Tíu staðreyndir um kvótaflóttamenn

Barn að leik við landamæri Þýskalands og Austurríkis. Þýsk yfirvöld hafa sent um 200 flóttamenn til baka yfir landamærin til Austurríkis það sem af er ári.
Barn að leik við landa­mæri Þýska­lands og Aust­ur­ríkis. Þýsk yfir­völd hafa sent um 200 flótta­menn til baka yfir landa­mærin til Aust­ur­ríkis það sem af er ári. Mynd: EPA

1 - 35 sýr­lenskir kvótaflótta­menn, sex fjöl­skyldur, komu til lands­ins í gær eftir dvöl í flótta­manna­búðum í Líbanon und­an­farin ár. Fjórar fjöl­skyldur munu setj­ast að á Akureyri og tvær í Kópavogi. Ein fjöl­skylda til við­bótar er vænt­an­leg til lands­ins síðar, en barns­haf­andi kona í þeirri fjöl­skyldu reynd­ist ekki fær um að ferð­ast til lands­ins nú. Þrjár fjöl­skyldur sáu sér ekki fært að koma, en nú vinna íslensk stjórn­völd að því í sam­starfi við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna (SÞ) að und­ir­búa komu ann­arra flótta­manna í þeirra stað.

2 - Ísland hefur tekið á móti 549 kvótaflótta­mönnum. Fyrstu flótta­menn­irnir komu hingað frá Ung­verja­landi árið 1956. Alls tóku íslensk stjórn­völd á móti 204 flótta­mönnum á tæp­lega 40 ára tíma­bili, frá 1956 til 1991. Eftir að Flótta­manna­ráð (nú Flótta­manna­nefnd) var sett á lagg­irnar 1995, hefur Ísland tekið á móti 380 flótta­mönnum, á tíma­bil­inu 1996 - 2016.

3 - Íslend­ingar hafa tekið á móti kvótaflótta­mönnum frá 13 löndum: Ung­verja­landi, Júgóslavíu, Víetnam, Póllandi, Krajina, Kosovo, Kólumbíu, Írak, Afganistan, Simbabve, Úganda, Kamerún og Sýrlandi.

Meðal íslenskra sveit­ar­fé­laga sem tekið hafa á móti flótta­fólki eru Ísa­fjörður, Horna­fjörður, Blönduós, Fjarð­ar­byggð, Dalvík, Siglu­fjörður, Akureyri, Reykja­nes­bær, Akranes, Hafn­ar­fjörður, Kópa­vogur og Reykja­vík.

4 - Á Íslandi stendur kvótaflótta­mönnum meðal ann­ars til boða fjár­hags- og hús­næð­is­að­stoð, heil­brigð­is­þjón­usta, aðgangur að skóla­kerf­inu, túlka­þjón­usta og aðstoð við atvinnu­leit. Þeir eru skyldugir að sækja nám­skeið í íslensku, taka virkan þátt í atvinnu­leit og þiggja við­töl hjá sál­fræð­ingi til að fara yfir reynsl­una af búsetu í upp­runa­land­inu og af aðlög­un­inni í mót­töku­land­inu. Fólkið getur fengið íslenskan rík­is­borg­ara­rétt eftir að hafa verið búsett hér á landi í fimm ár.

5 - Flótta­maður er sá sem hefur flúið heima­land sitt vegna stríðs, átaka eða ofsókna og hans eigin rík­is­stjórn getur ekki eða vill ekki veita honum vernd. Kvótaflótta­menn eru þeir flótta­menn sem Flótta­manna­stofnun SÞ hefur óskað eftir að þjóðir heims taki á móti vegna stríðs­á­stands í heima­landi þeirra. Hæl­is­leit­andi er sá sem sækir um hæli utan síns eigin ríkis og er þar með að biðja um við­ur­kennda stöðu flótta­manns. Ef stjórn­völd fall­ast á rétt­mæti umsóknar fær við­kom­andi við­ur­kennda stöðu sem flótta­maður.

6 - 27 ríki heims taka á móti kvótaflótta­mönnum. Af þeim eru 25 þjóðir, meðal ann­ars Ísland, sem hafa gert sam­komu­lag við Flótta­manna­full­trúa Sam­ein­uðu þjóð­anna (SÞ) um að taka á móti fjölda kvótaflótta­manna á hverju ári.

7 - Konur og börn eru sér­stak­lega við­kvæmur hópur á átak­svæðum og er meiri­hluti flótta­manna konur og börn í neyð. Flótta­manna­stofnun SÞ hefur lagt áherslu á að ríki taki á móti kvótaflótta­mönnum sem eru konur en þær eru nú um 10 pró­sent þeirra sem fá end­ur­bú­setu í þriðja landi.

8 - Samkvæmt Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu, og Vísir greindi frá, má gera ráð fyrir að að kostn­aður vegna mót­töku flótta­fólks sé á bil­inu 4 til 5 millj­ónir króna á hvern ein­stak­ling.

9 - Rann­sóknir á líðan flótta­manna hafa sýnt fram á að eftir að þeir hafa náð að flýja ofbeldi og átök bíði þeirra oft ný vanda­mál í mót­töku­ríkjum, for­dómar, útskúfun, ný hlut­verk, menn­ing­ar­á­rekstrar og erfið sam­skipti við yfir­völd og sam­fé­lög. Að vinna gegn kyn­þátta­for­dómum er mjög mik­il­vægt þegar flótta­manna­hópar koma til þriðja lands. 
Ekki hefur verið gerð rann­sókn á líðan flótta­fólks hér í 10 ár.

10 - 17 pró­sent þeirra sem svör­uðu Þjóð­ar­púlsi Gallup í sept­em­ber síð­ast­liðnum vildu ekki að tekið yrði á móti neinum kvótaflótta­mönnum hingað á næstu tveimur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár