Fyrsta markaðsleyfið komið – bólusetning getur hafist

Á ell­efta tím­anum í gær­kvöldi veitti Lyfja­stofnun bólu­efn­inu Comirnaty frá Pfizer/BioNtech skil­yrt íslenskt mark­aðs­leyfi. Þar með hefur fyrsta bólu­efnið gegn COVID-19, sjúk­dómnum sem valdið hefur far­aldri í heim­inum, fengið mark­aðs­leyfi hér á landi.

Droparnir dýrmætu eru væntanlegir til landsins á allra næstu dögum.
Drop­arnir dýr­mætu eru vænt­an­legir til lands­ins á allra næstu dögum. Mynd: EPA

Það leið ekki langur tími frá því að Evrópska lyfja­stofn­unin gaf út mark­aðs­leyfi fyrir bólu­efni Pfizer/BioNtech í gær þar til Lyfja­stofnun hafði veitt slíkt leyfi fyrir bólu­efn­inu hér á landi. Til­kynn­ing þar um barst fjöl­miðlum klukkan 22.26 í gær – á ell­eftu stundu – sem er tákn­ræn tíma­setn­ing á þessum tímum. Þetta hefur í för með sér að nú er hægt að hefja bólu­setn­ingar hér á landi gegn COVID-19, sjúk­dómnum sem nýja kór­ónu­veiran SARS-CoV-2 veldur.

Í til­kynn­ingu Lyfja­stofn­unar kemur fram að bólu­efnið sé ætlað til notk­unar hjá ein­stak­lingum 16 ára og eldri. Byggir mark­aðs­leyfið á mark­aðs­leyfi fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, en leyf­is­veit­ing hennar byggir á með­mælum Lyfja­stofn­unar Evrópu. Bæði með­mælin og mark­aðs­leyfi fram­kvæmda­stjórn­ar­innar birt­ust í gær.

[adspot]

„Hér er um stóran áfanga að ræða, þar sem nú verður hægt að hefja bólu­setn­ingar hér á landi með umræddu bólu­efni um leið og það verður til­tækt,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Yfir­lestur á íslenskum þýð­ingum fylgi­seð­ils og sam­an­tektar á eig­in­leikum lyfs stendur yfir hjá Lyfja­stofnun og verða þær birtar um leið og þær eru end­an­legar. Ráðgert er að það verði í dag, þriðju­dag­inn 22. des­em­ber. Ásamt birt­ingu lyfja­text­anna á íslensku fyr­ir­hugar Lyfja­stofnun að birta í dag fleiri gagn­legar upp­lýs­ingar um bólu­efnið.

[links]Tíu þús­und skammtar af bólu­efn­inu eru vænt­an­legir til lands­ins á allra næstu dögum. Með þeim er hægt að bólu­setja fimm þús­und ein­stak­linga. Þeir fyrstu sem verða bólu­settir eru fram­línu­starfs­menn í heil­brigð­is­kerf­inu og íbúar og öldr­unar- og hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Samkvæmt áætl­unum, sem heil­brigð­is­ráðu­neytið hefur greint frá, er svo von­ast til þess að ákveðið magn skammta ber­ist reglu­lega frá upp­hafi nýs árs, árs­ins 2021. Hjarð­ó­næmi mun þó að mati ráðu­neyt­is­ins ekki nást fyrr en að 3-5 mán­uðum liðnum en til að það fáist þarf að bólu­setja 60-70 pró­sent þjóð­ar­innar.

Bóluefni Pfizer-BioNteck heitir Comirnaty. Það byggir á svo­kall­aðri mRNA-tækni en slík bólu­efni inni­halda hluta af erfða­efni veirunnar. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkri tækni er beitt við þróun bólu­efna. Fyrstu nið­ur­stöður úr klínískum rann­sóknum á bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins benda til þess að það veiti 90-95 pró­sent vörn.

Þar sem bólu­efni gegn COVID-19 voru þróuð og prófuð á mun skemmri tíma en áður hefur þekkst í sög­unni er nokkrum veiga­miklum spurn­ingum ósvarað. Þau eru talin örugg og alvar­legar auka­verk­anir sjald­gæfar en aðrir mik­il­vægir þættir, t.d. hversu lengi vörnin helst sem efnið gefur, eiga enn eftir að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár