Erlendir ríkisborgarar orðnir 23 prósent íbúa í Reykjanesbæ

Erlendum rík­is­borg­urum heldur áfram að fjölga á Íslandi. Án komu þeirra myndi íbúum lands­ins fækka. Mjög mis­mun­andi hvar þeir setj­ast að. Í Reykja­nesbæ voru erlendir rík­is­borg­arar 8,6 pró­sent íbúa í lok árs 2011. Nú eru þeir 23 pró­sent þeirra.

Sá mikli uppgangur sem á sér stað á Íslandi útheimtir mikið af nýju vinnuafli. Það vinnuafl þarf að sækja erlendis.
Sá mikli upp­gangur sem á sér stað á Íslandi útheimtir mikið af nýju vinnu­afli. Það vinnu­afl þarf að sækja erlendis. Mynd: Bára Huld Beck

Öll fjölgun lands­manna á fyrri hluta árs­ins 2018, og vel rúm­lega það, má rekja til þess að erlendir rík­is­borg­ara fluttu hingað til lands. Þeir eru nú orðnir 41.280 tals­ins og hefur fjölgað um 3.328 frá ára­mótum, eða um 8,7 pró­sent. Alls fjölg­aði íbúum á Íslandi um 2.360 á tíma­bil­inu og því ljóst að lands­mönnum hefði fækkað ef ekki hefði verið fyrir aðflutn­ing erlendra rík­is­borg­ara til lands­ins. Hlut­falls­lega setj­ast lang­flestir þeirra að í Reykja­nesbæ. Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara þar hefur tæp­lega fjór­fald­ast á örfáum árum.

Alls eru Íslend­ingar nú 353.070 tals­ins. Erlendir rík­is­borg­arar eru tæp­lega tólf pró­sent af íbúum lands­ins. Þetta kemur fram í nýbirtum mann­fjölda­tölum Hagstofu Íslands sem sýna stöð­una í lok júní síð­ast­lið­ins.

Erlendum rík­is­borg­urum sem búa á Íslandi hefur fjölgað um 97 pró­sent frá lokum árs 2011. Það þýðir að fjöldi þeirra hefur tvö­fald­ast á sex og hálfu ári. Þeir hafa aldrei verið fleiri og fjölgun þeirra hefur aldrei verið hrað­ari en á síð­ustu 18 mán­uðum.

Fjölgar hratt í Reykjavík

Um síð­ustu ára­mót bjuggu 23.200 erlendir rík­is­borg­arar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þar af bjuggu 15.640 í Reykja­vík. Til sam­an­burðar bjuggu 330 á Sel­tjarn­ar­nesi en 640 í Garðabæ.

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2018 hefur erlendum rík­is­borg­urum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fjölgað um 1.910 og eru nú 25.110. Það þýðir að 57 pró­sent allra erlendra rík­is­borg­ara sem setj­ast hér að flytja á höf­uð­borg­ar­svæðið.

Flestir nýju íbú­anna setj­ast enda að í Reykja­vík, en á fyrri helm­ingi árs­ins fjölg­aði erlendum rík­is­borg­urum í höf­uð­borg­inni um 1.370. Útlend­ingum fjölg­aði ekk­ert á meðal íbúa Sel­tjarn­ar­ness og Garða­bæjar á sama tíma­bili.

Frá lokum árs 2011 hefur erlendum rík­is­borg­urum sem búa innan marka Reykja­víkur fjölgað um 54 pró­sent. Þeir eru nú 13,4 pró­sent þeirra 127.220 íbúa sem búa í höf­uð­borg­inni. Fyrir sex og hálfu ári síðan voru þeir átta pró­sent íbúa hennar.

Næstum fjórði hver erlendur

Sú aukn­ing kemst þó ekki nálægt því sem er að eiga sér stað í Reykja­nesbæ. Þar hefur erlendum rík­is­borg­urum fjölgað um 17 pró­sent það sem af er árinu 2018. Þeir voru 3.650 um ára­mót en eru nú 4.270.

Ástæðan er fyrst og síð­ast sú aukna þörf á vinnu­afli sem aukin umsvif í kringum alþjóða­flug­völl­inn útheimtir, en nýbirtar tölur sýna að ferða­menn sem heim­sóttu Ísland voru 2,7 millj­ónir í fyrra. Árið 2010 voru þeir um hálf milljón.

Þessi staða hefur gert það að verkum að breyt­ing­arnar á sam­setn­ingu íbúa í Reykja­nesbæ hafa orðið meiri en áður hefur þekkst í íslensku sam­fé­lagi. Í lok árs 2011 bjuggu þar 1.220 erlendir rík­is­borg­arar og voru 8,6 pró­sent íbúa sveit­ar­fé­lags­ins. Í dag búa 18.510 manns í Reykja­nesbæ og erlendir rík­is­borg­arar þar eru, líkt og áður sagði, 4.270. Því eru 23 pró­sent íbúa Reykja­nes­bæjar erlendir rík­is­borg­arar. Það hlut­fall var 20 pró­sent um síð­ustu ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár