Fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks Pírata gerist kosningastjóri Sigríðar Ingibjargar

Aðal­heiður Ámunda­dóttir, sem var fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Pírata þorra þessa kjör­tíma­bils og var odd­viti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í síð­ustu kosn­ingum, hefur sam­þykkt að ger­ast kosn­inga­stjóri Sigríðar Ingi­bjargar Inga­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ingar, í flokksvali þess flokks sem er framundan. Sigríður Ingi­björg sæk­ist eftir fyrsta sæti í flokksvali flokks­ins í Reykja­vík. Hún skip­aði efsta sæti fram­boðs­lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður í kosn­ingum og hefur setið á þingi frá árinu 2009.

Aðal­heiður til­kynnti í júní að hún ætl­aði ekki fram fyrir hönd Pírata í kom­andi kosn­ingum og að hún myndi láta af störfum fyrir þing­flokk­inn. Í sam­tali við Eyjuna vegna þessa sagð­ist hún ein­fald­lega ekki hafa áhuga á póli­tík. Svo virð­ist sem henni hafi snú­ist hugur og sam­kvæmt stöðu­upp­færslu sem Aðal­heiður setti á Facebook í dag þá ætlar hún að stýra bar­áttu Sigríðar Ingi­bjargar fyrir því að leiða Sam­fylk­ing­una í Reykja­vík. Þar segir m.a.: „Ég hef að sjálf­sögðu skýrt málið fyrir fyrrum sam­starfs­fólki mínu í þing­flokki Pírata, enda þau öll góðir vinir mínir sem ég er alltaf í góðu sam­bandi við. Ég er Pírati og er skráð í Pírata. Ég er ekki skráð í Sam­fylk­ing­una. En ég elska Siggu og það sem hún stendur fyrir í póli­tík. Þess vegna legg ég henni lið. Ég vil að hún verði vel­ferð­ar­ráð­herra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár