Macron og Le Pen berjast um valdaþræðina í Frakklandi

Mikil spenna er í frönsku kosn­ing­unum en kjör­dagur er í dag.

Emmanuel Macron á kosningafundi.
Emmanuel Macron á kosn­inga­fundi. Mynd: EPA

Útgöngu­spár benda til þess að miðju­maður­inn Emm­anu­el Macron og Mar­ine Le Pen hafi borið sig­ur úr být­um í fyrri um­ferð frönsku for­seta­kosn­ing­anna, að því er fram kemur á vef breska rík­is­út­varps­ins BBC. Seinni umferðin fer fram eftir tvær vikur, 7. maí, og mun valið standa á milli þeirra tveggja.

Macron er sagður hafa fengið 23,7 pró­sent at­kvæða og Le Pen hafi fengið 21,7 pró­sent.

Alls buðu 11 sig fram til for­seta, en ljóst má vera að mikil spenna verður í annarri umferð kosn­ing­anna..

Macron er fyrr­ver­andi efna­hags­mála­ráð­herra Frakk­lands í stjórn Sósí­al­ista­flokks­ins. Hann sagði sig úr hon­um og stofn­aði nýj­an stjórn­mála­flokk í ág­úst til að bjóða sig fram til for­seta, og hefur haft byr í seglum í kosn­inga­bar­átt­unni á und­an­förnum vikum.

Jean-Marie Le Pen, faðir Marine Le Pen sem nú berst um for­seta­emb­ættið, stofn­aði Þjóð­fylk­ing­una í Frakk­landi fyrir ríf­lega fjör­tíu árum og hefur meg­in­stefið í flokknum verið þjóð­ern­is­hyggja. „Frakk­land fyrir Frakka“ var lengi vel slag­orð flokks­ins, en Marine Le Pen, hefur reynt að milda ásýnd flokks­ins á und­an­förnum vikum, og talað fyrir umburð­ar­lyndi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár