Kjarninn tilnefndur til blaðamannaverðlauna

Þórður Snær Júlíús­son, Þórunn Elísabet Boga­dóttir og Magnús Hall­dórs­son eru til­nefnd til verð­launa.

Rit­stjórn Kjarnans, Magnús Hall­dórs­son, Þórður Snær Júl­í­us­son rit­stjóri og Þórunn Elísabet Boga­dóttir, eru til­nefnd til Blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands 2017.

[links]Eft­ir­far­andi fá til­nefn­ingar til verð­launa.

Til­nefn­ingar til verð­launa eru eft­ir­far­andi:

Dómnefnd Blaða­manna­verð­launa BÍ hefur kynnt til­nefn­ingar sínar til Blaða­manna­verð­launa. Verð­launin eru veitt í fjórum flokkum en dóm­nefnd gerir þrjár til­nefn­ingar í hverjum flokki og á laug­ar­dag eftir viku verður til­kynnt hverjir hreppa verð­launin í hverjum flokki. Til­nefn­ingar dóm­nefndar eru eft­ir­far­andi:

Viðtal árs­ins

Jóhann Páll Jóhanns­son, Stund­inni

Fyrir áhrifa­mikið við­tal við Sig­ur­laugu Hreins­dóttur, móður Birnu Brjáns­dóttur, þar sem hún segir frá lífs­hlaupi dóttur sinnar, miss­inum, sorg­inni og við­brögðum sam­fé­lags­ins.

Júlía Margrét Alex­and­ers­dóttir, Morg­un­blað­inu

Fyrir ein­lægt við­tal við Sig­ur­björgu Sig­ur­geirs­dóttur þar sem hún lýsir aðkomu og eft­ir­köstum þess að eig­in­maður hennar, Sig­ur­steinn Gunn­ars­son, svipti sig lífi árið 1997.

Viktoría Her­manns­dóttir, RÚV

Fyrir við­tal við Árna Jón Árnason í þætt­inum Á ég bróður á Íslandi? Einstök og fal­leg inn­sýn í líf manns þegar hann fær þær fréttir að hann eigi hálf­bróður og hittir í fyrsta sinn.

Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins

Alma Ómars­dóttir, RÚV

Fyrir upp­lýsandi og heild­stæða umfjöllun um hverjir hlutu upp­reist æru, hverjir væru með­mæl­endur þeirra og áhrif upp­reist­ar­innar á brota­þola.

Hörður Ægisson, Frétta­blað­inu

Fyrir grein­ar­góða umfjöllun um við­skipti með hlutafé í Arion banka, ekki síst áhrif kaupa þriggja vog­un­ar­sjóða í bank­anum.[adspot]

Ingi Freyr Vil­hjálms­son, Jóhann Páll Jóhanns­son og Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, Stund­inni

Fyrir afhjúp­andi umfjöllun um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og fjöl­skyldu hans og náin tengsl við Glitni í aðdrag­anda banka­hruns.

Umfjöllun árs­ins

Jóhann Bjarni Kol­beins­son, RÚV

Fyrir grein­ar­góða umfjöllun um átak­an­legar aðstæður þeirra barna sem bjuggu á Kópa­vogs­hæl­inu á árunum 1952-1993, van­rækslu þeirra og ofbeldi sem þau voru beitt.

Kjartan Hreinn Njálsson, Stöð 2/365

Fyrir nýstár­lega umfjöllun um CRISPR/Cas9-erfða­tækn­ina og hvernig íslenskir vís­inda­menn beita henni til að þróa ný lyf og hvaða sið­ferði­legar spurn­ingar tæknin vekur.

Sunna Ósk Loga­dóttir, Morg­un­blað­inu

Fyrir að reifa skil­merki­lega hvernig raf­orku­þurrð til náinnar fram­tíðar kallar á ákvarð­anir um hvort draga þurfi úr notkun hennar eða virkja meira og ólík sjón­ar­mið þar um.

Blaða­manna­verð­laun

Magnús Hall­dórs­son, Þórður Snær Júl­í­us­son og Þórunn Elísabet Boga­dóttir, Kjarn­anum

Fyrir grein­ar­góða umfjöllun um til­lögur dóms­mála­ráð­herra til Alþingis um skipan í stöður dóm­ara við hið nýja dóms­stig Lands­rétt.

Rit­stjórn, Stund­inni

Fyrir ítar­lega umfjöllun um upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manna, áhrif þess á fórn­ar­lömb mann­anna og tregðu stjórn­valda til upp­lýs­inga­gjafar.

Sigríður Hagalín, RÚV

Fyrir upp­lýsandi umfjöllun um konur sem fengu mót­mæl­endur fyrir utan heim­ili sín í kjöl­far hruns­ins og mis­mun­andi við­horf mót­mæl­enda þegar þeir litu til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár