„Þetta hefur nú sinn sjarma“

Frá því að Nína Huld Leifs­dóttir greind­ist með kór­ónu­veiruna hefur hún verið í ein­angrun á heim­ili sínu í Mos­fellsbæ og aðrir í fjöl­skyld­unni í sótt­kví undir sama þaki. Faðir hennar segir þurfa „dass“ af þol­in­mæði við þessar aðstæður.

Fjölskyldan: Helga Kristjánsdóttir, Nína Huld, Leifur Guðjónsson og Ísak Orri.
Fjöl­skyldan: Helga Krist­jáns­dóttir, Nína Huld, Leifur Guð­jóns­son og Ísak Orri. Mynd: Aðsend

Fjögurra manna fjöl­skylda í Mos­fellsbæ hefur und­an­farið verið í ein­angrun og sótt­kví á heim­ili sínu. Nína Huld Leifs­dóttir, nítján ára dóttir hjón­anna Leifs Guð­jóns­sonar og Helgu Krist­jáns­dóttur, smit­að­ist af nýju kór­ónu­veirunni á æfingu hjá leik­fé­lag­inu í bænum fyrir rúm­lega tveimur vikum. Félagi hennar í leik­fé­lag­inu reynd­ist hafa smit­ast af fólki sem hafði verið erlendis og í kjöl­farið þurftu allir sem voru í nánum sam­skiptum við hann að fara í sýna­töku. Er í ljós kom að Nína hafði smit­ast fór hún þegar í stað í ein­angrun og aðrir í fjöl­skyld­unni í sótt­kví. Öll eru þau þó inni á sama heim­il­inu.

Leifur segir að svo vel vilji til að dóttirin geti verið í for­stofu­her­bergi og hafi aðgang að sér kló­setti. Aðstæð­urnar séu því nokkuð góðar og eins og best verði á kosið til ein­angr­unar í heima­húsi.

„Það eru svo spritt­brúsar og tuskur út um allt,“ segir Leifur. „Hún fær mat þarna fram og getur aðeins farið út á tröppur.“ Hann segir að þrátt fyrir allt líði öllum vel. Enginn hafi veikst og dóttir hans hafi allan tím­ann verið ein­kenna­laus.

Frá upp­hafi fengu þau öll góðar og nákvæm­legar leið­bein­ingar um hvernig skuli haga sér í sótt­kví og ein­angrun. Allir í fjöl­skyld­unni mæla sig tvisvar á dag og eng­inn hefur fengið hita. Sótt­varnateymi hefur svo sam­band við Nínu Huld annan hvern dag og athugar með líðan hennar.

En hvernig eru dag­arnir hjá heilli fjöl­skyldu í sótt­kví?

Leifur hlær dátt áður en hann svarar. „Það þarf „dass“ af þol­in­mæði og umburð­ar­lyndi en þetta er að haf­ast.“

Fengu ketilbjöllur sendar heim

[links]Fjöl­skyld­unni hefur tek­ist að halda ágætri rútínu. Þau æfa öllu jafna í lík­ams­rækt­ar­stöð­inni Kett­lebells Iceland sem Vala Mörk og Guðjón Svansson reka skammt frá Reykja­lundi í Mos­fellsbæ. „Á öðrum degi í sótt­kví fengum við ket­il­bjöllur sendar hingað heim og sett var af stað fjar­pró­gramm. Mjög snið­ugt. Þannig að við höfum getað hreyft okkur hér í stof­unni. Sófinn hefur því ekki átt okkur alveg.“

Engin þörf reynd­ist á því að hamstra mat enda á fjöl­skyldan marga góða að sem hafa rétt fram hjálp­ar­hönd síð­ustu daga. Þannig hafa systur Leifs til dæmis keypt í mat­inn fyrir þau.

Sam­fé­lagið í Mos­fellsbæ haldi einnig vel utan um þau.

„Svo unnum við í nágranna­lottó­inu, það býr kokkur hérna við hlið­ina á okkur,“ segir Leifur fullur þakk­lætis. „Hann hefur steikt kleinur og gert fiski­bollur, er algjör meist­ari. Í kvöld fáum við steik frá honum, það verður síð­asta kvöld­mál­tíðin,“ segir Leifur og hlær en sótt­kvínni lýkur á morgun.

Tryggingar ná ekki yfir COVID-19

Leifur og Helga eru bæði sjálf­stæðir atvinnu­rek­endur. Helga á blóma­búð og Leifur starfar hjá verk­taka­fyr­ir­tæki fjöl­skyld­unnar. Eftir að sótt­kví lýkur á morgun á hann ekki von á öðru en að snúa aftur til starfa. Dóttir hans verður þó áfram í ein­angrun. Ákvörðun um fram­haldið verði tekin eftir sýna­töku í lok vik­unnar.

Hann segir tím­ann verða að leiða það í ljós hver fjár­hags­leg áhrif ástands­ins vegna veirunnar verði á fjöl­skyld­una. Hann hafi talið sig vera með „belti og axla­bönd“ þegar komi að trygg­inga­málum og keypt bæði rekstr­ar­stöðv­un­ar­trygg­ingu og líf- og sjúk­dóma­trygg­ingu. Trygg­inga­fé­lagið segi hins vegar að rekstr­ar­stöðv­un­ar­trygg­ingin nái ekki til áfalla af völdum COVID-19. Sama gildi um sjúk­dóma­trygg­ing­una. Leifur seg­ist þó ekki ætla að hafa miklar áhyggjur af þessu í augna­blik­inu.

En er hann með ein­hver ráð til þeirra sem eru að hefja sótt­kví í dag?

„Umburð­ar­lyndi er nú það helsta,“ svarar hann. Einnig sé gott að halda góðri rútínu, vaka ekki fram eftir nóttu og snúa sól­ar­hringnum við. Svo sé mik­il­vægt að finna sér eitt­hvað skemmti­legt til dund­urs. Dóttir hans sé farin að prjóna og púslu­spil hafi verið dregin fram á heim­il­inu. „Þetta er tæki­færi til að kynn­ast aftur, svo þetta hefur nú sinn sjarma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár