Fleiri treysta fjölmiðlum en stjórnvöldum

Fólkið í land­inu ber álíka lítið traust til dóm­stóla, stjórn­valda og fjöl­miðla og það ber til ókunn­ugs fólks. Það er að mati Fjöl­miðla­nefndar, sem gaf út nýja skýrslu um traust í morgun, áhyggju­efni.

Traust
Traust Fólkinu í land­inu er farið að þykja erf­ið­ara að fylgj­ast með því sem er í fréttum en áður. Mynd: Pexels

Tæplega 30 pró­sent lands­manna bera fremur eða mikið traust til fjöl­miðla. Tæp 28 pró­sent bera slíkt traust til stjórn­valda. Það er litlu meira en þátt­tak­endur í nýrri traustskönnun Fjöl­miðla­nefndar hafa til ókunn­ugs fólks.

Um helm­ingur þátt­tak­enda könn­un­inni var annað hvort nokkuð eða mjög sam­mála því að fjöl­miðl­arnir RÚV, Kjarninn, Vísir, Stöð2/Bylgjan, Stundin og Frétta­blaðið væru óháðir póli­tískum, efna­hags­legum eða öðrum sér­hags­munum þegar þeir fjalla um sam­fé­lagið og umheim­inn.

Tæpur fjórð­ungur var sam­mála því að Hring­braut, Við­skipta­blaðið, DV, og Morg­un­blaðið/Mbl.is/K100 væru óháðir í umfjöllun sinni. Fæstir voru sam­mála því að Mannlíf, Sam­stöðin, Frettin.is og Útvarp Saga væru óháðir.

Nokkuð önnur mynd blasir við þegar spurt var um hvert fólk færi í leit að fréttum. Vísir.is (79,3%), Morg­un­blaðið/Mbl.is/K100 (67,7%) og Rúv/Rás1/Rás2/Ruv.is (64,8%) voru þeir fjöl­miðlar sem flestir þátt­tak­endur sögð­ust nota til að nálg­ast fréttir.

Flestir (32,4%) telja ókeypis frétta­miðla á net­inu mik­il­væg­ustu frétta­miðl­ana. 23,4 pró­sent telja sjón­varpið mik­il­væg­asta frétta­mið­il­inn og 24 pró­sent útvarp. Dagblöð voru mik­il­væg­ustu frétta­miðl­arnir í hugum 3,3 pró­senta þátt­tak­enda. Töluverð sveifla er milli ald­urs­hópa í þessu sam­bandi.

Margir nota samfélagsmiðla en fáir treysta þeim

Á eftir frétta­miðlum á net­inu not­uðu næstf­lestir, eða 74,9%, sam­fé­lags­miðil til að nálg­ast fréttir. Þó töldu aðeins 5,6% sam­fé­lags­miðla vera meðal mik­il­væg­ustu frétta­miðla. Yngsti ald­urs­hóp­ur­inn (18-29 ára) skar sig þar úr þar sem 83,0% höfðu notað sam­fé­lags­miðla til að nálg­ast fréttir deg­inum áður en könn­unin var gerð á meðan með­al­talið í öðrum hópum var um 72%.

Þegar litið er til notk­unar yfir lengra tíma­bil kemur í ljós að 86,4% höfðu notað sam­fé­lags­miðil á síð­ast­liðnum 30 dögum til að nálg­ast fréttir. Í yngsta ald­urs­hópnum (18-29 ára) var hlu­tfallið hæst eða 93,2%.

Skýrslan sem kom út í morgun er einn hluti rann­sóknar Maskínu fyrir Fjöl­miðla­nefnd sem lögð var fyrir í nóv­em­ber í fyrra. Hluti spurn­ing­anna sem lagðar voru fyrir eru end­ur­teknar frá fyrri rann­sóknum í febr­úar og mars árið 2021. Frá því að könn­unin var gerð hefur Frétta­blaðið lagt upp laupana og Kjarninn og Stundin sam­ein­ast í fjöl­mið­il­inn Heim­ild­ina.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. panel) sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóðskrá. Könnunin fór fram á net­inu og svar­endur voru 983 tals­ins. Svar­endur eru af öllu land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Við úrvinnslu voru gögnin vegin til sam­ræmis við tölur Hag­stof­unnar þannig að hóp­ur­inn sem svarar end­ur­speglar þjóð­ina út frá kyni, aldri og búsetu.

Þegar þátt­tak­endur voru spurðir hversu mikið eða lítið traust þeir bæru til fjöl­miðla á Íslandi var tæp­lega þriðj­ungur, eða 29,6%, sem sagð­ist bera fremur eða mjög mikið traust til þeirra. Þá sögð­ust 50,7% treysta þeim í með­al­lagi mikið, 12,8% fremur lítið og 6,9% mjög lítið. Munur var á afstöðu þátt­tak­enda eftir kyni en fleiri konur (34%) sögð­ust bera annað hvort fremur mikið eða mjög mikið traust til fjöl­miðla en karlar (25,6%).

Alls sögð­ust 37,5% þátt­tak­enda bera annað hvort fremur lítið eða mjög lítið traust til stjórn­valda á Íslandi. Þá sögð­ust 34,7% bera í með­al­lagi mikið traust til þeirra og 27,8% annað hvort fremur mikið eða mjög mikið. Þegar nið­ur­stöð­urnar eru skoð­aðar með til­liti til tekna kemur í ljós að hlutf­all þeirra sem bera annað hvort fremur mikið eða mjög mikið traust til stjórn­valda hækkar eftir því sem tekjur verða hærri.

Kjós­endur rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja báru langtum meira traust til stjórn­valda en kjós­endur ann­arra stjórn­mála­flokka.

Traust til dómstóla á Íslandi meira á meðal karla

Rúmlega þriðj­ungur þátt­tak­enda sagð­ist bera annað hvort fremur mikið eða mjög mikið traust til dóm­stóla á Íslandi. Þá voru 39,1% sem sögð­ust bera í með­al­lagi mikið traust til þeirra og 27,7% annað hvort fremur lítið eða mjög lítið traust. Þegar nið­ur­stöð­urnar eru skoð­aðar með til­liti til ald­urs kemur í ljós að hlu­tfall þeirra sem sögð­ust bera annað hvort fremur mikið eða mjög mikið traust til dóm­stóla á Íslandi var hæst í ald­urs­hópnum 50-59 ára en lægst í yngsta ald­urs­hópnum 18-29 ára. Munur var á afstöðu þátt­tak­enda eftir kyni en fleiri karlar (37,2%) sögð­ust bera annað hvort fremur mikið eða mjög mikið traust til dóm­stóla á Íslandi en konur (28,9%).

Konur bera minna traust til fólks sem þær þekkja ekki

Alls sögð­ust 23,8% þátt­tak­enda bera annað hvort fremur mikið eða mjög mikið traust til fólks sem þeir þekkja ekki á Íslandi. Þá var rúm­lega helm­ingur sem sagð­ist bera í með­al­lagi mikið traust og 21% annað hvort fremur lítið eða mjög lítið.

Þegar nið­ur­stöð­urnar eru skoð­aðar með til­liti til kyns þátt­tak­enda kemur í ljós að konur eru síður lík­legar til að bera traust til fólks sem þær þekkja ekki en karlar. Einnig má sjá fylgni á milli mennt­unar og trausts til ókunn­ugs fólks en því hærra mennt­un­ar­stig sem þátt­tak­endur höfðu þeim mun meira traust báru þeir til fólks sem þeir þekkja ekki.

Mikill meiri­hluti þátt­tak­enda, eða 75,1%, sagð­ist finna til annað hvort fremur mik­ils eða mjög mik­ils öryggis á almanna­færi. 80,6% karla sögð­ust finna til annað hvort fremur mik­ils eða mjög mik­ils öryggis á almanna­færi sam­an­borið við 69,1% kvenna.

Erfiðara að fylgjast með fréttum

Alls voru 18,7 pró­sent þátt­tak­enda fremur eða mjög sam­mála full­yrð­ing­unni „mér finnst erfitt að fylgj­ast með því sem er í fréttum“ sem er fjölgun frá árinu 2021 þegar hlut­fallið mæld­ist 12,7%. Tæplega þriðj­ungur var í með­al­lagi sam­mála full­yrð­ing­unni en árið á undan var hlutf­allið 19,7%.

Fleiri halda sér upp­lýstum án þess að fylgj­ast með fréttum. Rúmlega helm­ingur aðspurðra var annað hvort fremur eða mjög sam­mála full­yrð­ing­unni „ég held mér vel upp­lýstri/upp­lýstu(m) þótt ég fylgist ekki með fréttum“. Er það hækkun frá árinu 2021 þegar hlut­fallið var 43,7%. Yngri ald­urs­hópar voru lík­legri til að taka þá afstöðu heldur en þeir eldri.

Hér getur þú lesið trausts­skýrslu Fjöl­miðla­nefndar í heild.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár