Allar líkur á að Theresa May verði næsti forsætisráðherra Bretlands

Michael Gove hafði ekki erindi sem erf­iði þegar hann stakk vin sinn Boris Johnson í bakið og bauð sig fram til for­manns Íhalds­flokks­ins. Tvær konur munu berj­ast um emb­ættið, Theresa May og Andrea Leadsom.

Fátt virðist geta komið í veg fyrir að May flytjist inn í húsið að baki hennar.
Fátt virð­ist geta komið í veg fyrir að May flytj­ist inn í húsið að baki hennar. Mynd: EPA

Theresa May verður að öllum lík­indum næsti for­maður Íhalds­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Hún hlaut 199 atkvæði í annarri umferð for­manns­kjörs­ins í flokknum, sem fór fram í dag. Næst á eftir henni kom Andrea Leadsom, sem hlaut 84 atkvæði, og í þriðja sæti varð Michael Gove, sem fékk 46 atkvæði og verður ekki með í næstu umferð.

Valið mun því standa á milli tveggja kvenna, May og Leadsom, þegar þriðja umferðin fer fram í næstu viku. Það virð­ist þó fátt geta komið í veg fyrir að May verði for­sæt­is­ráð­herra, stuðn­ingur við hana er ein­fald­lega svo mikið meiri.

May sagði við blaða­menn fyrir utan þingið nú fyrir skömmu að hún væri mjög ánægð með góða kosn­ingu og mik­inn stuðn­ing. Þetta sýndi að Íhalds­flokk­ur­inn geti verið sam­ein­aður, og undir hennar for­ystu myndi flokk­ur­inn gera það á ný.

Michael Gove ríður ekki feitum hesti frá for­manns­kjör­inu, sem hann til­kynnti öllum að óvörum að hann ætl­aði að taka þátt í skömmu áður en fram­boðs­frest­ur­inn rann út í síð­ustu viku. Með því líta margir svo á að hann hafi svikið vin sinn og bar­áttu­bróður Boris Johnson, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra London, sem hafði ætlað sér í for­manns­fram­boð með hjálp Gove. John­son lýsti í vik­unni form­lega yfir stuðn­ingi við Andreu Leadsom, og sagði hana hafa allt sem til þyrfti til að leiða Bret­land. Talið er að stuðn­ingur hans hafi hjálpað henni mikið og fylkt stuðn­ings­mönnum þess að yfir­gefa ESB að baki henn­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár