Klámið í kjallarageymslunum

Í geymslum danska útvarps­ins, DR, leyn­ast margar útvarps- og sjón­varps­perlur. Danir þekkja margar þeirra en í geymsl­unum er einnig að finna efni sem fæstir hafa nokkurn tíma heyrt minnst á, hvað þá heyrt eða séð.

Innan veggja danska útvarps­ins hefur um all­langt skeið verið á sveimi orðrómur þess efnis að í kjall­ara­geymslum stofn­un­ar­innar væru geymdar á þriðja tug gam­alla kvik­mynda, sem fæstir hefðu vitað að þar væri að finna. Varla teld­ist það frétt­næmt nema vegna þess að þetta eru klám­myndir sem á sínum tíma var strang­lega bannað að sýna, hvað þá selja. Klám­myndir, sem jafn­vel enn í dag þykja grófar að ekki sé meira sagt. Mynd­irnar eru danskar, þýskar, franskar og banda­rískar, þær elstu frá byrjun síð­ustu aldar og þær yngstu frá sjötta ára­tugnum. Þessar myndir eru svart hvítar og þöglar, lengdin frá þremur upp í tíu mín­útnar, myndu í dag kall­ast stutt­myndir.

Komust í eigu DR árið 1974

Þótt fæstir hafi, fyrr en nú, haft hug­mynd um til­vist þess­ara kvik­mynda í safni DR er ekki síður athygl­is­vert að eng­inn virt­ist lengi vel vita hvaðan þær komu, eða frá hverjum. Mynd­irnar, sem eru rúm­lega 20 tals­ins, eru allar skráðar í safnið í des­em­ber árið 1974 og sagðar „Safn Meyers“. Enginn virt­ist vita neitt um þennan Meyer og ekki stendur neitt skráð um það (svo vitað sé) hver tók á móti mynd­unum og ekki stendur heldur neitt um ástæður þess að þær voru færðar DR til varð­veislu. Auk skrán­ing­ar­seð­ils safna­deildar DR, fylgir hverri mynd nákvæm lýs­ing á sögu­þræð­inum, mynd­gæðum og sömu­leiðis mat skrá­setj­ara á frammi­stöðu leik­ar­anna. Ekki er vitað hver skrif­aði þessar upp­lýs­ingar en þær fylgdu mynd­unum þegar þær voru afhentar DR. Flestar kvik­mynd­anna eru teknar á 16 milli­metra filmu en nokkrar einnig á 35 milli­metra filmu. Kvik­mynda­sér­fræð­ingar, sem DR ræddi við, telja að í heim­inum séu til um 2000 myndir af sama tagi, og þær sem geymdar eru í kjall­ar­anum hjá DR. Frá upp­hafi kvik­mynda­gerðar og fram til árs­ins 1968.

1967 og 1969

Árið 1967 sam­þykkti danska þingið, Fol­ket­inget, lög um klám. Þar var útgáfa klám- rita og bóka heim­iluð. Fram til þess tíma var útgáfa og sala á bókum og blöðum sem inni­héldu klám­fengið efni bönnuð. Eigi að síður var tals­vert af slíku efni í umferð, en eins og einn gam­all kaup­maður orð­aði það í sam­tali við DR „maður var með þetta undir afgreiðslu­borð­inu en ekki í hill­unum.“ Eftir laga­breyt­ing­una 1967 streymdu á mark­að­inn í Danmörku alls kyns tíma­rit og bækur sem inni­héldu klám og klám­fengið efnið. Tveimur árum síðar, 1. júlí 1969, sam­þykkti danska þingið lög sem heim­il­uðu útgáfu og sölu á myndefni sem inni­héldi klám, Danir voru fyrsta þjóðin í heim­inum sem heim­il­aði slíkt. Ári eftir setn­ingu lag­ann kom á mark­að­inn kvik­myndin „Rauði rúbín­inn“ með Ole Søltoft í aðal­hlut­verk­inu. Hann hefur iðu­lega verið nefndur fyrsti danski kvik­mynda­elsk­hug­inn og lék á árunum eftir 1970 meðal ann­ars í hinum þekktu „rúm­stokks­myndum“ sem nutu mik­illa vin­sælda. Þessar myndir hafa stundum verið kallað gam­an­myndir með klám­kenndu ívafi.

Er eitthvað merkilegt við þessar myndir?

Þessari spurn­ingu svar­aði einn af sér­fræð­ingum DR ját­andi og í sama streng tók sagn­fræð­ing­ur­inn Thomas Oldrup sem segir „Safn Meyers“ mjög merki­legt. Til­tölu­lega fáar myndir af þessu tagi séu til í heim­inum og „Meyer“ hafi greini­lega vandað valið þegar hann keypti. Oldrup segir að þótt mynd­irnar eigi ekki erindi í sjón­varpið séu þær merki­legir safn­gripir og þær beri að varð­veita.

Hver var Meyer?

Eftir að yfir­menn DR ákváðu að gera upp­lýs­ing­arnar um klám­mynd­irnar opin­berar fóru frétta­menn að reyna að graf­ast fyrir um þennan Meyer, sem ekk­ert var vitað um. Einhver benti þeim á Ole Brage fyrr­ver­andi starfs­mann safna­deild­ar­innar sem hugs­an­lega vissi eitt­hvað um málið. Það reynd­ust orð að sönnu. Ole Brage kann­að­ist vel við mynda­safnið og það sem meira var, hann hafði kynnst Meyer og vissi að það var hann sem hafði afhent DR mynd­irnar og fengið smá­vægi­lega borgun fyrir. Þarna voru frétta­menn­irnir komnir á sporið og komust í sam­band við fjöl­skyldu Meyers. Meyer, sem var silf­ur­vöru­fram­leið­andi, dó fyrir ell­efu árum. Hann var safn­ari, átti stærsta safn sem til var á Norð­ur­löndum af alls kyns orðum, safn­aði líka spari­baukum, skot­vopnum og mörgu fleiru. Frétta­menn­irnir komust líka að því að Meyer hafði átt miklu fleiri klám­myndir en þær sem hann afhenti DR. Ole Brage taldi að kannski hefðu mynd­irnar sem fóru til DR verið þær merki­leg­ustu að mati Meyers.

DR hefur und­an­farið birt nokkrar greinar um „Klám­mynd­irnar í kjall­ar­anum“ eins og frétta­menn kalla það. Þeir eru ekki hættir, ætla nú að reyna að kom­ast að því hvar Meyer fékk mynd­irnar og líka hvað varð um mynd­irnar sem fóru ekki til DR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár