Ríkisstjórnin rígheldur og rúmlega það

Samkvæmt þeim atkvæðum sem talin höfðu verið um kl. 1 að kvöldi kjör­dags gæti rík­is­stjórnin fengið 40 þing­menn, jafn­vel fleiri. Útlit er fyrir að færri flokkar verði á þingi en búist hafði verið við.

Rík­is­stjórn Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks hefur afar rúman þing­meiri­hluta, jafn­vel yfir 40 þing­menn, sam­kvæmt þeim atkvæðum sem talin höfðu verið um kl. 1 í nótt.

Útlit er fyrir að það verði ekki níu flokkar á þingi, heldur mögu­lega átta eða sjö, en Mið­flokk­ur­inn og Sós­í­alista­flokk­ur­inn eru báðir afar tæpir á að ná inn þing­manni og voru ekki yfir 5 pró­senta mark­inu þegar klukkan var rétt rúm­lega 1. Þá var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins þó inni sem kjör­dæma­kjör­inn þing­maður í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Ef þetta verður nið­ur­staðan yrði það til þess að stærri flokk­arnir á þingi fengju fleiri þing­menn og tals­verður hluti atkvæða félli niður dauð, eða hátt í 10 pró­sent.

Framsóknarflokkurinn sigurvegari en stjórnarflokkarnir geta allir vel við unað

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir mikið við sig – eða allt að fimm þing­mönnum eftir því sem jöfn­un­ar­þing­sætin sveifl­ast. Óhætt er að kalla flokk­inn sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna, miðað við fyrstu tölur, en hann hefur fengið yfir 16 pró­sent þeirra atkvæða sem talin hafa verið á lands­vísu.

[adspot]

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærsti flokk­ur­inn með rúm 24 pró­sent þeirra atkvæða sem talin hafa verið. Það er nokkuð hærra en skoð­ana­kann­anir hafa sýnt að und­an­förnu. Flokk­ur­inn stendur í stað hvað þing­manna­fjölda varðar sam­kvæmt þeim tölum sem hafa komið fram. Flokk­ur­inn er lít­il­lega undir kjör­fylgi sínu árið 2017.

Vinstri græn virð­ast vera að tapa um tveimur pró­sentu­stigum og tveimur þing­mönnum frá síð­ustu kosn­ingum – sem þó myndi ekki minnka þing­flokk flokks­ins neitt, þar sem tveir þing­menn VG gengu til liðs við aðra flokka á kjör­tíma­bil­inu. Flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur virð­ist þó vera að fá betri kosn­ingu en skoð­ana­kann­anir gerðu ráð fyrir, eða yfir 14 pró­sent.

Flokkur fólksins sterkur en miðjuflokkarnir lægri en kannanir sýndu

Sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna mætti sömu­leiðis kalla Flokk fólks­ins, sem virð­ist ætla að bæta við sig tveimur þing­mönnum frá kosn­ing­unum árið 2017, fá sex menn kjörna og slaga nærri 9 pró­senta fylgi.

Ef að þetta verða nið­ur­stöður kosn­ing­anna yrði það veru­lega á skjön við það sem skoð­ana­kann­anir hafa sýnt að und­an­förnu, en Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn virð­ast vera að fá all­nokkuð lak­ari kosn­ingu en jafn­vel mjög nýlegar kann­anir höfðu sýnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár