Zúistar fá ekki að stofna félag og fresta greiðslum

Trú­fé­lagið Zúistar á Íslandi fá ekki að skrá rekstr­ar­fé­lag hjá Rík­is­skatt­stjóra. Ekki verður tekið á móti greiðslum til trú­fé­lags­ins á meðan málið er í bið­stöðu. Félagið stefnir að því að end­ur­greiða skráðum félögum félags­gjöld á seinni hluta árs­ins.

Zúistar á Íslandi hafa látið fresta greiðslum til félags­ins tíma­bundið þar sem þeir fá ekki að skrá rekstr­ar­fé­lag hjá rík­is­skatt­stjóra. For­svars­menn félags­ins stefna á að byrja á að end­ur­greiða fyrstu sókn­ar­gjöldin á seinni hluta árs­ins, en útreikn­ingar á upp­hæð end­ur­greiðsl­unnar þegar tekið hefur verið til­lit til vaxta, umsýslu­kostn­aðar og fleira verður á hendi end­ur­skoð­anda.

„Við höfum fundað með end­ur­skoð­and­anum og hann telur að end­ur­greiðslan verði ekki mikið mál frá þeim séð. Við höfum hins­vegar rekið okkur á það að ekki eru allir eins sam­vinnu­þýðir því við lenntum í vand­ræðum með að fá skráð rekstr­ar­fé­lag hjá Rík­is­skatt­stjóra,” segir í svari Zúista við skrif­legri fyr­ir­spurn Kjarnans. „Þar strandar málið því í augna­blik­inu á meðan við leysum úr því og í milli­tíð­inni höfum við látið fresta greiðslum til félags­ins.”

Í svar­inu segir að þegar það verði leyst verði gengið end­an­lega frá samn­ingum við end­ur­skoð­and­ann og í kjöl­farið verður send til­kynn­ing þar sem fyr­ir­komu­lag end­ur­greiðsl­unnar verður kynnt. 

Holger Páll Sæmunds­son, sem situr í stjórn Zúista, seg­ist vera gríð­ar­lega ánægður með við­tök­urnar sem félagið hefur fengið.

„Þegar við fórum af stað töldum við okkur vera að berj­ast fyrir mik­il­vægu mál­efni sem gæti höfðað til ákveð­ins hóps í sam­fé­lag­inu. Samkvæmt skrán­ingu þjóð­skrár þá höfðu um ára­mótin tæp­lega 3200 manns skráð sig í Zuism eða um 1% þjóð­ar­innar. Það er óhætt að segja að skrán­ingin hafi farið langt fram úr björt­ustu vonum," segir hann. „Við vinnum nú í því að ganga frá end­an­legu fyr­ir­komu­lagi end­ur­greiðsl­unnar. Það hefur tekið lengri tíma en til stóð en við von­umst til að geta sent frá okkur til­kynn­ingu um fyr­ir­komu­lagið mjög fljót­lega. Við stefnum að því að fyrsta end­ur­greiðsla fari fram í haust."

Tæplega 3.200 manns gengu í trú­fé­lagið á síð­asta fjórð­ungi árs­ins 2015. Þaðan komu rúm­lega þús­und ein­stak­lingar frá þjóð­kirkj­unni. 

Zúistar komu fram á sjón­ar­sviðið seinni hluta síð­asta árs með það höf­uð­mark­mið að hið opin­bera felli úr gildi öll lög sem veita trú- og líff­skoð­un­ar­fé­lögum for­rétt­indi eða fjár­styrki umfram önnur félög. Þá end­ur­greiðir félagið öllum skráðum með­limum árlegan styrk sem það fær frá rík­inu. Alls gengu 3.176 ein­stak­lingar í félagið á síð­asta fjórð­ungi árs­ins, en Þjóðskrá hefur ekki birt nýrri tölur síðan þá. Þar af komu 1.056 úr þjóð­kirkj­unni og 1.652 sem voru áður utan trú­fé­laga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár