Langsamlega fæst eins árs börn á leikskólum á Suðurnesjum

Miklu munar á hlut­falli eins árs barna á leik­skólum eftir land­svæðum en það er lang lægst á Suð­ur­nesjum. Sviðs­stjóri Fræðslu­sviðs Reykja­nes­bæjar segir þetta ekki koma á óvart.

Tæplega helm­ingur eins árs barna sækja leik­skóla hér á landi en miklu munar á hlut­falli eftir land­svæðum. Á Aust­ur­landi sækja 69 pró­sent eins árs barna leik­skóla og 68 pró­sent á Vest­fjörðum. Hlutfall eins árs barna á leik­skólum er lægst á Suð­ur­nesjum, 11 pró­sent. Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar.

Helgi Arnarson sviðs­stjóri Fræðslu­sviðs Reykja­nes­bæjar segir í sam­tali við Kjarnann að þessar tölur komi sér ekki á óvart. „Við vitum að við erum eft­ir­bátar varð­andi það að taka svo ung börn inn á leik­skóla og við höfum ekki getað stigið þau skref sem við vildum,“ segir hann. Viðmiðið í Reykja­nesbæ er tveggja ára aldur.

Hann segir ástæð­una vera erf­iða fjár­hags­stöðu bæj­ar­fé­lags­ins og for­dæma­lausa fólks­fjölgun. Kjarninn hefur áður fjallað um fólks­fjölgun á þessu svæði en í Reykja­nesbæ hefur erlendum rík­is­borg­urum fjölgað um 17 pró­sent það sem af er árinu 2018. Þeir voru 3.650 um ára­mót en eru nú 4.270.

Þessi staða hefur gert það að verkum að breyt­ing­arnar á sam­setn­ingu íbúa í Reykja­nesbæ hafa orðið meiri en áður hefur þekkst í íslensku sam­fé­lagi. Í lok árs 2011 bjuggu 14.140 manns í Reykja­nesbæ en í dag búa þar 18.510 manns.

[adspot]

Helgi segir að ákveðin vinna sé í gangi til að bæta stöðu for­eldra og til standi að lækka inn­rit­un­ar­ald­ur­inn á leik­skól­ana. Svigrúm sé að mynd­ast til að stækka fleiri leik­skóla á svæð­inu og þá von­ast Helgi til að Reykja­nes­bær geti hjálpað for­eldrum að brúa bilið milli fæð­ing­ar­or­lofs og leik­skóla.

Leikskólakennarar eldast

Alls störf­uðu 6.018 í leik­skólum í des­em­ber 2017 og hafði fjölgað um 111, eða tæp tvö pró­sent, frá fyrra ári. Stöðu­gildum starfs­manna fjölg­aði einnig tæp tvö pró­sent og voru 5.289, segir í frétt Hag­stof­unnar.

Í des­em­ber 2017 störf­uðu 1.622 leik­skóla­kenn­arar í leik­skólum á Íslandi, eða 29,2 pró­sent starfs­manna við upp­eldi og menntun barna, og hefur fækkað um 338 frá árinu 2013 þegar þeir voru flestir. Starfs­menn sem hafa lokið annarri upp­eld­is­menntun, svo sem grunn­skóla­kenn­ara­námi, þroska­þjálfun, diplóma­námi í leik­skóla­fræðum eða leik­skóla­liða­námi voru 1.105 tals­ins. Ófag­lærðir starfs­menn voru rúm­lega helm­ingur starfs­manna við upp­eldi og menntun leik­skóla­barna í des­em­ber 2017.

Ald­urs­skipt­ing leik­skóla­kenn­ara hefur verið að breyt­ast á þann hátt að kenn­arar sem eru 50 ára og eldri verða sífellt stærri hluti kenn­ara­hóps­ins, sam­kvæmt Hag­stof­unni. Árið 2017 voru þeir rúm 42 pró­sent leik­skóla­kenn­ara en voru 26 pró­sent 10 árum áður.

Að sama skapi hefur leik­skóla­kenn­urum undir fimm­tugu fækkað, ekki aðeins þegar litið er á hlut­falls­tölur heldur líka þegar fjölda­tölur eru skoð­aðar. Tæplega 900 leik­skóla­kenn­arar á aldr­inum 30 til 49 ára störf­uðu í leik­skólum árið 2017 en þeir voru 1.142 þegar þeir voru flestir árið 2009.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár