Sprenging í fjölda heimilisofbeldismála á höfuðborgarsvæðinu

Fjöldi heim­il­is­of­beld­is­mála sem kom til kasta lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu meira en tvö­fald­að­ist á milli áranna 2014 til 2015. Lög­reglan sinnti 293 heim­il­is­of­beld­is­málum 2014 en 651 í fyrra. Þetta gerir um tvö mál á dag.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti að meðaltali tveimur heimilisofbeldismálum á dag í fyrra.
Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sinnti að með­al­tali tveimur heim­il­is­of­beld­is­málum á dag í fyrra.

Fjöldi heim­il­is­of­beld­is­mála á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur meira en tvö­fald­ast á milli áranna 2014 og 2015. Margt bendir til þess að fjöldi til­kynn­inga verði svip­aður eða enn fleiri í ár. 

Árið 2014 barst lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu 293 til­kynn­ingar um heim­il­is­of­beldi. Árið 2015 voru þær meira tvö­falt fleiri, eða 651. Þetta gerir um tvö mál á dag. Fyrstu tvo mán­uði árs­ins 2016 hafa 111 til­kynn­ingar borist. Þær voru 262 árið 2013 og hefur fjöld­inn því auk­ist um 150 pró­sent milli tveggja ára. 

Ekki hægt á ákæra fyrir heimilisofbeldi

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er ekki hægt að gefa upp fjölda mála sem ákært hefur verið í, þar sem heim­il­is­of­beldi er í dag sem slíkt ekki brot á hegn­ing­ar­lögum. Hægt er að ákæra fyrir brot eins og lík­ams­árás, eign­ar­spjöll, hót­anir eða þess háttar, en ekki er hægt að flokka ákæruna undir flokk­inn „heim­il­is­of­beldi” heldur ein­ungis ein­stök brot.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir tók við starfi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í júlí 2014. Hún starf­aði áður sem lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum og náði þar miklum árangri í heim­il­is­of­beld­is­málum með sér­stöku átaki sem bar heitið „Að halda glugg­anum opnum“. Þegar Sigríður Björk tók við starfi lög­reglu­stjóra í Reykja­vík und­ir­strik­aði hún að sér­stök áhersla yrði lögð á mál er varða kyn­bundið ofbeldi; kyn­ferð­is­brot, man­sal og heim­il­is­of­beldi.

Þverpólitískt frumvarp

Nú liggur fyrir frum­varp á Alþingi um breyt­ingar á almennum hegn­ing­ar­lögum þar sem lagt er til að heim­il­is­of­beldi verði gert að sér­stöku hegn­ing­ar­laga­broti. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá lög­reglu mun það breyta skrán­ingu mála innan emb­ætt­anna, nái frum­varpið í gegn. Þá verði í fram­hald­inu hægt að sjá feril mála með ein­fald­ari hætti. Flutn­ings­menn frum­varps­ins eru sex og koma úr öllum flokkum. Það eru þau Vil­hjálmur Árnason, Sjálf­stæð­is­flokki, Karl Garð­ar­son, Fram­sókn­ar­flokki, Páll Valur Björns­son, Bjartri fram­tíð, Guð­bjartur Hann­es­son, Sam­fylk­ingu, Helgi Hrafn Gunn­ars­son, Pírötum, og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, Vinstri grænum.

Í grein­ar­gerð með frum­varp­inu segir að með því sé lögð sér­stök áhersla á alvar­leika brota sem talist geta til heim­il­is­of­beldis. Til­gangur frum­varps­ins er að draga úr tíðni heim­il­is­of­beldis, vernda þolendur og um leið taka á vanda ger­enda. Skilyrði þess að brot falli undir ákvæðið er að brot bein­ist gegn maka, fyrr­ver­andi maka, barni eða öðrum sem er nákom­inn ger­anda og tengsl þykja hafa aukið á gróf­leika verkn­að­ar­ins. Í Danmörku og Finn­landi hafa sér­stök refsi­á­kvæði sem taka til heim­il­is­of­beldis ekki verið lög­fest en aftur á móti hefur það verið gert í Svíþjóð og Noregi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár