dahl sem tók sæti í flokks­stjórn­inni. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn bauð fyrst fram til þings árið 1998 og fékk þá 13 þing­menn af þeim 179 sem sæti eiga á danska þing­inu, Fol­ket­inget. Pia Kjærs­gaard, sem nú er for­seti þings­ins, gegndi for­mennsku í flokknum til árs­ins 2012 en þá tók áður­nefndur Kristian Thulesen Dahl við for­mennsk­unni. Fylgi flokks­ins jókst mjög í kjöl­far for­manns­skipt­anna og í þing­kosn­ingum 2015 fékk Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn 37 þing­menn og er næst fjöl­menn­asti flokk­ur­inn á danska þing­inu. Sós­í­alde­mókratar eru fjöl­menn­astir, hafa 46 þing­menn, stjórn­ar­flokk­ur­inn Venstre er með 34 þing­menn. Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn hefur fram til þessa ekki viljað taka þátt í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi en styður núver­andi stjórn, ásamt tveimur öðrum flokkum. Flokk­ur­inn er fylgj­andi ströngum reglum um inn­flytj­endur, lætur sig miklu varða mál­efni aldr­aðra og þeirra sem standa höllum fæti í sam­fé­lag­inu og er mjög gagn­rýn­inn á Evr­ópu­sam­bands­sam­starfið.

Morten Messerschmidt

Í kosn­ing­unum til Evr­ópu­þings­ins árið 2014 fékk full­trúi Danska Þjóð­ar­flokks­ins Morten Messerschmidt tæp­lega fimm hund­ruð þús­und atkvæði. Enginn þing­maður hafði áður fengið svo mörg atkvæði í slíkum kosn­ingum en hann hafði setið á Evr­ópu­þing­inu síðan árið 2004. Morten Messerschmit hefur af mörgum verið tal­inn ein skærasta stjarna Danska Þjóð­ar­flokks­ins, og iðu­lega nefndur sem næsti for­maður flokks­ins. Það hefur stundum gustað um Morten Messerschmith og árið 2007 sló dag­blaðið BT því upp á for­síðu að hann hefði, ölv­aður á veit­inga­stað í Tívolí, hyllt Adolf Hitler og sungið nas­ista­söngva. Morten Messerschmidt sagði að hann hefði vissu­lega verið við skál og hann hefði sungið fyrsta erindið af „Lied der Deutchen“ (þriðja erindið er þjóð­söngur Þjóð­verja) en neit­aði að hafa hyllt Hitler. Morten Messerschmidt stefndi blað­inu og vann málið.

ESB sjóðirnir og Morten Messerschmidt

Í októ­ber 2015 til­kynnti Evr­ópu­þing­mað­ur­inn Rikke Karlsson úrsögn sína úr Danska Þjóð­ar­flokknum. Ástæðuna sagði hún vera þá að hún hefði ekki, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir, fengið að sjá bók­hald sjóðs, sem nefnd­ist FELD og félags að nafni MELD. Hún hefði þó verið skráð sem stjórn­ar­maður í báðum, reyndar án þess að hún hefði nokkru sinni verið spurð hvort hún vildi sitja í þessum tveim stjórnum. Rikke Karlsson sagði að fjár­munir sem bæði FELD og MELD hefðu fengið frá Evr­ópu­sam­band­inu hefðu ein­göngu verið not­aðir í þágu Danska þjóð­ar­flokks­ins. MELD er skamm­stöfun sam­taka félaga úr ólíkum flokkum og Evr­ópu­þing­mönnum ESB landa. Slík sam­tök geta fengið styrki til starf­sem­innar frá ESB. FELD er sjóður sem teng­ist til­teknum flokki eða sam­tökum (í þessu til­viki MELD) og úthlutar fjár­munum til að rann­saka, skil­greina og taka þátt í stjórn­mála­um­ræðu og halda nám­skeið og ráð­stefnur.

Rikke Karlsson full­yrti að fjár­munum sem MELD og FELD hefðu fengið frá ESB um ára­bil hefði öllum verið varið í sum­ar­þing og fleiri sam­komur og ráð­stefnur á vegum Danska Þjóð­ar­flokks­ins án þess að nokkrir aðrir tækju þar þátt. Að nota fjár­muni frá Evr­ópu­sam­band­inu með þessum hætti er algjör­lega bannað. Morten Messerschmidt hafn­aði þessum ásök­unum en neit­aði jafn­framt að leggja fram nokkur gögn vegna máls­ins. Málið hafði hins vegar þegar þarna var komið ratað inn á borð rann­sókn­ar­stofn­unar Evr­ópu­sam­bands­ins (OLAF) og nið­ur­staða þeirrar rann­sóknar var sú að reglum hefði ekki verið fylgt og þess kraf­ist að styrkirnir yrðu end­ur­greiddir. Morten Messerschmidt neit­aði sem fyrr að nokkuð ólög­legt hefði átt sér stað en 9. maí á þessu ári krafð­ist ESB að MELD og FELD myndu end­ur­greiða tæp­lega þrjár millj­ónir danskra króna. 18. ágúst sl. birti Ekstra blaðið gögn sem sýndu fram á að Rikke Karlsson hefði verið kjörin í stjórn MELD og FELD án þess að hún hefði vitað af því og án hennar sam­þykkis. Rikke Karlsson kærði í fram­hald­inu Morten Messerschmidt sem í lok ágúst lét af for­mennsku í Evr­ópu­þing­flokki Danska Þjóð­ar­flokks­ins.

Fleira kemur í ljós

Fyrir viku síðan greindi frétta­stofa danska sjón­varps­ins, DR, frá því að fjár­styrkur frá Evr­ópu­sam­band­inu hefði verið not­aður til að fjár­magna sum­ar­ferða­lag og fundi Danska Þjóð­ar­flokks­ins. Upphæðin var 200 þús­und krónur danskar. Frétta­stofan komst yfir gögn sem sýndu að styrk­um­sóknin stang­að­ist á við raun­veru­leik­ann og styrk­ur­inn því veittur á fölskum for­sendum. Daginn eftir að frétta­stofa DR greindi frá þessu end­ur­greiddi Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn 300 þús­und krónur til ESB, hærri upp­hæð en DR hafði nefnt. Skýr­ingin kom hins vegar fljót­lega í ljós. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn hafði nefni­lega fengið 100 þús­und króna styrk til kynn­ing­ar­ferðar í höf­uð­stöðvar Evr­ópu­sam­bands­ins í Brussel. Ekki tókst þó betur til með skipu­lag ferð­ar­innar en svo að þegar til Brussel var komið var svokölluð frí­helgi hjá starfs­fólki ESB og allt lokað og læst. Hópurinn frá Danmörku varð því láta sér nægja að skoða húsa­kost Evr­ópu­sam­bands­ins, að utan. Danskir fjöl­miðlar gerðu óspart grín að þessu ferða­lagi.

Formaðurinn þögull

Dönskum fjöl­miðlum hefur gengið illa að fá Kristian Thulesen Dahl for­mann Danska þjóð­ar­flokks­ins til að tjá sig um allt þetta mál. Hann er þó ekki vanur að láta ganga á eftir sér þegar fjöl­miðlar leita við­bragða hans en miðl­arnir túlka tján­ing­ar­stíflu hans (eins og Politi­ken orð­aði það) sem merki um að for­mað­ur­inn eigi í mestu vand­ræðum vegna máls­ins og viti ekki alveg hvernig við skuli brugð­ist. Fyrir nokkrum dögum var til­kynnt að Morten Messerschmidt hefði verið vikið úr flokks­stjórn­inni, sú ákvörðun segir kannski meira en mörg orð. Framtíð hans er, þessa stund­ina, mjög óljós en danskir frétta­skýrendur segja hann hafa eyði­lagt mögu­leika sína sem fram­tíð­ar­leið­toga flokks­ins. For­síðu­fyr­ir­sögn Ekstra­blaðs­ins sl. föstu­dag var: MESSERSKIDT.

Endurgreiðir milljónir

Síð­ast­lið­inn föstu­dag (21.októ­ber) sendi Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn frá sér til­kynn­ingu þar sem fram kom að flokk­ur­inn myndi end­ur­greiða Evr­ópu­sam­band­inu tæp­lega eina milljón danskra króna og þar með hefði flokk­ur­inn end­ur­greitt alla fjár­muni sem hann hefði fengið frá ESB á liðnum árum. Þessi end­ur­greiðsla kæmi til við­bótar þeim pen­ingum sem flokk­ur­inn hafði þegar borgað til baka. Ekki reynd­ist þetta þó öll upp­hæðin því í gær (laug­ar­dag) til­kynnti flokks­stjórnin að alls myndi flokk­ur­inn end­ur­greiða 2.6 millj­ónir króna (44 millj­ónir íslenskar). Rann­sókn­ar­stofnun ESB (OLAF) heldur hins­vegar áfram sinni rann­sókn sem búist er við að taki nokkra mán­uði.

Skaðar Danska þjóðarflokkinn

Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn hefur til skamms tíma komið vel út úr skoð­ana­könn­unum. Ný könnun sýnir að allt umrótið í kringum Morten Messerschmidt mælist ekki vel fyrir meðal kjós­enda, að minnsta kosti þessa dag­ana og fylgið hefur dalað. Talsmenn flokks­ins hafa lengi látið að því liggja að flokk­ur­inn myndi ekki leggj­ast gegn kosn­ingum á næstu mán­uðum ef mál æxl­uð­ust með þeim hætti en Frjáls­ræð­is­banda­lagið, Liberal Alliance, hefur ítrekað hótað að fella stjórn­ina vegna ágrein­ings um skatta­mál. Líklegt verður að telja að Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn hafi, eins og málum er nú háttað, tak­mark­aðar áhyggjur af því þótt ekki verði kosið í bráð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár