Svartfjallaland skrifar undir aðild að NATO - Áhyggjur af Rússum fyrirferðamiklar

Nú stendur yfir tveggja daga fundur utan­rík­is­ráð­herra NATO-ríkj­anna. Skrifað var undir aðild­ar­samn­ing Svart­fjalla­lands að banda­lag­inu í dag. Á fund­inum verður einnig rætt um sam­skipti við Rússa, stöð­una í Afganistan og sam­vinnu við ESB.

Milo Dukanovic, forsætisráðherra Svartfjallalands, og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, við undirritunina í dag.
Milo Dukanovic, for­sæt­is­ráð­herra Svart­fjalla­lands, og Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, við und­ir­rit­un­ina í dag. Mynd: NATO

Í dag skrif­uðu full­trúar allra aðild­ar­ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (NATO) undir aðild­ar­samn­ing Svart­fjalla­lands að banda­lag­inu. Skrifað var undir aðild­ar­samn­ing­inn í höf­uð­stöðvum NATO í Brussel, þar sem fundur utan­rík­is­ráð­herra NATO-aðild­ar­ríkja stendur yfir. Búist er við því að það taki allt að 18 mán­uði fyrir aðild­ar­ríkin að stað­festa aðild Svart­fjalla­lands en að því loknu verður landið 29. aðild­ar­ríki NATO.

Jens Stol­ten­berg, fram­kvæmda­stjóri NATO, sagði á blaða­manna­fundi sem haldin var fyrr í dag vegna und­ir­skrift­ar­innar, að Svart­fjalla­land fái strax sæti við borðið sem áheyrn­ar­full­trúi innan banda­lags­ins og geti tekið þátt í að móta stefnu NATO. Hann sagði einnig að aðild Svart­fjalla­lands, sem NATO bauð í des­em­ber síð­ast­liðnum, sýni að banda­lagið standi nýjum aðild­ar­ríkjum opið þótt ferlið sé vissu­lega flókið.

Rússar hefur gagn­rýnt aðild Svart­fjalla­lands harka­lega og yfir­völd í Moskvu hafa sagt að þetta sé enn eitt dæmið um að NATO sé að beita sér gegn stra­tegískum hags­munum Rúss­lands. Fjöldi ríkja í Austur-Evrópu hefur gengið í NATO á und­an­förnum ára­tugum eftir að Kalda stríð­inu lauk. Svart­fjalla­land verður þriðja ríkið frá gömlu Júgóslavíu til að ganga í banda­lagið, en Slóvenía og Króatía eru þegar með aðild.

Undirbúningur fyrir leiðtogafundinn í Varsjá

Und­ir­skrift aðildar Svart­fjalla­lands er nokk­urs konar hápunktur fundar utan­rík­is­ráð­herra aðild­ar­ríkja NATO sem nú stendur yfir í Brussel. Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra situr fund­inn sem nú stendur yfir fyrir hönd Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem hún situr utan­rík­is­ráð­herra­fund NATO-ríkj­anna en hún tók við emb­ætti í apríl.

Fund­ur­inn er næst síð­asti ráð­herra­fund­ur­inn sem hald­inn verður áður en að næsti leið­toga­fundur banda­lags­ins fer fram eftir 50 daga, en hann mun fara fram í Varsjá, höf­uð­borg Póllands. Áður en kemur að að leið­toga­fund­inum munu varn­ar­mála­ráð­herrar NATO-ríkj­anna hitt­ast í næsta mán­uði og reka smiðs­höggið á und­ir­bún­ing leið­toga­fund­ar­ins.

Þunginn á samskiptum við Rússa

Það er þó fleira á dag­skrá fund­ar­ins en aðild Svart­fjalla­lands. Ráð­herr­arnir munu einnig ræða hvernig NATO geti unnið að því að koma á stöð­ug­leika utan landamæra banda­lags­ins, um sam­skipti þess við Rússa, hvernig eigi að haga áfram­hald­andi veru NATO í Afganistan fram yfir árið 2016 og hvernig banda­lagið geti aukið sam­vinnu sína við Evr­ópu­sam­bandið (ESB).

Það fer þó ekki fram­hjá neinum sem staddur er í höf­uð­stöðvum NATO að meg­in­þung­inn í starf­semi banda­lags­ins í dag snýr að sam­skiptum við Rússa. Þau hafa verið fyr­ir­ferða­mikil á dag­skrá þess allt frá því að Rússland réðst inn í Úkraínu og inn­lim­aði Krím­skag­ann vorið 2014.

Þau sam­skipti hafa ekki verið stirð­ari frá því að Kalda stríð­inu lauk og NATO hefur verið með stór­auk­inn við­búnað á Austur-landa­mærum sínum í á annað ár vegna til­burða Rússa í Úkraínu og víðar á áhrifa­svæðum rík­is­ins.

Eftir fund með varn­ar­mála­ráð­herrum NATO-ríkj­anna í des­em­ber 2014, þar sem aðgerðir Rússa voru for­dæmdar harka­lega og NATO-ríkin ákváðu hvernig bregð­ast ætti við þeim, sagði Stol­ten­berg að banda­lagið vildi alls ekki nýtt kalt stríð. Það gæti hins vegar ekki horft aðgerð­ar­laust á þegar friði í Evrópu væri ógnað með aðgerðum Rússa.

Þótt yfir­lýs­ingar bæði Stol­ten­berg og þeirra ráð­herra sem sitja fund­inn í Brussel nú séu ekki jafn afdrátt­ar­lausar og harðar og þær voru fyrir einu og hálfu ári síðan þá er ljóst áhyggj­urnar vegna athafna Rússa hafa síst minnkað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár