Þegar bakbein Viðreisnar velti fyrir sér hvort Davíð væri dýrasti maður lýðveldisins

2014 var umrót­arár fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Þá ákvað hópur fjár­sterkra áhrifa­manna að yfir­gefa flokk­inn og hefja und­ir­bún­ing að stofnun Við­reisnar. Þeir áttu m.a. sam­skipti í tölvu­pósti. Og gagn­rýndu þar Davíð Oddsson, helm­inga­skipti og Morg­un­blaðið.

Helgi Magnússon fjárfestir sendi tölvupóst á hóp áhrifamanna í mars 2014.
Helgi Magn­ús­son fjár­festir sendi tölvu­póst á hóp áhrifa­manna í mars 2014.

Í síð­ustu viku var greint frá því að lít­ill hópur öfl­ugra bak­hjarla hefðu lagt stjórn­mála­flokknum Viðreisn til millj­ónir króna í fyrra, þegar flokk­ur­inn var form­lega stofn­aður og tók þátt í sínum fyrstu kosn­ingum. Helgi Magn­ús­son og félög tengd honum gáfu Við­reisn sam­tals 2,4 millj­ónir króna á árinu 2016. Sig­urður Arn­gríms­son, við­skipta­fé­lagi Helga og aðal­eig­andi sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­braut­ar, gaf 1,2 millj­ónir króna í eigin nafni og í gegnum tvö félög sín. Þá gaf Þórður Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Eyris Invest stærsta eig­anda Mar­el, stjórn­mála­flokknum 950 þús­und krónur í eigin nafni og í gegnum félag sitt. Alls fékk Viðreisn 27 millj­ónir króna frá ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum. Á meðal þekktra fyr­ir­tækja sem gáfu flokknum fé var Bláa lónið, sem stýrt er af Grími Sæmund­sen.

[links]Upphaf Við­reisnar er vana­lega rakið til þess þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar sleit við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið í febr­úar 2014. Sú ákvörðun fór ákaf­lega fyrir brjóstið á hópi alþjóða­sinn­aðra Sjálf­stæð­is­manna sem töldu að með því hefði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, svikið lof­orð um að við­ræðum yrði ekki hætt nema að und­an­geng­inni þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Þessi hópur, sem inni­hélt meðal ann­ars ýmsa mjög fjár­sterka og áhrifa­mikla ein­stak­linga úr við­skipta­líf­inu, hóf í kjöl­farið und­ir­bún­ing að nýju stjórn­mála­afli. Sá und­ir­bún­ingur átti sér stað í nokkrum mis­mun­andi sellum og sumir sem í þeim voru tóku aldrei raun­veru­legan þátt í stofnun þess flokks sem síðar varð Viðreisn, heldur héldu sig áfram í Sjálf­stæð­is­flokknum.

Hluti hóps­ins hóf að hitt­ast reglu­lega til að ræða mögu­leik­ann á nýju fram­boði og annar hópur stofn­aði lok­aða grúppu á Facebook undir nafn­inu „Nýi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn“.

Auk þess var stór hópur sem sendi á milli sín tölvu­pósta reglu­lega. Og uppi­staðan í þeim hópi kom síðar að stofnun Við­reisnar.

Tölvupóstur sendur

Í mars 2014, um mán­uði eftir að aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið var slitið, átti hópur áhrifa­manna, margir hverjir gegn­heilir sjálf­stæð­is­menn til ára­tuga, í reglu­legum og áhyggju­fullum sam­ræðum um þjóð­fé­lags­á­standið.

Þann 16. mars sendi einn úr hópnum, fjár­festir­inn Helgi Magn­ús­son, tölvu­póst á hóp félaga sinna. Á meðal þeirra sem fengu póst­inn voru Róbert Trausti Árnason (nú frétta­stjóri Hring­brautar), Þór­hallur Jós­eps­son (nú upp­lýs­inga­full­trúi Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna), Vil­mundur Jós­efs­son, Ingvi Hrafn Jónsson (lengi sjón­varps­stjóri ÍNN), Grímur Sæmund­sen (for­stjóri Bláa lóns­ins), Þórður Magn­ús­son (stjórn­ar­for­maður Eyris Invest), Sigurður Arn­gríms­son (fjár­festir og eig­andi Hring­brautar), Vil­hjálmur Egilsson (nú rektor á Bifröst) og Páll Bragi Krist­jóns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Eddu-útgáfu.

Innihald pósts Helga var gagn­rýni á Davíð Oddsson, spillta hugsun Fram­sóknar- og Sjálf­stæð­is­manna og Morg­un­blaðið.

Í svörum sem bár­ust við honum voru meðal ann­ars viðr­aðar áhyggjur af því að full ástæða væri til að ótt­ast að aðgerðir til að draga Ísland út úr Evrópska efna­hags­svæð­inu yrðu næstar á dag­skrá eftir að umsókn um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu yrði slegin af. Einn þeirra sem svar­aði póst­inum var Sigurður Arn­gríms­son. Orðrétt sagði hann: „Ég fæ ekki betur séð en þetta sé allt rétt. Davíð er auð­vitað að draga athygl­ina frá sjálfum sér hvað varðar klúður í Seðla­bank­anum. Ég fæ ekki betur séð en hann sé nú klár­lega dýr­asti maður lýð­veld­is­ins. Hvernig væri að fara svo­lítið yfir það?“

Viðreisn ekki vel séð hjá Morgunblaðinu

Í rit­stjórn­ar­skrifum Morg­un­blaðs­ins, sem stýrt er af Davíð Oddssyni, hefur ætið verið fjallað um Viðreisn af mik­illi and­styggð. Þannig var málum háttað fyrir kosn­ingar og á meðan að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum stóð. Andúð hans á Viðreisn hefur ekki dreg­ist neitt saman við það að flokk­ur­inn er nú í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum. Þvert á móti hefur hún færst yfir á rík­is­stjórn­ina sem heild.

[adspot]Á síð­ustu vikum hefur hann ritað rit­stjórn­ar­greinar þar sem hann hefur gagn­rýnt rík­is­stjórn­ina mjög harka­lega. Í leið­ara sem birt­ist um síð­ustu mán­aða­mót, skrif­aði Davíð: „Íslenska rík­is­stjórnin hefur setið í hálft ár og þegar misst allt álit þótt hún hafi ekki gert neitt sem öllum almenn­ingi mis­líkar. Hún stendur ekki fyrir neitt. Mál­efna­samn­ingur hennar hrópar það framan í fólk. Þar er ekk­ert hand­fast nema helst langur kafli sem virð­ist und­ir­strika að nauð­syn­legt sé að fjölga inn­flytj­endum. Sú nauð­syn var ekki orðuð í kosn­ing­unum.“

Hann end­ur­tók sömu orð að mestu í Reykja­vík­ur­bréfi 4. ágúst. Og bætti svo við: „Ein­hverjir eru í spyrja sig og aðra, með hlið­sjón af fallandi stuðn­ingi, hvort þessi rík­is­stjórn sé við það að falla. En það er með öllu óvíst að hún sé fær um það. Rík­is­stjórn, sem sam­kvæmt sam­eig­in­legum sátt­mála sínum stendur ekki fyrir neitt, á ekki auð­velt að finna sér mál til að falla á. Meira að segja þegar hún mætir með sín allra vit­laus­ustu mál fyrir þingið mun stjórn­ar­and­staðan taka þeim fagn­andi. Rík­is­stjórn sem telur að það bendi til þess að hún sé á réttri leið hefur týnt átta­vit­anum sem hún fékk í ferm­ing­ar­gjöf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár