Helgi Magnússon og aðrir bakhjarlar gáfu Viðreisn milljónir

Fjár­festir­inn Helgi Magn­ús­son og félög honum tengd gáfu Viðreisn 2,4 millj­ónir króna í fram­lög í fyrra. Sigurður Arn­gríms­son og Þórður Magn­ús­son voru einnig fyr­ir­ferða­miklir styrkt­ar­að­ilar.

Benedikt Jóhannesson er fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Viðreisnar. Hann var á meðal þeirra sem gaf flokknum fé í fyrra.
Benedikt Jóhann­es­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Við­reisnar. Hann var á meðal þeirra sem gaf flokknum fé í fyrra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Helgi Magn­ús­son og félög tengd honum gáfu Viðreisn sam­tals 2,4 millj­ónir króna á árinu 2016. Sigurður Arn­gríms­son, við­skipta­fé­lagi Helga og aðal­eig­andi sjón­varps­stöðv­ar­innar Hring­brautar, gaf 1,2 millj­ónir króna í eigin nafni og í gegnum tvö félög sín. Þá gaf Þórður Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Eyris Invest stærsta eig­anda Marel, stjórn­mála­flokknum 950 þús­und krónur í eigin nafni og í gegnum félag sitt. Þetta kemur fram í útdrætti úr árs­reikn­ingi Við­reisnar sem skilað var inn til Rík­is­end­ur­skoð­unar nýverið.

Þar kemur fram að Viðreisn hafi alls fengið fram­lög upp á 29,8 millj­ónir króna á rekstr­ar­ár­inu 2016. Alls komu 16,4 millj­ónir króna frá lög­að­ilum, 10,3 millj­ónir frá ein­stak­lingum og þrjár millj­ónir króna í formi rík­is­fram­laga. Rekstur flokks­ins á árinu, en það var fyrsta árið sem Viðreisn bauð fram í kosn­ingum, kost­aði alls 41,1 milljón króna. Rúmlega tíu millj­óna króna tap var á rekstri flokks­ins.

Til að setja þessa upp­hæð í sam­hengi þá námu fram­lög til Við­reisnar frá ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum á árinu 2016 rétt rúmum helm­ingi þess sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk frá slíkum árið 2015 og voru um sjö millj­ónum krónum hærri en fram­lög til Fram­sókn­ar­flokks­ins á sama ári. Viðreisn er fyrsti stjórn­mála­flokk­ur­inn til að skila útdrætti úr árs­reikn­ingi sínum til Rík­is­end­ur­skoð­unar vegna árs­ins 2016, en kostn­aður við rekstur stjórn­mála­flokka er oft­ast nær mestur á kosn­inga­ári, líkt og því síð­asta.

Átti alltaf að vera vel fjármagnað

Viðreisn spratt upp úr óánægju með slit á aðild­ar­við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið í febr­úar 2014. Þá klauf hópur alþjóða­sinn­aðra sjálf­stæð­is­manna sig frá flokknum og fór að und­ir­búa nýtt stjórn­mála­afl. Á meðal þeirra voru Benedikt Jóhann­es­son, nú for­maður Við­reisnar. Aðrir sem til­heyrðu hópnum voru meðal ann­ars Þor­steinn Pálsson, Jórunn Frí­manns­dóttir og Vil­hjálmur Egilsson.

Í þessum hópi voru líka fjár­sterkir áhrifa­menn úr íslensku atvinnu­lífi og víðar sem hafði fylgt Sjálf­stæð­is­flokknum að málum allt sitt líf. Til þess hóps töld­ust til að mynda Helgi Magn­ús­son, Sigurður Arn­gríms­son og Þórður Magn­ús­son. Hluti hóps­ins hóf að hitt­ast reglu­lega til að ræða mögu­leik­ann á nýju fram­boði og annar hópur stofn­aði lok­aða grúppu á Facebook undir nafn­inu „Nýi Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn“.

Eitt af því sem rætt var um voru fjár­mál hins nýja fram­boðs. Kjarninn greindi frá því í apríl 2014, tveimur og hálfu ári áður en að Viðreisn bauð fram í fyrsta sinn, að stefnt yrði að því að fram­boðið yrði vel fjár­magnað. Það átti ekki að vera vand­kvæðum bundið þar sem margir mjög fjár­sterkir aðilar höfðu þegar tengt sig við það. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var lögð áhersla á að ein­stak­lingar myndu greiða fyrir til­vist fram­boðs­ins úr eigin vasa. Einn við­mæl­anda Kjarnans sagði að þar myndi ekki verða beðið „um hund­rað þús­und kalla, heldur millj­ónir“.

Fyrsti form­legi stefnu­mót­un­ar­fundur hins nýja stjórn­mála­afls var hald­inn 11. júní 2014. Um svipað leyti var til­kynnt að flokk­ur­inn myndi heita Viðreisn, eftir Við­reisn­ar­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Alþýðu­flokks sem sat við völd á Íslandi frá 1959 og fram til árs­ins 1971. Tæpu ári síðar, 17. mars 2015, var hald­inn fyrstu fundur stuðn­ings­manna flokks­ins. Flokk­ur­inn var loks form­lega stofn­aður á fundi í Hörpu 24. maí 2016 sem um 400 manns mættu á. Þar var Benedikt Jóhann­es­son kjör­inn for­maður hans. Fram­lögin sem þarf að gefa upp til Rík­is­end­ur­skoð­unar eru ein­ungis þau sem Viðreisn fékk eftir að flokk­ur­inn var form­lega stofn­aður. Því liggur ekk­ert fyrir um hversu mikið fé var sett inn í Viðreisn áður en af þeim form­lega tíma­punkti kom.

Nokkrir styrktaraðilar fyrirferðamiklir

Vanalega mega stjórn­mála­flokkar ein­ungis fá 400 þús­und krónur frá hverjum og einum aðila sem gefur þeim pen­ing. Und­an­tekn­ing er frá þeirri reglu ef um er að ræða stofn­fram­lög sem greidd eru á fyrsta starfs­ári flokks­ins. Þá má gefa tvö­falt, og því má hver kennitala gefa 800 þús­und þegar þannig ber undir. Fimm ein­stak­lingar gáfu Viðreisn 800 þús­und krónur. Þeir Páll Kr. Pálsson, Thomas Möller, Páll Jónsson, Helgi Magn­ús­son og Þórður Magn­ús­son. Sigurður Arn­gríms­son gaf flokknum 400 þús­und krónur og Guð­mundur Örn Jóhanns­son, sjón­varps­stjóri Hring­brautar, gaf 310 þús­und krónur.

Félög tengd Helga Magn­ús­syni gáfu einnig umtals­verðar fjár­hæðir. Hof­garðar og Varðberg, eign­ar­halds­fé­lög hans, gáfu 400 þús­und krónur hvort og bæði Bláa Lónið og N1, þar sem Helgi er á meðal hlut­hafa (hann er stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins og vara­for­maður stjórnar N1), gáfu 400 þús­und krónur hvort. Alls gaf Helgi því 1,6 millj­ónir króna beint og í gegnum eign­ar­halds­fé­lög sín og fyr­ir­tæki þar sem hann er stór hlut­hafi og stjórn­ar­maður gáfu 800 þús­und krónur til við­bótar.

Sigurður Arn­gríms­son gaf 800 þús­und krónur í gegnum tvö félög, Saffron Holding (félag sem á m.a. 99,18 pró­sent hlut í Hring­braut) og Ursus Maritimus, auk þess sem hann gaf 400 þús­und krónur í eigin nafni. Þórður Magn­ús­son gaf 800 þús­und í eigin nafni og 150 þús­und krónur í gegnum félag sitt Th. Magn­ús­son ehf. Þá gaf félagið Þara­bakki, í eigu Daníels Helga­sonar, 800 þús­und krónur og félagið Svartá ehf., í eigu Vil­mundar Jós­efs­sonar, sömu upp­hæð. Benedikt Jóhann­es­son gaf sjálfur 250 þús­und krónur og Jón Steindór Valdi­mars­son, nú þing­maður Við­reisnar, gaf 265 þús­und krónur.

Á meðal ann­arra sem gáfu fé til Við­reisnar má nefna Miðeind, félag í eigu Vil­hjálms Þor­steins­sonar, fyrr­ver­andi gjald­kera Sam­fylk­ing­ar­innar og hlut­hafa í Kjarn­anum.

Hægt er að sjá rekstr­ar­reikn­ing­inn, og yfir­lit yfir styrkt­ar­að­ila Við­reisnar, hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár