Fáum kemur lengur á óvart að fá símtal frá smitrakningateyminu

Í smitrakn­ingateymi sótt­varna­læknis og rík­is­lög­reglu­stjóra eru meðal ann­ars lög­reglu­menn sem hafa reynslu af því að hafa upp á fólki og rekja ferðir þess. „Það er alveg dásam­legt að fylgj­ast með sam­vinn­unni,“ segir yfir­maður teym­is­ins.

Ævar Pálmi Pálmason er yfirmaður smitrakningateymis almannavarna.
Ævar Pálmi Pálmason er yfir­maður smitrakn­ingateymis almanna­varna. Mynd: Lögreglan

„Það óraði engan fyrir því hvað þetta verk­efni yrði stórt,“ segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn og yfir­maður smitrakn­ingateymis almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra og sótt­varna­læknis. Hlutverk hans er að sam­eina krafta, reynslu og þekk­ingu ólíkra hópa en lög­regla- og heil­brigð­is­yf­ir­völd vinna í sam­ein­ingu að smitrakn­ingu hér landi vegna COVID-19. „Lög­reglan hefur reynslu af því að hafa uppi á fólki, rekja ferðir þeirra og finna tengsl. Heil­brigð­is­starfs­fólk hefur reynslu og þekk­ingu á því að draga fram upp­lýs­ingar og að tala við fólk en þetta snýst nátt­úr­lega fyrst og fremst um sam­skipti.“

Ævar lýsti því á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag að hlut­irnir hafi gerst hratt eftir að ákveðið var að setja teymið saman. Aðeins hafi liðið tveir tímar frá því að hann fékk að vita að hann væri í teym­inu að þar til það var kallað út í fyrsta sinn.

Í teym­inu eru nú sextán heil­brigð­is­starfs­menn og 22 frá lög­regl­unni. Von er á fleira fólki inn í teymið. „Þetta hefur vaxið gríð­ar­lega hratt og vex á hverjum degi,“ sagði Ævar. „Þetta hefur allt tekið breyt­ingum, oft á dag jafn­vel. Við erum alltaf að reyna að þróa og bæta verk­lagið.“

Ævar sagð­ist vera spurður að því á hverjum degi hversu lengi teymið muni starfa. „Ég hef ekki hug­mynd um það. Við sjáum ekki fyrir end­ann á þessu eins og er. Þetta er gríð­ar­leg áskorun, senni­lega ein sú stærsta sem ég hef tek­ist á við. En jafn­framt eru það for­rétt­indi að fá að vinna með fólk­inu í teym­inu. Það er alveg dásam­legt að fylgj­ast með sam­vinn­unni. Þetta eru ólíkir hópar sem drag­ast að og fara að vinna saman.“

Hann sagði að teymið hefði rek­ist á margar hindr­anir við störf sín, „en við höfum yfir­stigið þær allar eða farið fram hjá þeim“.

[links]Smitrakn­ing­arteymið á í góðri sam­vinnu við marga aðila úti í sam­fé­lag­inu og hrós­aði hann sér­stak­lega Icelandair og Airport Associates í því sam­bandi. „En með hags­muni fólks að leið­ar­ljósi verðum við að ná sem fyrst til þess.“

Smitrakn­ing­arteymið hefur meðal ann­ars það hlut­verk að hringja í fólk sem hefur mögu­lega átt náið sam­neyti við smit­aða ein­stak­linga. Er fólki í því sam­tali til­kynnt að það þurfi að fara í sótt­kví. Ævar segir að það komi fólki ekki lengur á óvart að fá sím­töl frá teym­inu líkt og það gerði í fyrstu vik­unni. Í þessum sím­tölum er sagt: Þú hefur verið í nánu sam­bandi við ein­hvern sem er smit­aður, ert þar af leið­andi útsettur fyrir smiti og þarft að fara í sótt­kví. „Núna um helg­ina kom fólki þetta minna á óvart og átti jafn­vel von á þessu sím­tali,“ sagði Ævar.

Hann sagð­ist virki­lega stoltur af fólk­inu í teym­inu, „þetta er fólk sem henti öllum öðrum verk­efnum frá sér. Flestir voru í dag­vinnu en þurftu að breyta um vinnu­um­hverfi og vinnu­tíma og er nú komið í vakta­vinnu. Þess vegna lenda hefð­bundin verk­efni þeirra á vinnu­fé­lögum og fjöl­skyldum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár